Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Blaðsíða 17
Vikublað 11.–13. nóvember 2014 Fréttir Erlent 17
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
Verð: 990.000 kr.
Ford Focus Trend NS134
Skráður apríl 2005, 1,6i bensín, beinskiptur
Ekinn 106.000 km.
Verð: 3.290.000 kr.
Ford B-MAX Titanium TLK55
Skráður júní 2013, 1,6i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 17.000 km.
400.000 KR.
FERÐAFJÖR
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 1. nóvember 2014 til og með 22. desember 2014 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2014 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
* GJAFABRÉF FRÁ WOWair
NOTAÐIR BÍLAR
Vertu með!
Hvert myndir
þú fara?
Í ábyrgð
Verð: 7.950.000 kr.
Volvo XC60 Summum D4 ZHZ45
Skráður maí 2014, 2,4TDi dísil, sjálfskiptur
Ekinn 32.000 km.
Í MIKLU ÚRVALI
Í ábyrgð
Of drukkinn til að
sprengja upp skóla
n ungur piltur ætlaði að myrða foreldra sína og samnemendur n segist hafa sætt áralöngu einelti
s
extán ára drengur sem
hugðist sprengja upp skól-
ann sinn í Bandaríkjum var
of ölvaður til að muna eft-
ir því að setja sprengiefn-
in í bakpokann sinn. Sash Alex-
ander Nemphos gengur í George
Washington Carver- lista- og tækni-
skólann í Towson í Maryland. Á
allraheilagramessu hugðist hann
taka koma fyrir tveimur sprengjum
í skólanum. Hann hafði ætlað sér að
stela byssu í eigu föður síns og nota
hana til að drepa foreldra sína, sam-
nemendur, kennara og lögreglu-
mann skólans.
Of drukkinn
Áður en hann lagði af stað í skól-
ann fékk pilturinn sér sterkt áfengi
og varð fljótlega mjög ölvaður
og ringlaður. Hann gleymdi því
sprengiefninu heima og ákvað að
reyna aftur næsta mánudag á eftir.
Það gekk sem betur fer ekki eftir.
Yfir helgina hafði hann gert sér
leik að því að hnupla úr bifreiðum
sem stóðu fyrir utan veitingastað í
Towson. Hann hafði ekið þangað
á fjölskyldubílnum og starfsmenn
veitingastaðarins tóku eftir honum
þar sem hann sniglaðist í kringum
bílana. Þeir vísuðu lögreglunni á
hann og gáfu upp bílnúmerið.
Lögreglan mætti að heimili
Nemphos og yfirheyrði drenginn,
sem þá var ölvaður og illa á sig kom-
inn. Faðir hans tók þá einn lög-
reglumanninn eintali, sagði honum
að byssa í hans eigu væri horfin og
að hann teldi líklegt að sonur hans
hefði tekið hana. Byssuna hefði
hann geymt á vinnustað sínum en
hún horfið nokkrum mánuðum fyrr.
Byssan fannst í herbergi piltsins,
vandlega falin undir rúmi í plast-
kassa. Pilturinn játaði þjófnaðinn og
á endanum greindi hann þeim frá
heimatilbúnum sprengjum. Þeim
hafði hann komið fyrir í svefnher-
bergi sínu, fyrir aftan kommóðu.
Játaði
„Þetta voru illa gerðar sprengjur.
Hann hafði notað hluti sem auð-
velt er að nálgast við gerð þeirra.
Þeir fundu einnig efni og verkfæri
sem hann hefði getað notað til að
útbúa fleiri sprengjur,“ segir lög-
reglan í Maryland. Við yfirheyrslur
játaði Nemphos að hann hefði ætlað
að myrða foreldra sína. Eftir ódæð-
ið hafði hann hugsað sér að fara ak-
andi að skólanum og myrða lögreglu-
þjón sem þar starfar. Hann ætlaði sér
svo að nota byssuna til að myrða sam-
nemendur sína og kennara. Sprengj-
unum ætlaði hann svo að koma fyrir
og sprengja upp skólann.
Brotnaði saman
Við yfirheyrslur brotnaði Nemphos
saman. Pilturinn bar því við að
hann hefði mátt sæta gríðarlegu of-
beldi og einelti í skólanum. Hann
hefði um langa hríð reynt að ná
eyrum kennara sinna sem létu ein-
eltið sig engu varða. Skólinn kann-
ast ekki við eineltið og segist vinna
samkvæmt eigin reglum þegar
slík mál koma upp. Gerendur og
þolendur eigi að fá aðstoð.
Nemphos verður ákærður sem
fullorðinn maður en ekki sem barn.
Hann mun verða ákærður fyrir
vörslu sprengiefna, byssunnar og
þjófnað á henni. n
ritstjorn@dv.is
Ákærður Pilturinn verður ákærður fyrir
vörslu vopna og sprengiefna.
„Þetta voru illa
gerðar sprengjur.
Skólinn Sash Alexander Nemphos leið illa í skólanum og sagði kennara sína hafa leyft
einelti að viðgangast.
Brosti eftir kröfu
um geðmat
Bankamaður ákærður fyrir morð á 2 vændiskonum
B
reski bankamaðurinn, Rurik
Jutting, sem sakaður er um
að hafa orðið tveimur indó-
nesískum vændiskonum að
bana í íbúð sinni í Hong Kong gekk
brosandi úr úr réttarsal á mánudag.
Honum hefur verið gert að undir-
gangast geðmat og verður meðferð
málsins því frestað um tvær vikur á
meðan sálfræðingar og geðlæknar
taka stöðuna. Óvíst er hvort hann er
á annað borð sakhæfur.
Líkt og DV greindi frá á dögunum
hefur Rurik Jutting, verið ákærður fyr-
ir að hafa myrt þær Seneng Mujiasih,
29 ára, og Sumarti Ningsih, 25 ára. Lík
hinnar síðarnefndu fannst í ferða-
tösku á svölum Juttings í Hong Kong.
Það var nágranni hans sem hringdi á
lögreglu og lét vita af morðunum.
Jutting var þekktur á vændis-
húsum, meðal annars í Angeles á
Filippseyjum, fyrir að vera reglu-
legur gestur og afar rausnarlegur.
Hann átti í ástarsambandi við eina
dansmey í Angeles en upp úr sam-
bandinu slitnaði fyrr á þessu ári.
Fyrir dómi á mánudag var leitt
fram vitni sem sagðist hafa hitt
Jutting nokkru áður en hann fór
heim með konunum tveimur. Vitn-
ið segir Jutting hafa gengið út frá
því að hún væri vændiskona og að
hann hefði boðið henni heim. Hún
afþakkaði og sagðist aðeins vera að
skemmta sér með vinum sínum.
Er Jutting var leiddur út úr dóm-
sal var hann skælbrosandi, hló og
skríkti. Hann var fluttur aftur í fang-
elsi í Hong Kong. n
Grunaður Þó Rurik Jutting sé alvar-
legur á svip hér segja blaðamenn The
Telegraph að hann hafi hlegið og bros-
að er hann var leiddur út úr dómsal.