Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Page 12
Vikublað 11.–13. nóvember 201412 Fréttir
F
jölgun er á biðlistum eftir
nær öllum völdum skurðað-
gerðum sem Embætti land-
læknis hefur reglubund-
ið eftirlit með. Þannig hefur
biðtími eftir aðgerðum einnig lengst
síðustu misseri. Þetta kemur fram
í yfirliti landlæknis um stöðu á
biðlistum eftir völdum aðgerðum á
sjúkrahúsum í október síðastliðn-
um. Lengst er biðin eftir skurðað-
gerð á augasteini en biðlistinn hefur
lengst jafnt og þétt á undanförnum
árum. Fjölgunin nemur rúmum 42
prósentum samanborið við stöðuna
í október í fyrra. Nú eru rúmlega tvö
þúsund einstaklingar á biðlista og
hafa þeir aldrei verið fleiri. Hjá Sjón-
lagi er áætluð bið eftir aðgerð tæp-
lega þrjú ár.
Önnur verkefni lengja biðina
Embætti landlæknis birtir reglu-
lega upplýsingar um biðlista eft-
ir völdum skurðaðgerðum. Ein-
göngu eru birtar upplýsingar um
fjölda þeirra sem beðið hafa leng-
ur en þrjá mánuði eftir aðgerð. Eins
og áður segir er áætluð bið hjá Sjón-
lagi, eftir skurðaðgerð á augasteini,
nú tæplega þrjú ár en þess má geta
að styst er biðin á Sjúkrahúsinu
á Akureyri, eða um níu mánuðir.
Samkvæmt upplýsingum frá augn-
deild Landspítala þá eru skýringar
á lengingu biðlista þar að önnur
verkefni, svo sem lyfja inndælingar
vegna augnbotnahrörnunar, hafi
minnkað rými fyrir augasteinsað-
gerðir.
Biðlisti tvöfaldaðist á innan
við ári
Af öðrum aðgerðum má nefna að
þeim sem beðið hafa eftir gerviliða-
aðgerð á mjöðm hefur fjölgað nokk-
uð, eða um rúm tíu prósent frá því
í júní á þessu ári. Sama á við um þá
sem eru á biðlista eftir gerviliðaað-
gerð á hné, en þeim hefur fjölgað um
14,5 prósent á sama tíma. Áætlaður
biðtími eftir gerviliðaaðgerð á hné er
nú eitt og hálft ár en rúmir sjö mánuð-
ir eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm.
Konum sem beðið hafa lengur
en þrjá mánuði eftir legnámi hef-
ur fjölgað úr 91 í 119 frá því í júní
síðastliðnum. Fjölgun hefur einna
helst orðið á Landspítala en þar
er nú áætlaður biðtími eftir að-
gerð 33 vikur, eða um átta mánuð-
ir, samanborið við þrjár til sex vikur
á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Þá hefur einstaklingum sem bíða
eftir aðgerð vegna kviðslits fjölgað
allnokkuð og er áætlaður biðtími
á Landspítala nú hálft ár. Einnig
fjölgar enn á biðlista eftir gallsteina-
aðgerð. Nú eru 97 á biðlistanum
sem er um 33 prósenta fjölgun frá
því í júní og rúmlega tvöfalt fleiri en
í febrúar á þessu ári.
Fjöldi á biðlista eftir hjarta- og/
eða kransæðamyndatöku er svip-
aður og á sama tíma fyrir ári en alls
bíða 114 einstaklingar eftir að kom-
ast í myndatöku. Er þetta eina til-
vikið þar sem ekki fjölgaði á biðlist-
um af þeim aðgerðum sem Embætti
landlæknis skoðar. Hafa ber í huga
að einstaklingar sem þurfa bráða-
meðferð fara ekki á biðlistann. n
Biðlistar í aðgerðir lengjast Fjölgun
er á biðlistum eftir nær öllum völdum
skurðaðgerðum sem Embætti landlækn-
is hefur reglubundið eftirlit með.
Enn lengjast biðlistar
n Þetta eru biðtímarnir eftir aðgerðum n Allt að þriggja ára bið eftir sumum aðgerðum
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Nú eru rúm-
lega tvö þúsund
einstaklingar á biðlista og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
Skurðaðgerð á
augasteini – 3 ár
Aðgerð til
brjóstaminnkunar
– 10 mánuðir
Gerviliðaaðgerð
á hné – 1 ár
og 6 mánuðir
Brottnám hvekks
um þvagrás karla
– 4 mánuðir
Legnámsaðgerð
– 8 mánuðir
Gerviliðaaðgerð
á mjöðm
– 7 mánuðir
Brjósklos-
aðgerð
– 1 mánuður
Aðgerðir á grindar-
holslíffærum kvenna
– 1 ár og 2 mánuðir
Gallsteina-
aðgerð
– 4 mánuðir
Ófrjósemisaðgerð
kvenna – 1 ár
Aðgerð vegna
kviðslits
– 6 mánuðir
Nýtt sjálfstætt
starfandi apótek
í Glæsibæ
Opnunartími
Virka daga: 8:30 til 18:00
Laugardaga: 10-14
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf