Feykir


Feykir - 19.01.1994, Blaðsíða 1

Feykir - 19.01.1994, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Mikil hugarfarsbreyting hefur átt sér stað meðal þjóðarinnar á seinni árum varðandi hollustu og heilsu. Trúlega er það ofarlega í hugum fólks nú skömmu eftir hátíðamar að ná kjörþyngdinni aftur í samt lag og yfirleitt að gæta að heilsunni. Þolfimi er íþrótt sem vinsældum á að fagna hjá mörgum sem vilja halda sér í formi. Þetta unga fólk sýndi gestum Skagfirðingabúðar hæfni sína á þessu sviði sl. fóstudag. Piltarnir eru Lýður Skarphéðinsson og Sverrir Sverrisson frá Sauðárkróki, en nöfn stúlknanna, sem em frá Akureyri, höfiim við ekki. Miklilax áfram í miklum vanda Nauðasamningar vegna Mikla- lax sem samþykktir voru fyrir héraðsdómi fýrir nokkru, hafa enn ekki náð fram að ganga sök- um þess að ekki hefúr skilað sér nýtt hlutafe að upphæð 30 millj- ónir, sem gert var ráð fyrir í samningnum. Heimaaðilar hafa þar tryggt 12 milljónir, en þar fyrir utan hefúr einungis Kaup- félag Skagfirðinga skilað inn hlutafé, en nýlega samþykkti stjórn félagsins að leggja 3,5 milljónir í Miklalax. Vegna þessa ástands hefúr skapast vandræðaástand í Miklalaxi. Komið hefúr upp sú staða að ekki hefúr verið til fóður fyrir strandeldið við Hraunakrók og launagreiðslur til starfsmanna hafa dregist Þeir fengu greitt upp í laun sín nú eftir helgina, og eiga enn inni greiðslur fyrir des- ember, sem Reynir Pálsson framkvæmdastjóri segir að verði greidd á næstu dögum. Þaó sem veldur Miklalaxi mest- um erfiðleikum er að samþykki stjómar framleiðnisjóðs landbún- aðarins hefúr enn eldci fengist fyrir þeirri 12milljónakrónahlutafjár- aukningu sem reiknað var með. Taldar em minnkandi líkur fyrir að það fáist, cn ef það gerist segir Reynir Pálsson að heimamenn muni þá bæta vió þær 12 milljónir sem þegar hafi verið lagðar fram. Benedikt Guðmundsson fulltrúi Byggðastoínunar í stjóm Miklalax segir að búið sé að setja fyrirtækið út í hom af opinberum sjóðum og Reynir Pálsson framkvæmdastjóri Miklalax tckur undir það, segir fyr- irtækið ekki hafa fengið krónu í fyrirgreiðslu síðustu tvö árin. „Þaö var til dæmis passaó sér- staklega upp á það að við fengjum ekkert úr sérstökum 300 milljóna sjóói sem settur var á stofn til aó aðstoða laxeldið í landinu. Það er búið að halda okkur niðri núna í tvö ár og við höfúm ekki fengið að byggja upp þann lífmassa sem þarf til að stöðin verði rekin með fullum afköstum. Það er grátlegt að þurfa aö reka stöðina meó hálfum afköst- um á meðan markaðurinn er nóg- ur. Við gætum hæglega framleitt héma fyrir 200 millljónir án þess að fastakostnaður ykist, en höfum liangið í 80 milljónum", sagði Reynir Pálsson framkvæmdastjóri Miklalax. Að sögn Reynis leiðir skortur á fóóri í strandeldinu, eins og komið hefur fyrir, til þess að vaxtarhraði fisksins minnkar. Það er þó lán í óláni að fiskurinn þarf minna fóð- ur á kaldasta tíma ársins. Starfs- menn í Milalaxi í dag em 12-14, og að auki em 10 konur kallaðar út þegar slátrað er. Hugað að sumrinu á Króknum: Fjölskylduhátíð í undirbúningi Að innlendir ferðamenn fái að njóta þess besta sem land og þjóð býður upp á, er helsta stefiiumið felagasamtaka, fyrir- tækja og einstaklinga, en þessir aðilar hafa myndað bandalag til undirbúnings þess að minnast 50 ára afmælis íslenska lýðveld- isins á þessu ári og árs fjölskyld- unnar hjá Sameinuðu þjóðun- um, sem einnig er á þessu ári. Landsmenn verða hvattir til að ferðast um landið sitt í sumar til að kynna sér menningu, stað- hætti og viðburði í sveitum, bæjum og borg. I tilefni þessa hefúr Ferðamála- félag Sauðárkróks ákveðið að efúa til samstarfs við félagasam- tök, fyrirtæki og einstaklinga í bænum um fjölskylduhátíð á sumri komanda og hafa bréf þessa efnis þegar verið send til ýmissa aðila. Hugmyndin er að skapa hér hátíðarstemmningu í um viku- tíma, þar sem bæjarbúar allir, stór- ir sem smáir, fyndu sér eitthvað til ánægju og yndisauka. Við undir- búning þessa hátíðar verður leitast við að öllum gefist kostur á að gera bæinn okkar áhugaverðan heim að sækja, segir í fréttatil- kynningu frá ferðamálanefnd, en nefndin hefur einnig boðið til samstarfs aðilum í öðrum hrepp- um í Skagafirói til skipulagning- ar hátíðar í viðkomandi sveitarfé- lögum. Annað kvöld verður haldinn fundur í Safnahúsinu á Sauðár- króki með fulltrúum félagasam- taka og ferðamálaaðilum þar sem rætt verður um undibúning sum- arhátíðarinnar. Meiningin er að á fundinum verði kosin fram- kvæmdanefnd til undirbúnings hátíðinni. I tilkynningu ferðamálanefúd- ar segir einnig að ferðaþjónustan sé ört vaxandi atvinnugrein og sá vaxtarbroddur í íslensku atvinnu- lífi sem hvað líklegastur er til þess að fólk í hinum dreifðu byggðum geti skapað sér atvinnu af til fram- búðar. Rafveita Sauðárkróks: Orkuverð verið óbreytt á þriðja ár Þrátt fyrir 3% hækkun á út- söluverði á raforku frá Lands- virkjun um áramótin mun ork- an frá Rafveitu Sauðárkróks ekki hækka í verði til notenda. Er þetta í þriðja sinn sem stjórnendur RS nýta sér ekki heimild til hækkunar orku- verðsog hefúr þaðveriðóbreytt frá 1. október 1991. Það að RS hleypir 3% hækkun orkuverðs Landavirkjunarekki á- fram til neytenda nú, þýðir 4,2 milljóna tekjutap fyrir veituna á þessu ári. Þrátt fyrir að orkuverði hafi verið haldið niðri síðustu ár hef- ur tekist að halda góðri afkomu Rafveita Sauðárkróks, að sögn rafveitustjórans Siguróar Agústs- sonar. Einnig hefur náðst að auka lýsingu í og við bæinn. Þannig var til að mynda í haust lýstur upp vegkaflinn frá vegageróinni að Alexandersflugvelli. Vegagerðin á einnig kostnaðarhlut aó þeirri framkvæmd, en hún var fjár- mögnuðafRS. —KTcú?IH NjDI— bilaverkstæði Aðalgötu 24 Sauðárkrðki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA jM. J.JL ™ » sími: 95-35141 FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargota lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Bílaviöger&ir • Hjólbaröaverkstæöi SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.