Feykir


Feykir - 12.01.1994, Blaðsíða 1

Feykir - 12.01.1994, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Steinullarverksmiðjan: Salan jókst um 3% á síðasta ári Um þriggja prósenta söluaukn- ing varð hjá Steinullarverk- smiðjunni á Sauðárkróki á síð- asta ári og veltuaukning nam um 4%. Rekstrartekjur jukust úr 383 milljónum í 400 milljón- ir. Uflutningur jókst um 1% á árinu en sala innanlands dróst saman um 1%. Einar Einars- son framkvæmdastjóri segir að ljóst sé að rekstrartap verði á síðasta ári vegna gengisfelling- ar í júní, en það verði samt minna en árið á undan, en þá var það 57 milljónir. Varðandi rekstrarhorfur á því ári sem nýbyrjað er, segir Einar að mjög mikilvægt sé að stöðug- leiki haldist í gengismálum. ,^Fyrir okkur eins og önnur íyrirtæki sem skulda lán í erlendri mynt er mjög mikilvægt að gengi krónunnar haldist stöðugt, en gengismálin reyndust okkur óhag- stæð á síðasta ári“, sagði Einar. I máli hans kom einnig fram að þrátt fyrir söluaukningu erlendis á síðasta ári, mætti íslenska stein- ullin nú aukinni samkeppni á er- lendum markaði, sem helgaðist af samdrætti í byggingariðnaði sem einnig væri til staðar á Norður- löndunum og í löndunum í kring- umokkur. Þvíværa einangran- arverksmiðjur vannýttar. Heildarsalan á síðasta ári nam 5203 tonnum. A innanlandsmark- aði seldust 2637 tonn og út vora flutt 2566 tonn. Athugað með að gera Rex út á salt Ein þeirra hugmynda sem for- ráðamcnn Skagstrcndings cru að vinna að, til þess að koma gamla Arnari á veiðar utan Iögsögunn- ar, er að gera breytingar á skip- inu þannig að hann henti til vciða á salt, þá væntanlcga í Smugunni. Þessa dagana er verið að kanna kostnað varðandi slíkar breyting- ar á skipinu, þannig að þær liggi fyrir áður en langt um líðl í byrj- un næsta mánaðar verður tekin ákvörðun um það hvort eitthvað verði úr útgcrð Arnars, sem nú heitir reyndar Rex, á mið við strendur Namibíu, og núna rétt fyrir hclgina höfðu japanskir að- ilar samband við forráðamenn Skagstrendings og óskuðu cftir að fá að koma til að líta á skipið. Sveinn Ingólfsson fram- kvæmdastjóri Skagstrendings sagði að gera þyrfti töluverðar breytingar á skipinu til að gera það út á salt, m.a. að setja nýja og kraftmeiri vél í skipið. Slippstöóin á Akureyri breytti Hjörleifi fýrir þessar veiðar íýrir stuttu, en aðili í Keflavík ætlar ásamt rússneskum aðilum að gera skipið út í Barentshafið og salta afl- ann um borð. Sveinn sagði að vænt- anlega lægi kostnaðaráætlun varð- andi hugsanlegar breytíngar á Am- ari íýrir á næstu dögum. Að sögn Gylfa Sigurðssonar stjómarformanns Skagstrendings er enn inni í myndinni að^amli Amar, Rex, fari til Namibíu. Islenskir fjár- festar hafi farið þama niður eftir fýr- ir stuttu og litíst vel á. Að því leytí ættu líkumar að aukast og gott hljóð væri í þeim Nýsismönnum, en Skagstrendingur er aðili að þessu ís- lenska/namibíska ráðgjafa- og fjár- festingafélagi sem stofnað var um útgerð- og fiskvinnslu í Namibíu. Það var múgur og margmenni samankominn á Bakkakotsmelum að kvöldi þrettándans, flmmtudagsins 6. janúar. Þar var haldin hin árlega þrettándabrenna sem Ungmennafélagið Vorboðinn hefúr staðið fyrir í nokkur ár. Ungmennafélagar söfnuðu í heilmikinn köst að vanda, þar sem baggarúllur voru kjarninn og héldu þær vel glóðinni. Meðan jólin voru brennd út lék blásarasveit, sem að mestu var skipuð krökkum úr Tónlistarskólanum á Blönduósi. Fjöldi fólks kom bæði frá Blönduósi og innan af Skagaströnd til að fýlgjast með brennunni. Mynd/Sig. Kr. Góðar sölur í jólatúrunum „Það má segja að menn séu að uppskera laun erfiðis síns núna. Auðvitað er ekkert skemmti- legt fyrir sjómenn að eyða há- tíðunum úti á sjó fjarri skyld- mennum sínum og vinum“, sagði Gísli Svan Einarsson út- gerðarstjóri Skagfirðings, en togarnir gerðu ágætar sölur úr jólatúrunum, og ljóst að menn hafa haft vel fyrir jólasteikinni. Skagfirðingur gerði til að mynda bestu sölu síðan skipið kom á Krókinn fyrir rúmu ári, en náði þó ekki að slá metsölu eldri Skagfirðings sem gerð var fyrir tveim eða þrem árum, einnig í Bremerhaven. Skagfirðingur seldi í fyrradag tæplega 140 tonn fyrir rúmar 26 milljónir. Mestur híuti aflans var karfi og fékkst fyrir hann mjög gott meðaveð, 195 krónur. Einnig fékkst ágætt verð fyrir hinn hluta aflans sem var ufsi, og var meðal- veró farmsins 186,40 krónur á kíló. Áður hafði Skafti selt í Hull 106 tonn fýrir 18,3 milljónir. Afl- inn samanstóð af svipuóu magni af þorski, ýsu og grálúðu og var meðalverðið 172,30 krónur. Drangey seldi einnig í fyrradag í Hull 109 tonn fyrir 15,5 milljón- ir. Aflinn var þorskur, ýsa og ufsi og var nteðalverð 142,76 krónur. Mismunur meðalverðs hjá Drang- ey og Skafta felst í miklum verð- mun á ufsa og grálúðu, en 216 króna meðverð fékkst fyrir grálúð- unaí Hull. I gær seldi Hegranes í Bremer- haven 60 tonn fyrir tæplega 10 milljónir. Aflinn var mestmegnis karfi. Fyrir hann fékkst mjög gott verð 207 krónur, en 10 tonn af Skagfirðingur (áður Vigri) gerði sína bestu sölu frá því að skipið kom til Sauðár- króks fyrir rúmu ári. ufsa drógu meóalverðið niður í 164 krónur á kíló. Óseld vora í gær 13 tonn af ýsu sem verða seld í dag. Farmur Hegraness var því alls 73 tonn, en verkfall sjómanna kom í veg fyrir að skipið gæti klárað túrinn á miðunum eins og til stóð. —KJcn^il! hfDI— Aðalgötu 24 Sauðárkrðki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA StMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 Æ bílaverkstæði sími: 95-35141 Sæmundargata 1 b 550 Sauðórkrókur Fax: 36140 Bílaviögeröir • Hjólbaröaverkstæöi RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.