Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Page 22
22 Umræða Vikublað 11.–13. nóvember 2014 Mission accomplished! Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Ö ryggisleysi hrjáir íslenska þjóð. Öryggisleysið er sam- ofið vantrú og vantrausti. Þetta er einhvers konar þjóðarsálarkreppa. Tölu- legar staðreyndir um batnandi hag, lítið atvinnuleysi, litla verð- bólgu, þolanlegan hagvöxt og fleira af þeim toga draga ekki úr kvíðanum. Slíkar tölur höfðu held- ur engin áhrif í tíð síðustu ríkis- stjórnar þótt þær endurspegluðu oft jákvæða þróun og nokkurn árangur í glímunni við eftirköst hrunsins. Tölurnar nú hafa lítið að segja á sama tíma og innviðir samfélagsins grotna niður. Heil- brigðiskerfið höktir, þrengingar eru í menntakerfinu, óróleiki er á vinnumarkaði og fólk fer úr landi í leit að betri kjörum og stöðugleika í daglegri tilveru. En samt sagði formaður Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi fyrir skemmstu: „Við finnum hvernig kjörin batna og krafturinn í atvinnulífinu leysist úr læðingi með stöðugleikanum og örygginu sem honum fylgir.“ Óleyst stjórnmálakreppa Hvað gerir fólk sem situr und- ir þessum mishljóm? Safnast það saman á Austurvelli líkt og forðum þegar reiðin gróf um sig í þjóðarsál- inni skömmu eftir hrun? Hvað vill öryggislaust fólk? Af hverju er það öryggislaust þegar stjórnvöld af- henda tugþúsundum fjölskyldna nærri 80 milljarða til lækkunar húsnæðisskulda? Öryggisleysið á ekki síður rætur í stjórnarfarinu en í þeim efnahagslegu þrenging- um sem hrunið árið 2008 kallaði yfir þjóðina. Fylgið reytist hratt og örugglega af ríkisstjórninni. Hið sama gerðist með síðustu ríkis- stjórn. Báðar eftirhrunsríkisstjórn- irnar glíma við sama vandann. Kjósendur eru vantrúaðir, tor- tryggnir, öryggislausir og þreyttir á stjórnmálunum. Farvegir þeirra til að tjá sig eru þröngir og tak- markaðir. Þeir kusu Besta flokkinn í borgarstjórnarkosningum 2010 og gáfu fjórflokknum þannig langt nef. Stór hluti horfði vonaraugum til móður allra kosningaloforða árið 2013 um skuldaniðurfærsluna miklu og kaus Framsóknarflokk- inn. Eitt af því sem veldur öryggis- leysinu er ósamfelldni í íslensk- um stjórnmálum. Sigri hrósandi stjórnarliðar höfðu í heitingum við andstæðingana þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð og kváðu eðlilegt að strika út og kalla aft- ur öll verk fráfarandi ríkisstjórn- ar. Öll! Afturkarlarnir. Hvað vildu menn kalla aftur? Tilraunir til þess að smíða nýja stjórnarskrá? Til- raunir til þess að treysta eignarrétt þjóðarinnar á auðlindum sínum? Tilraunir til þess að gefa þjóð- inni raunverulega valkosti í pen- ingamálum? Tilraunir til umbóta á stjórnkerfinu og stjórnsýslunni í samræmi við ábendingar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis? Krafa um siðbót Krafan um uppstokkun og siðbót íslenskra stjórnmála og viðskipta- lífs dofnar ekki og þeim fjölgar sem orðnir eru langeygir eftir stjórnmálum sem fylgja siðræn- um grundvallarreglum og skapa bærilega samfelldni fyrir líf og starf einstakinga, fjölskyldna og fyrirtækja. Þann 10. janúar 2009 birtist í Fréttablaðinu grein eftir Carsten Valgreen, fyrrverandi að- alhagfræðing Danske Bank, um leiðir til að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Valgreen hafði þrem- ur árum áður verið úthrópaður af ráðamönnum þjóðarinnar sem meðhöfundur Lars Christensen að frægri skýrslu á vegum Danske Bank. Skýrslan bar nafnið The Geyser Crisis og birtist í mars árið 2006. Skýrsluhöfundar töldu þar verulega hættu á bankahruni og alvarlegri efnahagskreppu. Í grein- inni í Fréttablaðinu sagði Valgreen meðal annars, eftir að verstu spá- dómar hans um íslenska efna- hagslífið höfðu ræst: „Ísland er lítið og einsleitt samfélag þar sem innbyrðis tengsl eru mikil. Þetta er bæði mikill styrkleiki og veikleiki. Þetta er rót kreppunnar. Slík sam- félagsgerð virkar næstum eins og fjölskylda eða eitt fyrirtæki. Úti- lokun tiltekinna vandamála og ákvörðun um að þagga þau nið- ur þróast mjög auðveldlega, og af því leiðir að erfitt er að grípa inn í þegar þau hafa hreiðrað um sig.“ Eva Joly hnykkti á þessu í grein í norska blaðinu Aftenposten 9. nóvember 2009: „Þegar þjóðir eru mjög litlar verður fólk barnalegt þegar kemur að samböndum og tengslum. Vinaböndin eru of þétt, nánast eins og í trúarsöfnuðum.“ Þarna er líklega vandinn í hnot- skurn. Við búum við ógagnsæi og erum uppfull grunsemda um að sömu klíkurnar og steyptu þjóð- inni í glötun hafi náð undirtökun- um í viðskiptalífinu á ný, stund- um með illa fengnu fé. Við finnum að klíkustjórnmálin hafa lítið lært af reynslunni og gætu sökum sér- hagsmunagæslu hæglega breitt yfir vandamál sem undir niðri krauma og gætu valdið okkur bús- ifjum á nýjan leik. n Öryggisleysi Jóhann Hauksson johannh@dv.is Kjallari „Við búum við ógagnsæi og erum uppfull grunsemda um að sömu klíkurnar og steyptu þjóðinni í glötun hafi náð undirtökunum. Leiðsögn Landsfeðrum sem tekst ekki að skapa öryggiskennd og lægja öldur „„Skipað gæti ég væri mér hlýtt“ var eitt sinn sagt. Vald forsætisráðherra er sem betur fer ekki svo alltumlykjandi að hann stjórni því hvenær almenningur tekur sér stöðu á Austurvelli. Ég ætla að mæta,“ segir Ólína Þorvarðardóttir varaþingmaður og svarar Sigmundi Davíð Gunnlaugs- syni, forsætisráðherra, sem ráðlagði mótmælendum að velja sér aðrar dag- setningar til mótmæla, en mánudaginn. Þá var skuldaniðurfærsla ríkisstjórnar- innar kynnt. Taldi Sigmundur ekki rétt að hóa fólki með ólíkar áherslur á ein og sömu mótmælin. „Svo er fólk hissa á að maður tali um eftirlitssamfélag,“ segir Eva Hauksdóttir. DV greindi frá því á sunnudag að lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu hefði borist tilkynning um grunsamlegt atferli konu sem sat lengi vel fyrir utan bensínstöð í borginni. Þegar lögreglumenn komu á vettvang áttuðu þeir sig á því að konan hafði komið sér fyrir fyrir utan bensínstöðina til að tengjast internetinu. Hún var því látin afskiptalaus. „já t.d. ef hún hefði verið að downloada einhverju ólöglega þá hefðu byssurnar komið að góðum notum,“ segir Kalmann Christer og tekur í sama streng og Eva Hauksdóttir. „Þessi maður lýsir best sóðanum í sjálfum sér. Til skammar gagnvart list,“ segir Kristinn Magnússon, en gjörningur Snorra Ásmunds- sonar hefur vakið mikla athygli. Þar stendur gína í sýningarrým- inu, með girt niður um sig og hefur Snorri nú makað XB, listabókstaf Framsóknar- flokksins, með saur á einn vegg. „Íslenskt markaðhagkefi í hnotskurn. Atvinnulífið lifir á skattfé borgaranna,“ segir Þór Saari, fyrrverandi alþingismaður í athugasemd við frétt þar sem fjallað er um Bílaleigur. Afsláttur frá vörugjöldum af bifreiðum sem keyptar eru af bílaleigum er nú þegar orðinn meiri en allt árið í fyrra. Þetta endurspeglar mikil innkaup bílaleiga í landinu á nýjum bílum þvert á það sem talsmenn bílaleiga og Samtaka ferðaþjónustunnar héldu fram árið 2012 þegar Alþingi áformaði að afnema ríkisstyrki í formi lægri vörugjalda fyrir bílaleigur með öllu. „Sammála,ekki vera hræsnarar og farið að virða mannréttindi. fasistastefna stjórnvalda er til skammar,“ segir Arnar Sigurðsson. Justine Ijeomah, fram- kvæmdastjóri mannréttinda- samtaka í Port Harcourt í Nígeríu hvetur íslensk stjórnvöld til þess að taka sér taki og skoða hælisumsóknir ofan í kjölinn 15 8 15 7 21 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.