Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Page 26
Vikublað 11.–13. nóvember 201426 Sport
Hvað varð um hand-
bolta utanhúss?
n Handbolti á grasi vinsælli framan af n Tugþúsundir áhorfenda á fótboltavöllum
H
andbolti er tiltölulega ný
íþrótt og var enn í mótun
um miðja tuttugustu öld.
Framan af var útihand-
bolti mun vinsælli en inni-
handboltinn sem við þekkjum öll.
Útihandbolti var spilaður á grasi,
í raun á fótboltavöllum með fót-
boltamörkum. Ellefu manns voru í
hvoru liði.
Vinsælt 1936
Handbolti utanhúss var gríðarlega
vinsæl íþrótt í Þýskalandi fyrir og
eftir stríð. Útihandbolti karla var
leikinn á sumarólympíuleikun-
um 1936 sem haldnir voru í Berlín,
þegar Hitler hafði náð valdatau-
munum í Þýskalandi. Leikarnir
voru ein stór áróðursveisla nasista-
flokksins. Þjóðverjar unnu gull-
verðlaun í útihandbolta og urðu
leikmennirnir að þjóðhetjum í hinu
brjálaða andrúmslofti Þriðja ríkis-
ins.
50 þúsund áhorfendur
Árið 1955 mættu 50 þúsund áhorf-
endur á úrslitaleik HM í handbolta
utanhúss þar sem Vestur-Þjóðverj-
ar sigruðu Svisslendinga 21–13. En
útihandboltinn hvarf smám saman
með vaxandi vinsældum innihand-
boltans.
Innihandbolti þróaðist mikið
upp úr stríði, sérstaklega á Norður-
löndum þar sem hann hefur ávallt
verið vinsæll. Handbolti varð aftur
að ólympíuíþrótt árið 1972 þegar
leikarnir voru haldnir í München
en að þessu sinni var leikið inn-
andyra og hefur sú hefð haldist.
Árið 1976 var kvennahandbolti að
ólympíugrein líka.
Útihandbolti á Íslandi
Íslendingar léku útihandbolta á
árum áður. Fróðlegt er að skoða
gamla ljósmyndir og fletta í dag-
blöðum frá fyrri hluta nýliðinn-
ar aldar. Valdimar Sveinbjörnsson
íþróttakennari mun hafa flutt hand-
knattleik til Íslands um 1920, þá ný-
kominn heim frá námi við Íþrótta-
kennaraskóla Danmerkur.
Valdimar birti árið 1927 grein í
tímaritinu Skinfaxa þar sem fór yfir
reglur þessa nýja leiks:„Leikend-
ur mega vera 22 flestir, 11 í hvoru
liði og raða þeir sér upp á svip-
aðan hátt og í knattspyrnu. Leik-
ur hefst á þann hátt, að dómarinn
kastar knettinum á miðjan völlinn
milli framherja flokkanna. Leika
þeir svo með knöttinn líkt og í
knattspyrnu, að eins mega þeir ekki
sparka, heldur einungis nota hend-
urnar. Gangurinn í leiknum er svip-
aður og í knattspyrnu. Samherjar
kasta knettinum á milli sín og þok-
ast um leið smátt og smátt að marki
andstæðinganna; best þykir leikið,
ef leikendur komast alla leið upp
að markteigi og kasta knettin-
um þar nokkrum sinnum á
milli sín, þar til markmaður er
orðinn ruglaður og getur ekki
fylgst með hvaðan knötturinn
muni koma, og gera þá mark.“
Kennsla frá Þriðja ríkinu
Morgunblaðið birti þessa frétt
3. júlí 1937: „Bæjarbúum gefst
kostur á að horfa á nýstárlega
íþrótt á íþróttavellinum í dag kl.
4, en það er handknattleikur eins
og hann er leikinn af karlmönn-
um erlendis. Það eru sjóliðar af
snekkju Hitlers ríkiskanslara,
Aviso „Grille“, sem leika hand-
knattleikinn, en þeir eru meistar-
ar þýska herskipaflotans í þessari
íþrótt. […] Handknattleikur hefir
verið leikinn hjer í skólum og víð-
ar undanfarin ár, en menn munu
komast að raun um að þýsku
sjóliðarnir leika handknattleik
með nokkru öðru sniði, þar sem
meira reynir á hreysti og þol hvers
keppanda.“ n
Helgi Hrafn Guðmundsson
helgihrafn@dv.is
Sjö núll! Eins og gefur að skilja voru
stigatölur í útihandbolta nokkuð frá-
brugðnar þeim tölum sem við þekkjum úr
handbolta nútímans. Borgarskjalasafn
geymir þessa mynd. Hún sýnir fyrsta
handboltalið Fram í kvennaflokki.
Myndin er tekin á Akranesi árið 1944 eftir
7–0 tap gegn Skagastúlkum.
„Valdimar Svein-
björnsson íþrótta-
kennari mun hafa flutt
handknattleik til Íslands
um 1920.
Húllumhæ
Frá handboltaleik á
Ólympíuleikunum í
Berlín 1936.
Önnur íþrótt Handbolti utanhúss, með 11 leikmönnum í hvoru liði, og mun stærri velli, er
auðvitað mjög ólíkur handboltanum sem við þekkjum best. Leikmenn þurfa að beita brögðum
sem enginn notar innanhúss.
Framandlegt
Handboltakona
í ham í Jena í
Austur-Þýska-
landi árið 1953.
Mynd: WiKiMedia
CoMMonS