Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Qupperneq 25
Neytendur 25Vikublað 11.–13. nóvember 2014
Einsleitt verð á iPhone 6 á Íslandi
n Mikil eftirspurn eftir þessum dýru símum n Mesti verðmunurinn aðeins 3,8 prósent
Þetta kostar iPhone 6
Hver er munurinn á 6 og 6 Plus?
Þetta kostar iPhone 6 Plus
iPhone 6 16 GB 64 GB 128 GB
Síminn 119.900 kr. 134.900 kr. 149.900 kr.
Vodafone 119.990 kr. 134.990 kr. X
Nova 119.990 kr. 129.990 kr. X
Elko 118.995 kr. 133.995 kr. X
iSiminn.is 119.900 kr. 134.900 kr. 149.900 kr.
Epli 119.990 kr. 134.990 kr. 149.990 kr.
iStore 119.900 kr. 134.900 kr. 149.900 kr.
Macland 119.990 kr. 134.990 kr. 149.990 kr.
Öll verð fengin af vefsíðum fyrirtækja þann 6. nóvember 2014.
iPhone 6 Plus 16 GB 64 GB 128 GB
Síminn 134.900 kr. 149.900 kr. 164.900 kr.
Vodafone 134.990 kr. 149.990 kr. X
Nova 129.990 kr. 149.990 kr. X
Elko 133.995 kr. 148.995 kr. X
iSiminn.is 134.900 kr. 149.900 kr. 164.900 kr.
Epli 134.990 kr. 149.990 kr. 164.990 kr.
iStore 134.900 kr. 149.900 kr. 164.900 kr.
Macland 134.990 kr. 149.990 kr. 164.990 kr.
Öll verð fengin af vefsíðum fyrirtækja þann 6. nóvember 2014.
Lítið að marka uppgefna
endingu Apple
Rafhlöður orðnar betri í iPhone 6 en langt í frá þær bestu
Apple steig fram á dögunum með djarfar
fullyrðingar um að rafhlöðuending í iPho-
ne 6- og 6 Plus-símunum hefði verið bætt
umtalsvert. Rannsóknir hafa hins vegar
sýnt að þó að rafhlöðurnar séu nú betri en
á eldri símum fyrirtækisins þá fer því fjarri
að þær endist jafn lengi og Apple fullyrðir.
Hin virta neytendasíða Consumer
Reports prófaði símana og þar kom
iPhone 6 Plus ágætlega út og náðust 17
klukkustundir af taltíma á einni hleðslu.
Minni útgáfan, iPhone 6, entist í 10 tíma.
Þetta er umtalsvert minna en Apple hafði
lofað en uppgefinn endingartími fyrir
iPhone 6 Plus var 24 tímar og 14 tímar fyrir
iPhone 6 við bestu aðstæður.
En þrátt fyrir þessi vonbrigði þá koma
iPhone 6-símarnir, þá sérstaklega 6 Plus,
talsvert betur út en forverinn, iPhone 5S, í
sama prófi sem náði aðeins átta tímum.
Apple á þó langt í land með að ná
ná keppinautunum LG G3 og Samsung
Galaxy S5 í rafhlöðuendingu sem skila 19
og 20 tímum af taltíma á einni hleðslu.
Consumer Reports bendir á að
stærsta byrðin á rafhlöðu snjallsíma
geti verið 3g- og 4g-samband við
dreifistöðvar símafyrirtækjanna.
Snjallsímar þurfa að vera í stanslausu
sambandi við stöðvarnar og símarnir
eyði meiri orku í að ná sambandi þegar
skilyrði eru slæm. Fjarlægð, veður eða
hindranir geta þar haft áhrif. Til að
bæta þetta upp nota símarnir meira afl
til að ná sambandi. Prófanir Consumer
Reports sýndu að við kjörskilyrði (fimm
punkta samband) hafi náðst 24 tíma
nýting á síma frá Samsung og LG en
þegar merkið var slæmt (0–1 punktur)
hafi nýtingin hrapað niður í tæpa 6 tíma.
Þola meira en margur heldur
iPhone 6 Plus ekki jafnviðkvæmur og talið var
Netheimar loguðu eftir að myndband,
sem sýndi mann beygja iPhone 6 Plus
með handafli, birtist á Youtube. Símarnir
voru þá nýkynntir og kynningareintök
komin í umferð.
Neytendasíðan Consumer Reports
lagðist hins vegar í vísindalega rann-
sókn sem sýndi að flestir þessara stóru
snjallsíma eru ekki jafnviðkvæmir og
margur gæti haldið. Álagspróf voru gerð
með þar til gerðu tæki á sex tegundum af
snjallsímum. Iphone 6, 6 Plus, LG G3, Sam-
sung Galaxy Note 3 og HTC One (M8) auk
þess sem iPhone 5 var prófaður. Með því
var fundið út hversu mikið álag þarf til að
beygla símana varanlega. Niðurstöðurnar
voru nokkuð áhugaverðar, meðal annars
kom í ljós að iPhone 6 skorar lægra en 6
Plus þrátt fyrir stærðarmun. Það þarf þó
90 pund, 40 kíló, af þrýstingi til að beygla
iPhone 6 Plus.
Consumer Reports segir að þrátt fyrir
að þetta séu ekki sterkustu símarnir á
markaðnum þá virðist sem svo að allt tal
um alvarlegan hönnunargalla sé orðum
aukið. Til samanburðar er bent á að
Apple gerir sambærilegt próf til að mæla
sveigjanleika iPhone 6 Plus sem miðar
við rúmlega 25 kílóa álag. Próf Consumer
Reports sýnir að síminn þolir töluvert
meira en það.
Prófanir Consumer Reports á hverjum
síma fóru þannig fram að símunum var
komið fyrir í svokölluðu Instron-álags-
mælingartæki. Byrjað var á að setja 10
punda álag á hvern síma í 30 sekúndur og
var það álag hækkað um 10 pund þar til
símarnir tóku að afmyndast varanlega.
Prófinu var lokið þegar skjárinn fór að
losna frá hulstrinu.
Samsung Galaxy Note 3 kom best út
úr prófunum en hann þoldi 150 punda, 68
kg, álag.
Allir á svipuðum slóðum Verð á nýju
iPhone 6- og 6 Plus-símunum frá Apple
er mjög svipað milli verslana hér á landi.
Mestur er verðmunurinn á 64 GB-útgáfunni
af iPhone 6, og 16 GB-útgáfunni af iPhone
6 Plus, eða 3,8% milli verslana. Söluaðilar
segja álagningu lága. Mynd ReuteRs
boðið væri upp á kaupauka með
seldum iPhone 6 símum til 1. des-
ember.
Afhending undir væntingum
Þær upplýsingar fengust hjá versl-
unum að iPhone 6 sé vinsælli en
6 Plus en sá síðarnefndi sé frekar
valinn af þeim sem þurfa stærri
síma starfs síns vegna. Flestir fá
sér þá 16 GB-útgáfuna af iPhone 6,
en það kann að breytast þegar all-
ar verslanir verða búnar að fá all-
ar tegundir símanna. Eins og gefur
að skilja þá annar Apple ekki eftir-
spurn svona fyrst um sinn þar sem
allir eru að sækjast eftir því að fá
þessa eftirsóttu síma í verslanir sín-
ar. Hjá Elko segja menn að vöruaf-
hending hafi alls ekki verið í takt við
væntingar. n
tæknilegar upplýsingar iPhone 6 iPhone 6 Plus
Hæð/Breidd/Þykkt í mm: 138,1/67/6,9 158,1/77,8/7,1
Þyngd: 129 gr. 172 gr.
skjástærð: 4,7'' 5,5''
skjáupplausn: Retina HD 1334x750 pixla/326 ppi Retina HD 1920x1080 pixla/401 ppi
Örgjörvi: Apple A8 1.4 GHz Dual Core Apple A8 1.4 GHz Dual Core
Minni: 16, 64 eða 128 GB 16, 64 eða 128 GB
Vinnsluminni: 1 GB 1 GB
Myndavél (bak): 8 MP iSight, 3264x2448 pixla 8 MP iSight, 3264x2448 pixla með
optical image stabilization
Myndavél (framan): 1,2 MP 1280x960 pixla 1,2 MP 1280x960 pixla
Myndbandsupptaka: 1080 pixla 60 fps,720p 240 fps 1080 pixla 60 fps, 720p 240 fps |
Rafhlaða: Li-Po 1810 mAh allt að 14 klst taltími á 3G Li-Po 2915 mAh allt að
24 klst taltími á 3G
eins og litríkt sælgæti Tide var braut-
ryðjandi í að setja þessa þvottaefnispúða á
markað en síðan hafa fleiri framleiðendur
gert slíkt hið sama. Eins og sjá má er erfitt
að sjá hvort þarna sé um að ræða sælgæti
eða baneitrað þvottaefni.
Þvottaefni sem lítur út eins og nammi skapar hættu
Ekki vitað til þess að börn hér á landi hafi gleypt umdeilda púða
E
ngin tilfelli voru skráð hjá Eitr-
unarmiðstöð Landspítalans í
fyrra um að börn hefðu gleypt
svokallaða þvottaefnispúða
sem líta út eins og sælgæti en eru
baneitraðir. Rúmlega 17 þúsund til-
felli, þar sem börn yngri en sex ára
höfðu gleypt þessa poka, voru til-
kynnt til heilbrigðisyfirvalda í Banda-
ríkjunum á árunum 2012 og 2013.
Samkvæmt upplýsingum frá Eitr-
unarmiðstöðinni þá er skráning
þessara mála þó ekki fullkomin hér
þar sem tilfelli þar sem foreldrar eða
forráðamenn fara með barn beint á
slysadeild eða bráðamóttöku barna
séu ekki skráð hjá Eitrunarmiðstöðv-
arsímanum sem fólk getur hringt í
til að fá ráðgjöf. Því sé ekki hægt að
segja með fullri vissu að ekkert tilfelli
hafi orðið. Þó hafi komið upp tilfelli
þar sem fólk leitaði aðstoðar eftir að
hafa komið að barni sem hélt á hefð-
bundnu þvottaefni og grunur lék á að
það hefði hugsanlega verið búið að fá
sér af því.
Mikið er fjallað um þessa þvotta-
efnispúða í fjölmiðlum í Bandaríkj-
unum eftir að skýrsla kom út sem
sýndi að fjöldi tilfella þar sem börn
neyti innihalds þessara púða jafngildi
einu barni á dag. Um er að ræða upp-
leysanlega glæra belgi sem settir eru
í þvottavélina og innihalda nákvæm-
lega það magn þvottaefnis í fljótandi
formi sem þarf í eina þvottavél. Efnið
er vanalega kennt við þvottaefn-
isframleiðandann Tide sem neyddist
til að gera breytingar á umbúðum
sínum. Umbúðirnar voru gagnsæjar
og litríkar en belgirnir litu út eins og
hlaup eða annað sælgæti. Í dag eru
umbúðirnar mattar en innihaldið það
sama. Raunar er lygilega auðvelt að
ruglast á belgjunum og sælgæti þegar
menn spá í það.
Eiturefnasérfræðingar og heil-
brigðisyfirvöld í Bandaríkjunum vara
við þessari tegund þvottaefnis þar
sem aðeins taki börn nokkrar sek-
úndur að ná þeim, opna og gleypa
innihaldið eða fá það í augun. Eitt til-
felli er þekkt þar í landi þar sem barn
lést eftir að hafa gleypt þessa poka en
tæplega 800 börn þurftu að leggjast
inn á sjúkrahús eftir að hafa innbyrt
þá. Flest voru þau á öðru aldursári.
Ekki er talið að algengi þessara
púða sé mikið hér á landi, þó að vitað
sé að þeir séu fáanlegir.
Herdís Storgaard, hjá Miðstöð
slysavarna barna, segir að þessir púð-
ar hafi komið til tals í fyrra á vett-
vangi evrópskrar sérfræðinefndar um
slysavarnir barna sem hún á sæti í.
Þar hafi komið fram miklar áhyggjur
af þessum púðum og hefur hún eftir
fulltrúa Bretlands í nefndinni að þar í
landi hefðu orðið alvarleg slys þessu
tengd. Púðarnir innihaldi efni sem
séu víst skaðlegri en gengur og gerist
í hefðbundnu þvottaefni í duftformi.
Síðan þá hafi samtök þvottaefn-
isframleiðenda í Evrópu í samstarfi
við ESB sett af stað stórt átaksverkefni
og kveðst Herdís hafa verið að undir-
búa innleiðingu þess hér á landi. Hún
hafi vegna þessa leitað eftir samstarfi
við Eitrunarmiðstöð Landspítalans.
Hjá Eitrunarmiðstöðinni fékkst
staðfest að verið sé að skoða hvort
og með hvaða hætti sé hægt að taka
þátt í verkefninu á þessum síðustu og
verstu.n mikael@dv.is