Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 15
Vikublað 11.–13. nóvember 2014 Fréttir Viðskipti 15
Rútufyrirtæki
Engeyinga mala gull
n Eignir ríflega 1.100 milljónum hærri en skuldir n Arðgreiðslur ár eftir ár
F
erðaþjónustufyrirtækin
Reykjavík Excursions og Kynn
isferðir, sem eru í meirihluta
eigu fyrrverandi aðalaeigenda
olíufélagsins N1, skiluðu rúm
lega 340 milljóna króna hagnaði í
fyrra samkvæmt nýjustu ársreikn
ingum þeirra. Fyrirtækin eiga og reka
fjölda langferðabifreiða sem notaðar
eru til að flytja ferðamenn um Ísland,
til dæmis á milli Reykjavíkur og Flug
stöðvar Leifs Eiríkssonar á Miðnes
heiði, og eins bjóða þau ferðamönn
um upp á skoðunarferðir til þekktra
ferðamannastaða eins og Þingvalla,
Gullfoss og Geysis. Segja má að
fyrir tækin tvö séu risarnir á þessum
markaði á Íslandi.
Stærstu eigendur fyrirtækjanna
eru eignarhaldsfélög í eigu fjöl
skyldna bræðranna Einars og Bene
dikts Sveinssona en þeir eru stund
um nefndir Engeyingarnir, þó að
Engeyingaættin telji vitanlega mik
inn fjölda manns. Eignarhalds
félög þeirra og barna þeirra fara
með meirihluta hlutafjár í félaginu
Alfa ehf. en það félag á móðurfélag
beggja ferðaþjónustufyrirtækjanna,
Hnetu ehf. Meðal eigenda eru félög
þriggja barna Einars Sveinssonar,
Hrólfs, Ástu Sigríðar og Benedikts,
og félög í eigu Jóns Benediktsson
ar, sonar Benedikts eiga einnig
hlut. Bjarni Benediktsson, formað
ur Sjálfstæðisflokksins og fjármála
ráðherra, er hins vegar ekki skráður
fyrir hlut í félaginu.
Framkvæmdastjóri fyrirtækj
anna heitir Jón Gunnsteinn Hjálm
arsson en hann starfaði áður hjá
N1.
Annar eigandi
Síðast þegar DV fjallaði um Kynnis
ferðir og eignarhaldsfélagið Hnetu,
í ársbyrjun 2011, var félagið alfarið
skráð í eigu eignarhaldsfélagsins Ís
dekks sem þá var í eigu Guðmund
ar Ásgeirssonar sem kenndur er við
Nesskip. Kynnisferðir voru í eigu
Hnetu, Ísdekk átti Hnetu og Guð
mundur átti Hnetu.
Fyrirtækið hafði rambað á barmi
gjaldþrots árið 2008 þegar endur
skoðandi þess gerði fyrirvara við
ársreikning þess í ljós 240 milljóna
króna taps og neikvæðrar eiginfjár
stöðu. Árið eftir kom til hlutafjár
aukning upp á 150 milljónir króna
og nýr eigandi, Hneta ehf., eignað
ist félagið. Áður hafði það verið í
eigu móðurfélags N1, BNT ehf., að
40 prósenta leyti auk þess sem Guð
mundur Arnaldsson átti 30 prósent
og Gísli Friðjónsson átti 17 prósent í
því. Aðaleigendur N1 hafa því eign
ast rútufyrirtækin tvö.
Mikil umskipti
Eftir eigendabreytingarnar, og auð
vitað í ljósi þeirrar miklu uppsveiflu
sem verið hefur í ferðamannageir
anum á Íslandi síðastliðin ár, hef
ur rekstur Kynnisferða og Reykjavík
Excursions blómstrað.
Samanlögð eiginfjárstaða félag
anna tveggja, eignir mínus skuld
ir, er rúmlega 1.100 milljónir króna.
Mikil tekjuaukning átti sér líka stað
hjá báðum félögunum á milli síð
ustu tveggja rekstrarára sem árs
reikningar liggja fyrir. Þannig nam
bein sala Reykjavík Excursions
rúmlega 2,7 milljörðum árið 2012
en nærri 3,4 milljörðum árið 2013
og aksturstekjur Kynnisferða námu
rétt rúmlega 1,5 milljörðum síðustu
fjóra mánuði ársins 2011 og fyrstu
átta mánuði ársins 2012 og tæplega
2,3 milljörðum króna síðustu fjóra
mánuði ársins 2012 og fyrstu átta
mánuði ársins 2013.
Ábyrgðir Landsbankans
Þá hefur Landsbankinn gengist í
ábyrgð fyrir Reykjavík Excursions út
af ferðaskrifstofuleyfi fyrirtækisins.
Um þetta segir í ársreikningi þess:
„Landsbanki Íslands hefur gengist
í ábyrgð fyrir félagið. Ábyrgðin er
vegna ferðaskrifstofuleyfis félagsins.
Fjárhæð ábyrgðarinnar í lok ársins
er kr. 3.441.561, en félagið hefur lagt
fram tryggingar fyrir þeirri fjárhæð.“
Sams konar ábyrgðir er að finna í
ársreikningi Kynnisferða ehf.
Arðgreiðslur ár eftir ár
Fyrirtækin tvö hafa líka getað
greitt út arð ár eftir ár í ljósi góðrar
stöðu sinnar. Reykjavík Excursions
greiddi 40 milljóna arð til Hnetu
árið 2013 og ráðgerði í ársreikningi
fyrir síðasta ár að greiða aðrar 40 út
á þessu ári. Kynnisferðir greiddu út
20 milljóna króna arð í fyrra en ætl
aði ekki að greiða út arð á þessu ári
samkvæmt ársreikningi fyrir 2013.
Þá greiddi Alfa ehf. út tæplega 30
milljóna króna arð til hluthafa í
fyrra og ætlaði að greiða út 50 millj
óna króna arð til hluthafa sinna í ár.
Rekstur Kynnisferða ehf. og
Reykjavík Excursions ehf. er því
afar góður um þessar mundir og
hefur vænkast mjög síðastliðin
fimm ár enda hefur verið gósentíð
í ferðamannageiranum á Íslandi á
tímabilinu. n
Áttu áður í Íslandsbanka Einar
Sveinsson og bróðir hans Benedikt voru
með stærstu eigendum Íslandsbanka fyrir
yfirtöku FL Group á bankanum 2007. Þeir
áttu einnig N1 en eiga nú meðal annars
Kynnisferðir og Reykjavík Excursions en
bæði fyrirtækin eru í miklum blóma.
Risinn á markaðnum
Reykjavík Excursions og
Kynnisferðir eru risarnir á
íslenska rútubílamarkaðnum.
Fyrirtækin eru eigu fyrrverandi
aðaleigenda N1 og fjölskyldna
þeirra sem gjarnan eru kölluð
Engeyingarnir. Mynd SigtRygguR ARi
„Landsbanki
Íslands hefur geng-
ist í ábyrgð fyrir félagið.
ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
E
kki liggur ennþá fyrir af hverju
hjónin Svanhildur Nanna Vig
fúsdóttir og Guðmundur Örn
Þórðarson ákváðu að selja
frá sér meirihluta í félaginu Hedda
eignarhaldsfélagi ehf., sem átti allt
hlutafé í færeyska olíufélaginu P/F
Magni, árið 2011. Kaupendurnir
voru eignarhaldsfélög í eigu þeirra
Höllu Sigrúnar Hjartardóttur, Einars
Arnar Ólafssonar og Kára Þórs Guð
jónssonar.
Út frá ársreikningum félaga þeirra
keyptu þau þrjú hlutina í Heddu á
24 milljónir króna. Í fyrra seldu þau
Halla Sigrún, Einar Örn og Kári Þór
hins vegar hlutina í Heddu á meira
en 800 milljónir króna. Einung
is rúmlega tvö ár liðu frá kaupum á
24 milljónir króna til sölu á meira en
800 milljónir króna.
Fjallað hefur verið um viðskipt
in síðastliðna daga í kjölfarið á
frétt Morgunblaðsins um hagnað
þeirra þriggja á viðskiptunum. Ein
ar Örn, Halla Sigrún og Kári Þór voru
starfsmenn fyrirtækjaráðgjafar Ís
landsbanka sem seldi þeim Svan
hildi Nönnu og Guðmundi Erni
meirihluta í olíufélaginu Skeljungi
skömmu fyrir efnahagshrunið 2008.
Í apríl 2009 keyptu þau svo P/F Magn
af þrotabúi Fons eftir að Íslands
banka hafði láðst að selja fyrirtækið.
Rúmum tveimur árum síðar eignuð
ust þau Einar Örn, Halla Sigrún og
Kári Þór svo hlut í Heddu sem þau
græddu mikið á við sölu fyrirtækis
ins til lífeyrissjóða í fyrra.
DV hefur gert árangurslausar
tilraunir til að ná tali af Svanhildi
Nönnu Vigfúsdóttur til að spyrja
hana um af hverju þau hjónin
ákváðu að selja þremenningunum
hlut í Heddu fyrir svo lágt verð þegar
ljóst var að færeyska olíufélagið væri
miklu meira virði. Þær tilraunir hafa
ekki borið árangur. n ingi@dv.is
Salan á Heddu enn óljós
Margfölduðu fjármuni sína á röskum tveimur árum
Liggur enn ekki fyrir Enn
liggur ekki fyrir af hverju eigendur
Skeljungs seldu þremur fyrrverandi
starfsmönnum Íslandsbanka hlut
í færeyska olíufélaginu P/F Magni
árið 2011. Þeir högnuðust svo
gríðarlega á viðskiptunum rúmum
tveimur árum síðar.
Odd seldi fyrir
50 milljónir
Norski listmálarinn Odd Nerdr
um seldi listaverk fyrir rúmlega 50
milljónir króna í gegnum íslenskt
fyrirtæki sitt í fyrra. Þetta kem
ur fram í ársreikningi fyrirtæk
is hans, Hestfells ehf., sem skilað
hefur verið til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra. Félagið tapaði
samt ríflega 26 milljónum króna
en á eignir upp á nærri 860 millj
ónir króna.
Nerdrum, sem þekktastur
er fyrir að keypt gamla Borgar
bókasafnið, fékk íslenskan ríkis
borgararétt og bjó hér á landi til
ársins 2007. Ingunn Werners
dóttir keypt hús gamla Borgar
bókasafnsins þá af honum fyrir
tæpar 330 milljónir króna. Hann
flutti hins vegar aftur til Noregs
árið 2007 sem íslenskur ríkis
borgari. Hann hefur búið í Noregi
og Frakklandi síðastliðin ár.
Nerdrum hefur greint frá því
að norsk yfirvöld hafi elt hann
vegna fjármála hans frá því hann
kom fyrst fram á sjónvarsviðið
sem myndlistarmaður. Árið 2012
var Nerdrum dæmdur í þriggja
ára fangelsi í undirrétti í Nor
egi fyrir meint skattalagabrot á
tímabilinu 1998 til 2002 en þá á
hann að hafa látið ógert að greiða
skatta af um 300 milljónum króna
sem hann fékk fyrir 32 málverk
sem hann seldi á tímabilinu. Fyrr
á árinu sneri Hæstiréttur Noregs
þessum dómi við og vísaði aftur
til undirréttar. DV hefur ekki upp
lýsingar um hvar málið er statt.
DV hefur áður greint frá því
íslensk skattyfirvöld hafi einnig
verið á eftir Nerdrum vegna van
greiðslu á opinberum gjöldum.
Sumarið 2011 ætlaði tollstjóri
að krefjast gjaldþrotaskipta á
eignarhaldsfélagi í eigu Nerdrums
sem heitir Oddur N ehf. vegna
tugmilljóna króna skattaskuld
ar. Þetta félag rann svo inn í
eignarhaldsfélagið sem hér um
ræðir, Hestfell ehf., og er stærsti
hluti eigna þess tilkominn frá
Oddi.
Í ársreikningi félagsins fyrir
árið í fyrra er gerð tillaga um arð
greiðslu upp á rúmlega 50 millj
ónir króna en félagið greiddi Odd
tæplega 53 milljóna króna arð í
fyrra vegna rekstrarársins 2012.
Ræddu
viðskipti og
sjálfbærni
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis
ráðherra átti á mánudag fund með
japönskum starfsbróður sínum,
Fumio Kishida, í Tókýó en ráð
herra heimsækir Japan dagana
10.–13. nóvember. Ræddu ráð
herrarnir áratugalöng samskipti
ríkjanna, viðskiptamál, aukið sam
starf Íslands og Japans um málefni
norður slóða og svæðisbundin al
þjóðamál, meðal annars í Asíu.
Utanríkisráðherra lagði áherslu
á samstarf ríkjanna á sem breiðust
um grunni, þjóðirnar eigi margt
sameiginlegt. Bæði löndin liggi á
flekaskilum þar sem jarðhræringar
hafa áhrif á líf íbúanna, þau búi
yfir auðlindum svo sem jarðhita og
sjávarfangi og bæði leggi áherslu á
sjálfbærni náttúruauðlinda.