Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2014, Síða 37
Vikublað 11.–13. nóvember 2014 Fólk 37 Spennt að koma heim Söngkonan Svala Björgvinsdóttir mun syngja á jólatónleikum með föður sínum, Björgvini Halldórs- syni, á jólatónleikunum Jólagest- um Björgvins sem haldnir verða í Laugardalshöll þann 13. desem- ber næstkomandi. Hún hlakkar mikið til, en hún tjáði Facebook- vinum sínum frá spenningnum í síðustu viku. „Ég er svo spennt að koma til Íslands og syngja fyr- ir ykkur í Höllinni 13. desember á Jólagestum Björgvins !!! Ég hef ekki komið heim til Íslands síð- an seinustu jól og heimþráin er orðin mikil. Get ekki beðið eftir að koma í kuldann og borða rúg- brauð með kæfu og drekka jóla- ölið,“ skrifaði Svala á síðuna sína. Svala býr í Los Angeles þar sem hún gerir það gott með hljóm- sveit sinni Steed Lord og fata- línunni Kali. Tók luft- trommusóló Björk Vilhelmsdóttir, borgar- fulltrúi Samfylkingarinnar, birti mynd af sér á Facebook-síðu sinni á föstudag þar sem hún sat við trommusett í Bíó Paradís og tók luft-trommusóló. Að hennar mati tókst sólóið nokkuð vel, en innlegg hennar í Airwaves-tón- listarhátíðina urðu ekki fleiri, því hún stakk af úr borginni og eyddi helginni með manni sín- um, Sveini Rúnari Haukssyni, á Úlfljótsvatni. Sonur þeirra, Guð- finnur Sveinsson, meðlimur hljómsveitarinnar For a Minor Reflection, hafði hins vegar töluvert meiri viðveru á hátíð- inni, en hljómsveitin kom fram á nokkrum stöðum um helgina. S kuldaleiðrétting ríkisstjórnar- innar var kynnt á blaðamanna- fundi í gær. Eins og við mátti búast voru ekki allir á eitt sátt- ir við sjónarspilið og tjáðu sig margir um málið á Twitter. Bragi Valdimar Baggalútur velti fyrir sér af hverju forsætisráðherra og fjármálaráðherra gátu ekki kom- ið með samstæð bindi og sagði svo að Bjarni Benediktsson virtist vera að heyra allt um leiðréttinguna í fyrsta skipti. Eins sagðist hann ekki hafa verið „svona æstur yfir einhverju síð- an ég missti síðast tánögl!“ Dóri DNA sló líka á létta strengi og velti fyrir sér hvort leiðréttingin myndi líka ná til fíkniefna- og spilaskulda en sagði svo að þetta út- spil væri töluvert vinstrisinnaðra en öll vinstri sinnuð útspil allra vinstristjórna. Gísli Marteinn sagðist hafa millifært á sjálfan sig 50 þúsund krónur og væri þakklátur sjálfum sér fyrir verkið. Sagðist svo ætla að kjósa sig næst. Heiða Kristín, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, var ekki eins glöð í bragði og sagði heim hinna full- orðnu verða henni alltaf jafn mikil vonbrigði og velti fyrir sér hvað þeir sem eru 25 ára í dag fá, þeir fá verð- bólgu og ónýtan Landspítala. Eins spurði hún af hverju ekkert hefði ver- ið talað um síhækkandi íbúðarverð í borginni. Rithöfundurinn Halldór Armand tók í svipaðn streng og svaraði spurn- ingunni um af hverju ungt fólk kysi ekki í dag og væri það vegna þess að það er sífelt verið að grafa undan trú þess á einhverju sem heitir samfélag. Björn Bragi sjónvarpsmaður sagðist hins vegar ánægður með að Bingó-lottó væri byrjað á ný en saknaði Ingva Hrafns og spurði hvar Bingó-Bjössi væri. Allt sem Arnór Dan, söngvari AgentFresco hafði um málið að segja var að hann ætlaði að mæta niður á Austurvöll til að mót- mæla á mótmælunum sem haldin voru í annað sinn kl. 17. n Ekki verið æstari síðan hann missti tánögl Bragi Valdimar og annað frægt fólk á Twitter tjáði sig um skuldaleiðréttinguna Tilkynning skuldaleiðréttingar Fólk var ekki á eitt sátt við tilkynningu skuldaleið- réttingarinnar og velti meðal annars fyrir sér af hverju peningunum var ekki veitt til heilbrigðiskerfisins. Mynd SigTryggur Ari Töfrar fram ommelettur Þ að er rannsóknarvinna í gangi, en á laugardaginn mun um þrjátíu ára ferli ljúka. Leitinni að hinni full- komnu eggjaköku,“ segir Gísli Einarsson, sjónvarpsmaður og einn þátttakenda í landnámshænu- eggjakökukeppni sem fer fram á matarmarkaði Búrsins í Hörpu, næstkomandi laugardag. Besta ommelettan á rhodos Leitin að hinni fullkomnu eggja- köku, að mati Gísla, hófst í fjall- þorpi á Rhodos árið 1985. „Þar fékk ég bestu ommilettu sem ég hef nokkurn tíma borðað á ömurlegasta veitingastað sem ég hef nokkurn tíma séð. Þar tók á móti mér skítug- ur, gamall og tannlaus karl sem svaf á bekk þegar ég kom inn. Mér leist nú ekki á að borða þarna en ég var hundsvangur og fékk bestu omme- lettu sem ég hef bragðað.“ Hinni eini sanni ommelettutónn Í tæp 30 ár hefur Gísli leitað logandi ljósi að viðlíka eggjaköku og ótal sinnum reynt að töfra hana fram sjálfur. Það hefur ekki tekist hing- að til, en hann á von á því að eitt- hvað óvænt gerist á laugardaginn. „Ég ætla mér að finna þennan eina sanna ommelettutón og lokin á þeirri vegferð verða þarna á laugar- daginn.“ Gísli segir þessa síðustu daga fyrir keppnina því ekki skipta öllu máli hvað æfingar og tilraunir varð- ar, enda vinnan að mestu leyti að baki. Í huga Gísla er það því í raun bara formsatriði að taka þátt í um- ræddri keppni, enda á hann varla von á öðru en að fara með sigur af hólmi. Hans fullkomna eggjakaka verður seint toppuð. „Þetta verður enginn vináttuleikur“ Andstæðingarnir eru þó verðugir, en Gísli mun mæta Degi B. Egg- ertssyni, borgarstjóra og margróm- uðum vöfflugerðarmanni, og Ás- laugu Snorradóttur matarstílista. Öll verða þau vopnuð steikarpönn- um og öðrum áhöldum til eggja- kökugerðar. Þrátt fyrir að Gísli sé sannfærð- ur um ágæti sinnar eigin eggja- köku þá gerir hann sér grein fyr- ir því andstæðingarnir komi til með að tjalda öllu til í eggja- kökugerðinni. Það gæti því orðið mjótt á munum. „Ég hef mikla trú á því að ég sigri í þessari keppni en borgarstjórinn hefur náttúru- lega haft nógan tíma til að æfa sig. Hann er með ritara og alls kon- ar fólk í vinnu, þannig hann hef- ur tíma til að undirbúa sig. Ég geri mér því grein fyrir því að þetta verður ekki auðvelt. Þetta verður alvöru. Þetta verður enginn vin- áttuleikur, það verður allt lagt í þetta.“ Landnámshænueggin góð undirstaða Gísli telur að landnámshænu- egginn komi til með að gera út- slagið hvað bragðið á eggjakök- unni varðar. „Ommelettan er auðvitað alþjóðleg en það eru þessi íslensku áhrif sem koma sterkt í gegnum landnámshæn- una. Þetta er betri grunnur en búrhænueggin. Góð undirstaða fyrir hina fullkomnu ommelettu,“ segir Gísli sem er svo sannarlega til í slaginn á laugardaginn. Dómarar í keppninni eru kokkarnir Hrefna Rósa Sætr- an og Gunnar Karl Gíslason. Landnámshænueggin koma frá hæsnabóndanum Júlíusi Má Baldurssyni og annað hráefni fá keppendur að velja sér af gnægta- borði framleiðenda á Matarmark- aði Búrsins. Markaðurinn verður opinn í Hörpu dagana 15. og 16. nóvember næskomandi, frá 11.00 til 17.00. n gísli etur kappi við borgarstjóra og matarstílista í landnámshænueggjakökugerð Sólrún Lilja ragnarsdóttir solrun@dv.is Til í slaginn Gísli ætlar sér að töfra fram hina einu sönnu eggjaköku í Hörpu á laugardaginn. Mynd BrAgi Þór JóSefSSon Stuttklippt Inga Lind Sjónvarpskonan Inga Lind Karls- dóttir hefur látið síða hárið fjúka og skartar nú glæsilegri klipp- ingu. Það er enginn annar en tískulöggan, klipparinn og út- varpsmaðurinn Svavar Örn sem ber ábyrgð á breytingunni. Inga Lind setti að sjálfsögðu mynd af nýja útlitinu á Facebook þar sem vinir hennar kepptu- st við að dásama breytinguna. Bróðir hennar, Bjarki, átti fyrsta kommentið en hann sagði Ingu Lind sigurvegarann í The Biggest Loser – of hair en Inga Lind og félagar luku á dögunum tökum á nýrri seríu af The Biggest Loser.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.