Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Side 16
Vikublað 11.–13. nóvember 201416 Fréttir Erlent
Mannæta dó
eftir handtöku
Lögreglumenn í Blackwood í
Wales handsömuðu karlmann sem
myrt hafði 22 ára konu með því að
leggja sér hana sér til munns.
Manninum, Matthew
Williams, hafði nýlega verið
sleppt úr fangelsi. Hann þótti
mikill hrotti og hafði afplán-
að dóm fyrir ofbeldisglæpi.
Hann bjó í athvarfi í Blackwood,
tímabundnu húsnæði þar sem
hann hafði búið frá því að hann
var látinn laus.
Hann hafði lokkað konuna,
Cerys Yemm, 22 ára, með sér inn
á herbergi sitt með loforði um að
hringja á leigubíl fyrir hana svo
hún kæmist heim en sagðist þurfa
að fara á herbergið til að geta gert
það. „Hann ætlaði að éta hana
til dauða,“ segir í frétt Telegraph.
Hann hafði að sögn nágranna lagt
sér andlit konunnar til munns.
Lögreglumenn komu á vett-
vang eftir að nágranni hafði
samband. Þeir skutu á Williams
með rafbyssu og handtóku
hann. Stuttu síðar fékk hann
hjartastopp og lést í varðhaldi
lögreglunnar. Málinu hefur ver-
ið vísað til eftirlitsstofnunar lög-
reglunnar, sem mun kanna hvort
lögreglumenn hafi beitt Williams
of mikilli hörku við handtökuna.
Þarf að afplána
Dómur yfir breska almannateng-
linum Max Clifford, sem nýverið
var dæmdur í átta ára fangelsi
fyrir kynferðislega misbeitingu
ungra kvenna, stendur og verður
ekki styttur. Clifford hafði áfrýj-
að og óskað eftir sýknu eða styttri
afplánunartíma. Dómari taldi að
dómurinn væri sanngjarn í ljósi
alvarleika brotanna.
Clifford, sem er 71 árs, var
dæmdur fyrir brot sem áttu sér
stað á árunum 1966–1984. Yngsta
konan var 15 ára gömul.
Lesbíur ofsóttar
í Danmörku
L
ögreglan á Norður-Jótlandi
handtók á dögunum 39 ára
mann sem grunaður er um
að hafa ofsótt lesbíupar í smá-
bænum Mariager. Ofsóknirn-
ar stóðu yfir í þrjá mánuði. Konurn-
ar höfðu ákveðið að flytja frá bænum
ásamt tveimur ungum börnum sín-
um til að flýja ofsóknirnar. Maður-
inn sendi þeim hatursbréf þar sem
meðal annars var skrifað að þær
lifðu í synd og væru svín. Hann er
einnig grunaður um að hafa sett sorp
og hundaskít í garð fjölskyldunn-
ar. Önnur kvennanna, Tulle Krøer,
sagði í viðtali við DR að ofsóknirnar
hafi tekið mjög á fjölskylduna. „Við
sváfum illa og skiptumst á að vaka,“
sagði hún. Í fyrstu töldu konurnar
að ofsóknirnar tengdust ekki en eft-
ir því sem bréfin urðu fleiri og tónn-
inn í þeim ofbeldisfyllri gerðu þær
sér grein fyrir að málin tengdust. Eft-
ir að nafnlaust bréf barst á leikskóla
hjá öðru barninu með sama tóni og í
bréfunum sem höfðu komið heim til
þeirra ákváðu þær að flytja.
Nei takk við hatursglæpum
Eftir að maðurinn var handtek-
inn söfnuðust bæjarbúar Mariager
saman á torgi bæjarins með blys og
ýmis ljósfæri til að lýsa yfir stuðn-
ingi við fjölskylduna. „Þetta var
glæpur eins manns. Nú er búið að
handtaka hann og við vonum og of-
sóknunum sé lokið. Mariager er ekki
svona bær. Hann er bær þar sem
alltaf er pláss fyrir mismunandi fólk
og þannig viljum við að það verði,“
sagði einn skipuleggjandi mótmæl-
anna í viðtali við Nordjyske Medi-
er. Næsta laugardag ætla bæjarbúar
að koma aftur saman og ganga um
bæinn undir yfir skriftinni Nei takk
við hatursglæpum og ofsóknum. Þá
verður regnbogafánum flaggað um
víða um bæinn.
Efla fræðslu
Málið vakti mikla athygli í Dan-
mörku og létu margir sig það
varða. Á meðan ofsóknirnar stóðu
enn sem hæst var fjallað um mál-
ið á vettvangi bæjarstjórnmál-
anna í Mariager. „Það er ánægju-
legt að sjá alls staðar; í sjónvarpi,
á Facebook og í dagblöðum að fólk
stendur með fjölskyldunni og vill
að þær búi áfram í Mariager,“ sagði
bæjarstjórinn. Hjá bæjarstjórn
var lagt til að fræðsla um samkyn-
hneigð og fjölbreytileika yrði efld.
Lars Henriksen, formaður Copen-
hagen Pride, samtaka samkyn-
hneigðra í Danmörku, tók und-
ir það. „Það þarf ekki aðeins að
fræða fólk í Mariager, heldur um
allt land.“ n
n 39 ára gamall maður handtekinn n Sendi fjölda hatursbréfa
„Við sváfum
illa og skipt-
umst á að vaka
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagny@dv.is „Þetta var
glæpur
eins manns
Stuðningur Bæjarbúar í
Mariager ætla að skreyta bæinn
með regnbogafánum um næstu
helgi og ganga saman um göturn-
ar. Myndin er úr safni. myND REutERS
Banatilræðið
óstaðfest
Yfirvöld í Írak telja að leiðtogi IS-
samtakanna, Abu Bakr al-Bag-
hdadi, gæti hafa látist í loftárásum
Bandaríkjanna í Írak. Skotárás-
unum var beint sérstaklega gegn
leiðtogum samtakanna og þætti
andlát hans mikill sigur fyrir and-
stæðinga Íslamska ríkisins. Talið
er að það geti tekið nokkra daga
að fá staðfest að al-Baghdadi sé
látinn. Sá sem verður honum að
bana eða fangar hann fær í sinn
hlut 10 milljónir Bandaríkjadala.
L
ögreglan og saksóknari á Nýja-
Sjálandi hafa látið niður falla
ákæru á hendur trommara
áströlsku rokksveitarinnar
AC/DC, Phil Rudd. Hann var sak-
aður um að hafa reynt að ráða leig-
umorðingi til að ráða niðurlögum
tveggja manna.
Hann íhugar nú að stefna lög-
regluyfirvöldum á Nýja-Sjálandi.
Rudd er þó enn ákærður fyrir að hafa
eiturlyf í sinni vörslu og fyrir morð-
hótanir. Hann segir málið hafa verið
blásið upp í fjölmiðlum og kennir
lögregluyfirvöldum um að hafa eyði-
lagt líf sitt.
Ástæðan fyrir niðurfellingunni
er sögð vera skortur á sönnunar-
gögnum. Lögmaður Rudds segir
trommuleikarann hafa orðið fyrir
miklum skaða vegna málsins, í raun
óbætanlegum. Þá segir hann að
Rudd komi til með að takast á við
aðra liði ákærunnar af fullum þunga
og sagði fíkniefnamálið vera smá-
mál.
Maðurinn sem Rudd var sagður
hafa ráðið sem leigumorðingja segir
málið allt tekið úr samhengi og blás-
ið upp í fjölmiðlum. Hann sé fjöl-
skyldumaður, ekki leigumorðingi.
Hann taldi þó ekki rétt að skamma
lögregluna og sagði hana aðeins hafa
verið að sinna starfi sínu.
Rudd spilaði með AC/DC frá 1975
þar til hann var rekinn árið 1983.
Hann gekk aftur til liðs við þá árið
1994 og hefur spilað með þeim síð-
an. Hann átti að fara með sveitinni
á tónleikaferðalag í vetur en ný-
verið sendi AC/DC frá sér plötuna
Rock Bust. Þrátt fyrir þessar yfirlýs-
ingar hans hefur lítið borið á honum
í kynningarefni AC/DC og var hann
hvorki að finna í auglýsingum fyr-
ir tónleikaferðalagið eða plötuna né
í tónlistarmyndböndum sveitarinn-
ar. n
AC/DC trommari réð ekki leigumorðingja
Lögregla fellur frá hluta af ákæru en Phil Rudd er þó sakaður um hótanir
Fallið frá einu
ákæruatriði
„Leigumorðinginn“
svokallaði segist
raunar vera fjöl-
skyldumaður.