Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Qupperneq 4
Vikublað 11.–13. nóvember 20144 Fréttir H eimildir DV innan Háskóla Ís- lands herma að í lok tíma í stjórnmálaheimspekikúrs í stjórnmálafræðideild síðast- liðinn fimmtudag hafi kennarinn, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, gert nemendum kostaboð. Bauð hann þrjá doðranta; Uppsprettan, Undirstaðan og Kíra Argúnova, eftir höfundinn og frjálshyggjuhugmyndafræðinginn Ayn Rand á aðeins 500 krónur sam- tals. Bækurnar eru seldar á vefverslun hægrisíðunnar Andríkis og kemur þar fram að bækurnar ættu að kosta sam- tals 10.500 krónur. Því má raunar segja að Hannes hafi gefið nemendum sín- um bækurnar í ljósi þess að hann ætl- aðist aðeins til að fá tæplega 5 prósent af uppsettu verði bókanna. Svo vill til að bækurnar allar voru frekar nýlega gefnar út af Rann- sóknasetri um nýsköpun og hagvöxt, nokkurs konar hægrisinnuðum hug- myndabanka. Á vef setursins kemur fram að í rannsóknarráði eru helstu talsmenn hægristefnu innan Háskóla Íslands; Ragnar Árnason hagfræði- prófessor, Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor og Birgir Þór Runólfsson hagfræðidósent. Framkvæmdastjóri hugmyndabank- ans er svo Jónas Sigurgeirsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri BF-útgáfu sem er í eigu Ármanns Þorvaldsson- ar, Baldurs Guðlaugssonar, Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Kjartans Gunnarssonar. Útgáfa Rand-bókanna var sam- starfsverkefni Rannsóknaseturs um nýsköpun og hagvöxt og Almenna bókafélagsins sem var einmitt keypt af BF-útgáfu árið 2011. Frá því ári hefur bókafélagið eingöngu gefið út hægri- sinnaðan áróður svo sem Búsáhalda- byltingin: sjálfsprottin eða skipulögð? eftir Stefán Gunnar Sveinsson, blaða- mann á Morgunblaðinu, og Íslenskir kommúnistar 1918–1998 eftir Hann- es Hólmstein. DV hafði samband við Jónas Sigurgeirsson og óskaði eftir bæði sölutölum sem og upplagi bók- anna þriggja eftir Rand. Svar við þeirri fyrirspurn hafði ekki borist DV þegar blaðið fór í prentun. Bækurnar hafa notuð umtalsverða vinsælda víða um heim en í ljósi þess að bækurnar séu nú gefnar má efast um að það sama eigi við hér á landi. n hjalmar@dv.is Hannes bauð bækur á kostakjörum n Þrjár bækur Rand á 500 krónur n Sölutölur bóksala leyndarmál Á ekki samleið með Dögun Þór Saari, fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar, hefur sagt skilið við stjórnmálahreyfinguna Dögun. Þór segir tilraunir hans, til að nýta nýliðinn landsfund til gagngerrar naflaskoðunar og hugmynda- flæðis um stöðu, eðli og framtíð Dögunar ekki hafa borið árangur. „Niðurstaðan af þessum fund- um sem og áhugaleysi félaga minna í Dögun til að starfa að stjórnmálum á öðrum forsendum en hefðbundið er, hafa gert það að verkum að ég á ekki lengur sam- leið með Dögun, hvorki starfshátt- um né hugmyndafræði.“ Verkfalli aflýst Nýr kjarasamningur var undir- ritaður milli samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, SÍS, fyrir hönd Kópavogsbæj- ar og Starfs- mannafélags Kópavogs, SfK, á sjöunda tímanum í gærmorgun. Boðuðu verk- falli starfs- manna hefur því verið aflýst. Í tilkynningu á vef Kópavogs- bæjar segir að samningurinn sé hinn sami og Sambandið hafi gert við önnur bæjarstarfsmannafé- lög í landinu og var undirritaður í júlí síðastliðnum. Hann gildir frá 1. maí. Þá greiðir Kópavogsbær 35 þúsund króna eingreiðslu til starfsmanna. Skjálfti fannst í Eyjafirði Skjálfti upp á 5,2, sem varð í öskju Bárðarbungu um klukkan níu á sunnudagskvöld, fannst í Eyjafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Alls mældust um sjötíu skjálftar við Bárðarbungu frá sunnudegi til mánudags og voru nokkrir þeirra milli fjögur og fimm stig. Skjálft- ar hafa einnig mælst undir berg- ganginum en ekki sást til gossins á mánudag þar sem slæmt skyggni var á svæðinu. Reyna að selja verksmiðjuna Róbert Wessman ræðir við fagfjárfesta um kaup á lyfjaverksmiðjunni í Vatnsmýrinni R óbert Wessman mun ekki eiga lyfjaverksmiðju fyrir- tækisins Alvogen í Vatns- mýrinni til langframa heldur verður fundinn nýr eigandi sem sérhæfir sig í því að eiga slík- ar eignir. Þetta kemur fram í svari frá Alvogen við fyrirspurn DV um eignarhald húsins. „Eignarhald fast- eignafélags Róberts Wessman á Há- tæknisetrinu er því tímabundin ráðstöfun til þess að tryggja hraða framgöngu verkefnisins. Til framtíð- ar verður húsið í eigu fyrirtækis sem sérhæfir sig í rekstri fasteigna.“ Ætlunin er þá væntanlega, sam- kvæmt skilningi DV, að eitthvert ís- lenskt fasteignafélag kaupi húsið og eigi það til langframa. Íslensk fjár- málafyrirtæki til dæmis eiga slík fast- eignafélög og eins íslensku lífeyris- sjóðirnir. Í fyrra keyptu lífeyrissjóðir til dæmis hús Íslenskrar erfðagrein- ingar í Vatnsmýrinni af félagi í eigu lögmannsins Jóhanns Halldórssonar. Arion fjármagnar DV.is greindi frá því fyrir skömmu að Róbert væri nú orðinn skráður eigandi lyfjaverksmiðjunnar. Þetta sagði Árni Harðarson, lögmaður og starfsmaður Alvogen, í samtali við DV. Húsið hafði verið í eigu Fast- eignafélagsins Sæmundar ehf. Fast- eignafélagið Sæmundur ehf. var í eigu fyrirtækisins Aztiq Pharma ehf. að 60 prósenta leyti og Alvogen Iceland ehf. að 40 prósenta leyti. Azt- iq Pharma er í eigu félags á Cayman- eyjum sem heitir Aztiq Cayman L.P. Ekki liggur fyrir hvað félag Róberts heitir sem á húsið í dag. Árni sagði að eignarhaldið á hús- inu hefði breyst án þess að það hefði verið tilkynnt til hins opinbera. Eins og er að minnsta kosti þá heldur Ró- bert Wessman, eða félag í hans eigu, utan um fasteign í byggingu sem er á lóð sem Reykjavíkuborg lét fyrirtæki sem hann starfar fyrir fá. Fjármögnunin á byggingu hússins stendur utan við fjármögnun á starf- semi Alvogen sjálfs hér á landi, það er að segja á tækjum í lyfjaverksmiðj- una og starfsmannakostn- aði og annað slíkt. Arion banki fjármagnar fram- kvæmdir við húsið, líkt og DV hefur greint frá. Tæplega 200 milljóna króna skuldabréf frá Reykjavíkurborg hvílir á fyrsta veðrétti eignar- innar í Vatnsmýrinni og 5,2 milljarða trygginga- bréf frá Arion banka er á öðrum veðrétti. Krafan frá Reykjavíkurborg er vegna frestaðra gatnagerðar- gjalda sem eigandi hússins þarf að greiða með tíð og tíma en tryggingarbréf Arion er vegna fjár- mögnunar hússins. Gert ráð fyrir öðrum eiganda Framkvæmdir við byggingu hússins hófust í nóvember á síðasta ári. Hús- ið verður um 13 þúsund fermetrar að stærð og er gert ráð fyrir að það verði opnað í ársbyrjun 2016. Lóð- in undir húsið kemur frá Reykja- víkurborg í gegnum Vísindagarða Háskóla Íslands. Reykjavíkur- borg lét Vísindagarða fá lóð- ina svo það félag gæti látið Alvogen hafa hana und- ir verksmiðjuna. Í fréttil- kynningu frá Reykjavíkur- borg um framkvæmdina kom fram að Dagur B. Egg- ertsson, þáverandi for- maður borgarráðs og nú- verandi borgarstjóri, hefði haft „frumkvæði að viðræð- um Reykjavíkurborgar við Alvogen um að velja sér stað í Reykjavík.“ Í svari frá Pétri Ólafssyni, aðstoðar- manni Dags B. Eggerts- sonar, segir: „Það var beinlínis gert ráð fyrir því að Alvogen ætti ekki húsið.“ Hins vegar hafi ekki legið fyrir á þeim tíma hver myndi eiga húsið en einungis að það yrði ekki Alvogen. Eiga í viðræðum Í svarinu frá Alvogen kemur fram að viðræður standi nú yfir við aðila sem hugsanlega vilji kaupa húsið. „Þegar verkefnið fór af stað og framkvæmdir hófust var ákveðið að húsið yrði rek- ið af sérhæfðum fyrirtækjum í rekstri fasteigna og Alvotech einbeitti sér að fjárfestingu í þróun líftæknilyfja og uppbyggingu á starfsemi félagsins á Íslandi. Alvotech á nú í viðræðum við fasteignafélög sem hafa sýnt því áhuga að taka yfir rekstur hússins og má búast við að frá því verði gengið á næsta ári þegar nær dregur að verk- lokum hússins.“ Í svarinu frá Alvogen kemur fram að heildarfjárfesting fyrirtækisins á Íslandi á næstu árum verði um 75 milljarðar króna en þar af hafi nú þegar verið sett inn hlutafé í dóttur- félag Alvogen fyrir 6,5 milljarða króna. Þetta hlutafé stendur alfarið utan við fjármögnun á húsinu sjálfu. Því er um að ræða tvö aðskilin verk- efni, annars vegar byggingu og fjár- mögnun hússins og svo hins vegar starfsemi og rekstur lyfjaverksmiðj- unnar. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Rætt við fagfjárfesta Róbert Wessman, eigandi lyfjaverksmiðjunnar, á í viðræðum við fagfjárfesta um kaup á verksmiðjunni í Vatnsmýrinni. „Alvotech á nú í viðræðum við fasteignafélög sem hafa sýnt því áhuga að taka yfir rekstur hússins. Gert ráð fyrir öðrum eiganda Gert var ráð fyrir því að annar eigandi en Alvogen ætti lyfja- verksmiðjuna þegar Reykjavíkuborg sá þeim fyrir lóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.