Feykir


Feykir - 05.01.1994, Síða 1

Feykir - 05.01.1994, Síða 1
 © rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Skagfirðingur og Skjöldur sameinuð Meiningin að fyrirtækið fari inn á hlutabréfamarkaðinn fljótlega. KS-menn virðast ekki hafa áhuga á að Fiskiðjan fljóti með. Sameining hlutafélaga Skag- firðings og Skjaidar var sam- þykkt samhljóma á fundum beggja þessara félaga í liðinni viku. „Mér virðist menn vera sammála um að þetta sé rétt leið til að styrkja atvinnustarf- semi hér á svæðinu enn frekar. Samþykktum hefur verið breytt í þá veru að nú er ekkert því til fýrirstöðu að hlutabréf í þessu sameinaða útgerðarfyrirtæki verði til sölu á almennum hluta- bréfamarkaði, og ég get ekki betur séð en þetta sé góður kostur fyrir fjárfesta. Hér erum við komin með öflugt félag, með fjögur skip í rekstri, sem gefúr ákveðna hagræðingar möguleika. Endurskoðcndur beggja hluta- félaganna, Skjaldar og Skagfiró- ings, hafa komist að samkomu- lagi um að hlutafé liins sameinaða félags, sem niun bera nafh Skag- firðings, veröi metið samkvæmt ársreikningi félaganna við þessi áramót og samkvæmt mati á eignum þeirra. Einar Svansson segist ekki vita til þess að neinir af hlutafjáreigendum í Skildi hafi óskað eftir sölu á hlutabréfum sínum, enda geti þeir þá sett sín bréf í sölu þegar félagið verði komið inn á hlutabréfamarkaðinn. Aðspurður hversvegna Fisk- iðjan stæði fyrir utan sameiningu Skagfirðings og Skjaldar, sagði Einar að það væri eigenda Fisk- iðjunnar að svara því, en þeir hefðu hingað til ekki verið fylgj- andi því að gera félagið að al- menningshlutafélagi. Einn stjómar- manna í Fiskiójunni sagði að þessi hugmynd hefði verið rædd í stjóm- inni fyrir tveim árum, en henni hefði cnn ekki verið kastað fyrir róða. Mörg undanfarin ár hcfur fisk- vinnsluþátturinn komió betur út en útgerðin í sameiginlegum rekstri Fiskiójunnar og Skagfirð- ings. Einar segir að í ár hafi orðið breyting þama á og hann eigi allt eins von á því að útgerðin komi heldur betur út á þessu ári, því veiki það á engan hátt hið nýja sameiginlega félag á hlutabréfa- markaðnum að Fiskiðjan sé ekki þar inni. Það hafi reyndar ætíð ver- ió háð ýmsum ytri skilyrðum, svo sem verði á mörkuðum, hvort fisk- vinnsla eða útgerö hafi sýnt betri útkomu, þetta eða hitt árið og þannig veiði það væntanlega áftam. „Utgerð togaranna hefúr geng- ið mjög vel á þessu ári. Velta þeirra hefúr aukist um 30-40 milljónir á skip og áætlun um rekstur þeirra staðist en við geró- um ráð fyrir urn 140 milljóna veltuaukningu á árinu. Það fer síð- an talsvert eftir útkomunni í sölu togarannanna núna úr jólatúrun- um hvemig árið kemur út hjá okkur, en vió verðum væntanlega við núllið“, sagði Einar Svansson. Þeir voru masknir með sig þessir sveinar, sem færðu börn- unum á Króknum jólagjafirnar að þessu sinni. Þeir höfðu líka ástæðu til því það eru ekki allir jólasveinar sem hafa snjóbíl til afnota við að sinna skyldustörfum sínum. Gamla árið brennt út að venju Gamla árið var brennt út með pompi og pragt á að venju og brennur voru á stærstu þéttbýlisstöðum dæmisins, sem ungmennafélög og björgunarsveitir stóðuað. A Sauðárkróki var það Ung- mennafélagið Tindastóll sem ann- aðist brennusöfnunina og björg- unarsveitin Skagfirðingur stóð fyrir mikilli flugeldasýningu um kl. 21 .Vel lifði í brennunni fram á nýárið og voru ennþá einhverjar glæður á brennustæðinu að kvöldi þriðja janúar, en veður var stillt þessa daga. Sigurjón Alexanders- son var brennukóngur að þessu sinni og mæddi gerð bálkastarins mest á herðum nokkurra eldri stuðningsmanna félagsins, og þátt- taka yngra fólksins var ekki nándar nærri eins góð og fyrir 5 árum, jregar myndin til hliðar var tekin. að menn geri sér in fyrir ábyrgðinni" segir Árni Guðmundsson „Ég vona að forráðamenn Skagfirðings geri sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem þeir bera nú með því að vera orðnir yfirgnæfandi aðili hér í fisk- vinnsln og útgerð við fjörðinn. Við getum ekki annað en óskað þess að þeir fari vel með þá ábyrgð“. Eitthvað á þessa leið fórust Arna Guðmundssyni orð á hluthafafundi Skjaldar í síð- ustu viku. I>ar sem samþykkt var að felagið sameinaðist Skagfirðingi. Ami Guðmundsson átti lang- stærstan hlut einstaklinga í Skildi. Hann var sá eini úr hópi minni- hlutaeigenda Skjaldar er til máls tók á hluthafafundinum í síðustu viku. Lýsti hann sig fýlgjandi sam- einingu félaganna og taldi það einu leiðina úr því sem komið væri og hiklaust væri það rétt ákvörðun að gera félagið að al- menningshlutafélagi. Fram kom í máli Ama á fúnd- inum að hann bæri fyrir brjósti hagsmuni hlutaljáreigenda í Skáldi, sem jafnframt hefóu margir hverj- ir verið þjónustuaðilar við starf- semi félagsins. Sagðisthann von- ast til að forráðamenn Skagfirð- ings mundu líta til þess að dreifa þjónustunni við skipin til aöila í bænum, þannig að allir mættu verða sæmilega ánægðir aó kalla. —(CTch^íII h|}|— Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍM1: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 bílaverksfæði sími: 95-35141 Sæmundargafa lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 Bílavibger&ir • Hjólbar&averkstæ&i RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.