Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Side 2
Vikublað 11.–13. nóvember 20142 Fréttir
Lónandi
fíkniefnasali
Lögreglan á Suðurnesjum stóð
nýlega fíkniefnasala að verki.
Að sögn lögreglu lónaði salinn
á reiðhjóli umhverfis kyrrstæða
bifreið í Keflavík. Hann og öku-
maður bifreiðarinnar tóku síðan
tal saman og fór hjólamaðurinn í
úlpuvasa sinn og rétti ökumanni
eitthvað. Þegar lögreglumenn
stöðvuðu þann fyrrnefnda var
hann með kannabisefni í úlpu-
vasanum. Hann var handtekinn.
Ökumaðurinn var með tvo
poka af kannabisefnum og viður-
kenndi hann kaup sín á fíkniefn-
um. Hann var einnig handtekinn.
Karlmaður
yfirheyrður
Maðurinn sem grunaður er um
að hafa brotið gegn fatlaðri konu
á Sólheimum í Grímsnesi hef-
ur nú verið yfirheyrður af lög-
reglunni á Selfossi. Konan hefur
auk þess verið yfirheyrð og talið
er að rannsókn málsins ljúki síðar
í þessum mánuði. Mbl.is greindi
frá þessu á mánudag. Heimildir
DV herma að maðurinn hafi gef-
ið konunni áfengi og síðan brot-
ið á henni kynferðislega. Starfs
síns vegna hefur hann aðgang að
bæði börnum og fötluðu fólki, en
hann mun þó ekki vera starfs-
maður Sólheima.
Svikari á Selfossi
Í dagbók síðastliðinnar viku
hjá lögreglunni á Selfossi, sem
birt var á mánudag, var sagt frá
heldur sérkennilegum atburði.
Ónefndur maður tapaði seðla-
veski sínu fyrir utan Samkaup.
Annar maður fann veskið og
skilaði því samviskusamlega inn
í verslunina. Stuttu síðar kom
þriðji maðurinn inn í verslunina
og sagðist hafa tapað veski sínu
fyrir utan. Starfsfólk vissi ekki
betur og afhenti manninum vesk-
ið. Síðar kom í ljós að maðurinn
átti ekki umrætt veski. „Lögreglan
veit hver svikarinn er og málið er
í rannsókn,“ segir í dagbók.
„ALLt hefur
verið sviKið“
Þ
að sem ég ætla að tala um er
læknaflóttinn, hvernig við
erum að missa dýrmæta sér-
fræðiþekkingu úr landi og
hvernig Ísland er ekki leng-
ur samkeppnishæft,“ sagði Kári Örn
Hinriksson, blaðamaður og krabba-
meinssjúklingur, í samtali við DV í
gær, mánudag, stuttu áður en hann
flutti ræðu sína á öðrum fundi Jæja-
mótmælanna á Austurvelli. „Við
þurfum að fá þessa lækna heim aftur,
álagið er gífurlegt og launakjörin eru
hlægileg miðað við annars staðar,“
segir Kári Örn enn fremur en hann
hefur barist við krabbamein allt frá
árinu 2006.
„Þetta er allt að gerast á sama
tíma og kostnaðarhlutur fársjúks
fólks er að aukast. Sumir þurfa hrein-
lega að neita sér um heilbrigðisþjón-
ustu eða lyf vegna þess að það hefur
hreinlega ekki efni á því,“ segir Kári
Örn sem þekkir það vel á eigin skinni
hvernig kostnaðarhlutfall sjúklinga
hefur aukist á síðustu árum. Hann
segir íslenskt heilbrigðiskerfi komið
á ákveðna endastöð og við því þurfi
að bregðast þegar í stað.
Um 2500 manns mættu á mót-
mælin, en þar var fókusinn settur á
að standa sérstaklega vörð um heil-
brigðiskerfið, sýna starfsfólki heil-
brigðiskerfisins samstöðu og mót-
mæla auknum kostnaði almennings
í heilbrigðisþjónustu. „Almenningur
greiðir nú um fimmtung allra heil-
brigðisútgjalda úr eigin vasa og sem
dæmi þá getur kostnaður krabba-
meinssjúklinga numið hundruðum
þúsunda króna á ári hverju,“ segir
meðal annars á Facebook-síðu mót-
mælanna.
Vettvangur fyrir almenning
Kári Örn segir íslensk stjórnvöld ekki
átta sig á því í hvað stefnir. Öllu fögru
hafi verið lofað fyrir kosningar en
veruleikinn sem blasi við í dag sé allt
annar. „Allt hefur þetta verið svikið.
Það sést svart á hvítu í fjárlögum síð-
ustu tveggja ára að heilbrigðiskerfið
er ekki ofarlega á stefnu ríkisstjórnar-
innar. Það birtist líka í þeim skætingi
sem þeir sem gagnrýna stefnu ríkis-
stjórnarinnar í heilbrigðis málunum
fá.“
Leifur Eiríksson er einn skipu-
leggjenda mótmælanna. „Við erum
ekki að þykjast vera krafa fólksins.
Við erum að búa til vettvang fyrir
hana til að koma fram. Við erum að
miðla þessari upplifun og koma fólki
sem langar til að tjá sig á sameigin-
legan stað til þess, enda á samfélag-
ið að vera með í opinberri umræðu,
því annars er hún hvorki opin né
ber,“ segir Leifur í samtali við DV og
bætir við að enginn einn leiðtogi sé
í hópnum.
„Við trúum á skipulag og við trú-
um á samtakamátt fólks, þegar það
kemur sér saman um að gera eitt-
hvað gott, en ekki að neinn sé hæf-
ari en annar til að stjórna,“ segir Leif-
ur sem bætir við að fleiri mótmæli
séu fyrirhuguð. „Við viljum endi-
lega endurnýja fólkið, svo við séum
alltaf að passa upp á að skoðanir sem
flestra séu að koma fram, að það ríki
jafnræði í því.“
Klúður, spilling og misskipting
„Ég held að ég sé bara eins og mörg
þúsund Íslendingar, einhvern veg-
inn búinn að fá mig fullsaddan af
holskeflu frétta af klúðri og spillingu
og misskiptingu í samfélaginu,“ seg-
ir Guðmundur Hörður Guðmunds-
son, sem kom einnig að skipulagi
mótmælanna: „Maður þarf að velja á
milli þess að kúldrast einn með þetta,
pósta á Facebook og nöldra á kaffi-
stofunni, eða gera eitthvað í hlutun-
um. Þetta er bara komið á það stig.“
Guðmundur Hörður segist finna
mikinn meðbyr með mótmælun-
um. „Við fundum það við síðustu
mótmæli að það var greinilega orðin
mikil óþreyja hjá fólki en ég held að
þessu sé ekkert lokið,“ segir Guð-
mundur og bætir við að viðbrögð
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
forsætisráðherra og annarra stjórn-
arliða hafi orðið til þess að hella olíu
á mótmælaeldinn, en Sigmund-
ur hefur meðal annars ráðlagt mót-
mælendum að velja sér nýjar dag-
setningar fyrir mótmælin.
„Ég kann honum bestu þakkir
fyrir að æsa fólk upp með reglulegu
millibili. Hann er líklega bestur af
okkur öllum í því að hvetja fólk til að
koma á Austurvöll að mótmæla.“
Skuldaniðurfelling breyti litlu
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistar-
maður hvatti þá sem komust ekki á
mótmælin í gær, til þess að kveikja á
kerti og setja út í glugga, til þess að
sýna samstöðu. Tæplega fimm þús-
und manns eru búnir að skrá sig í
Facebook-hópinn Jæja sem stofnað-
ur var eftir síðustu mótmæli. Guð-
mundur Hörður segir þetta merki
um þá vaxandi mótmælaöldu sem
hann finnur fyrir í samfélaginu.
Hann býst ekki við því að skulda-
niðurfelling ríkisstjórnarinnar muni
breyta miklu þar um.
„Ég held að þessi skuldaniður-
felling slái ósköp lítið á þessa undir-
öldu sem er í gangi. Ég held til dæm-
is að unga fólkið finni voða lítið fyfir
skuldalækkun núna eða fólk sem er
á leigumarkaði. Þetta snertir það fólk
auðvitað ekki neitt nema á neikvæð-
an hátt, þannig að þetta er bara rétt
að byrja.“ Hann segir allt útlit fyrir að
mótmælin muni verða fleiri á næstu
vikum.
Hann segir hópinn í kringum
skipulagninguna vera sjálfsprott-
inn en að öllum sé velkomið að taka
þátt í skipulagningunni. „Það er um
að gera fyrir þá sem vilja taka þátt í
starfinu að hafa samband við okkur,
hvort sem það er persónulega eða í
gegnum Facebook.“ n
Heilbrigðiskerfið komið á endastöð, segir krabbameinssjúkur maður sem flutti ræðu á Austurvelli
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
„við erum
ekki að
þykjast vera
krafa fólksins
Ekki krafa heldur vettvangur
„Við erum ekki að þykjast vera krafa
fólksins. Við erum að búa til vettvang
fyrir hana til að koma fram,“ segja
skipuleggjendur. Myndir Sigtryggur Ari
Fjöldi mótmælenda Fjölmargir lögðu leið sína á Austurvöll til að sýna samstöðu með
heilbrigðiskerfinu sem margir telja að hruni komið.