Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 3
Vikublað 11.–13. nóvember 2014 Fréttir 3
N
íðingagangurinn fær að
panta sér Kentucky einu
sinni í viku. Það fá hin-
ir ekki,“ segir fangi á Litla
Hrauni í samtali við DV.
Lengi hefur það tíðkast í íslensku
fangelsiskerfi að barnaníðingar séu
aðskildir að mestu leyti frá öðrum
föngum og er ástæðan sögð ein-
elti sem þeir urðu fyrir. Margrét Frí-
mannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-
Hrauni, segir í samtali við DV það
orðum aukið að barnaníðingar fái
svo oft skyndibita.
Þægilegri vist
Í samtali við DV segir fangi sem
nýverið kom af Litla-
Hrauni stéttaskiptingu
tíðkast innan veggja
fangelsisins. Barnaníð-
ingar fái mun þægilegri
vist en aðrir fangar. „Barn-
aníðingarnir fá sérmeð-
ferð. Það átti að passa upp
á að þeir yrðu ekki fyr-
ir einelti en
það snerist upp í andhverfu sína því
þeir fá meiri réttindi en aðrir. Þeir
eru með lengri útivistartíma, og á
öðrum tíma. Þeir eru með sér tíma í
ræktina,“ segir fanginn sem segir að
þetta fyrirkomulag leggist mjög illa í
aðra fanga. „Það eru allir alveg brjál-
aðir uppi á Hrauni út af þessu,“ segir
fanginn. Hann segir enn fremur að
föngum hafi verið tjáð að markmið-
ið með þessu sé að uppræta einelti
sem barnaníðingar hafi orðið fyrir af
höndum almennra fanga.
Öryggismál
„Það er gert fyrir þeirra öryggi, að
reyna að vista þá sér,“ svarar Mar-
grét spurð um sérgang „manna
með barnagirnd“ líkt og hún vill
fremur kalla fangana. Hún seg-
ir það ávallt hafa
verið vandamál að
tryggja öryggi slíkra
fanga. „Það var ein-
elti sem menn verða fyrir og af þeim
sökum er reynt að vista þá sér. Það
má raun og veru segja að aðrir fangar
hafi mótað þessar vinnureglur, án
þess að þær hafi formlega orðið til,
einfaldlega vegna þess eineltis sem
þessi hópur varð fyrir. Þetta hefur
alla tíð verið svona og alls staðar er-
lendis,“ segir Margrét.
Margrét segir að það hafi gerst
á flestum deildum fangelsisins að
menn hafi fengið pantaðan skyndi-
bita. „Það hefur komið fyrir, á flest
öllum deildum, að menn fá að panta
sér mat sem er sóttur af fangavörð-
um. Ég gæti trúað að það sé helst á
meðferðarganginum, þar sem þetta
er umbun fyrir þá sem hafa staðið sig
mjög vel. Þá er það allur gangurinn
en ekki bara einhver einn. Þá hafa
meðferðarfulltrúar náð í pítsu eða
eitthvað til hátíðarbrigða,“ segir hún.
Góð hegðun
Spurð um hvort góð hegðun á barna-
níðingaganginum kunni að skýra orð
fangans um ítrekaðar KFC-sendingar
segir hún það mögulegt. Hún segir
það þó alrangt að það sé einu sinni
í viku. „Ég man ekki eftir því að það
hafi verið pantaður matur fyrir þá
en hafi það gerst þá hefur það verið
vegna þess að þar er yfirleitt mjög góð
umgengni og rólegheit. Það hefur þá
verið umbun af einhverju tagi.“ n
n Fangar fokillir og segja níðinga fá sérmeðferð n Fangelsisstjóri segir forréttindi orðum aukin
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Það eru allir
alveg brjál-
aðir upp á Hrauni
út af þessu
Umbunað með skyndibita
Litla-Hraun Fangar
eru óánægðir með það
sem þeir segja vera
forréttindi sem barna-
níðingar þar njóta.
P
áll Ragnar Jóhannsson, fyrr-
verandi starfsmaður Íslands-
banka, var einnig kærður
til Fjármáleftirlitsins fyrir
meint brot í starfi, líkt og Halla Sig-
rún Hjartardóttir, þegar hann hætti
í bankanum árið 2011. Þetta herma
heimildir DV. Greint hefur verið frá
kærunni gegn Höllu Sigrúnu í fjöl-
miðlum en ekki kærunni gegn Páli
Ragnari.
Kæran gegn Höllu Sigrúnu var
látin niður falla en hún var vegna
þess að hún var talin hafa tekið með
sér upplýsingar úr bankanum. DV
hefur ekki heimildir fyrir því hvað
Páll Ragnar var kærður fyrir en ætla
má að ekkert hafi orðið af þeirri
kæru heldur hjá Fjármáleftirlitinu
þar sem ekkert hefur spurst af mál-
inu. Bæði fóru þau Halla Sigrún og
Páll Ragnar til Straums eftir að hafa
starfað hjá Íslandsbanka. Páll var,
líkt og Halla Sigrún, starfsmaður fyr-
irtækjaráðgjafar.
Þegar Halla Sigrún hætti hjá
Straumi í fyrra tók Páll Ragn-
ar við starfi hennar sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar í
fjárfestingabankanum.
Halla Sigrún hefur verið til um-
ræðu síðustu daga og vikur vegna
stjórnarformannsstarfs hennar
hjá Fjármálaefirlitinu en hún mun
hætta í því starfi um áramótin.
Morgunblaðið greindi fyrir skömmu
frá rúmlega 800 milljóna króna
hagnaði hennar af hlutabréfavið-
skiptum með bréf félagsins Heddu
ehf., sem átti hlutabréf í Skeljungi
og færeyska olíufélaginu P/F Magni.
Íslandsbanki ætlar að skoða sölu
Skeljungs aftur í ljósi nýrra upplýs-
inga. n ingi@dv.is
Páll Ragnar
líka kærður
Tveir starfsmenn Íslandsbanka kærðir
GÆÐAHREINSUN
ÞVOTTAHÚS
DÚKALEIGA
Háleitisbraut 58-60 - Sími 553-1380
Góð þjónusta í 60 ár
EFNALAUG ÞVOTTAHÚS
SÆKJUM & SENDUMFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Góð þjónusta í 60 ár