Feykir


Feykir - 26.01.1994, Qupperneq 3

Feykir - 26.01.1994, Qupperneq 3
3/1994 FEYKIR3 Svar við dulbúinni auglýsingu Þeir eru ekki öfiindsverðir sem hafa þurft að fara gangandi um bæinn í hálkunni undan- farið, sérlega ef golað hefur. Þannig rakst blaðamaður Feykis á einn kennara íjöl- brautaskólans á fjórum fótum núna fyrir helgina, og hafði honum orðið fótaskortur á svellbunka ofan verknáms- hússins. Þessi ágæti maður sagðist vonast til þess að hann færi að snjóa hressilega því þá gæti hann stungið fótunum kirfilega ofan í snjóinn og þyrfti ekki að óttast að Ienda á hnakkanum eða trýninu í næsta fótmál, með tilheyrandi hættu á beinbrotum og öðrum meiðslum. Og manninum varó aó ósk sinni aö nokkru leyti. Strax um kvöldið fór aö snjóa og snjóaöi bara þónokkuð miðað við það sem Króksarar eiga að venjast, en varla þó nóg til þess að hálkunnar undir snjónum gætti ekki fyrir gangandi vegfarandur, og vart þarf að taka fram að öku- menn hafa sumir hverjir lent í erfióleikum vegna erfiðrar akst- ursskilyrða. A dögunum var í Feyki gert svolítið þras út af snjómokstri í bænum. Þessar línur eiga ekki að vera framhald af því múðri, og að sjálfsögðu er ekki hægt að gera stjómendur bæjarins eða bæjar- starfsmenn ábyrga fyrir duttlung- um náttúrunnar og hringlanda í veðurfari. En svo skemmtilega vildi til þegar flett var upp í 10 ára gömlu Feykis-blaði, að einmitt er þar að finna hugleiðingu um snjó og snjómokstur. Fer höfundurinn skemmtilega með pcnnann og er ekki síður gagnrýnni en sú rödd sem höfð var uppi í Feyki fyrir skemmstu. Við tökum bessaleyf- ið og birtum svolítinn kafla úr greininni sem birtist Undir Nöfum. „Þótt nú sé vetur hefur lítinn snjó sett hér niður og bæjarfélag- ið lætur moka snjó af götum svo færð er góð fyrir hina heilsugóðu menn á besta aldri, sem hafa góð- ar tekjur og hreyfa sig um bæinn sitjandi á rassinum í bíl. Þessa menn kalla sumir aumingja (til aðgreiningar frá hinum virkilegu eymingjum), en það er ekki sanngjamt, því á herðum þeirra hvíla mörg ábyrgðarmikil verk- efni. Til dæmis ráða þeir bæjar- málum og ýmsu öðru. Gamalmenni og „eymingjar" Nokkuð sem einkennir þá er að þeir hafa svo mikið að gera. Þess vegna verða þeir að flýta sér á milli húsa í bílum og þess vegna hafa þcir ekki tíma til að skilja aðrar þarfir en sínar eigin. Af þessu öllu hefur svo þróast hjá þeim býsna skemmtilegur húmor. Hann birtist t.d. í þessu að láta moka snjó af götunum upp á gangstéttir, svo þær verða stórhættulegar yfirferðar. Þetta er nefnilega allt í lagi, því á gang- stéttunum eru á ferðinni böm og unglingar sem ekki hafa kosn- ingarétt, húsmæður sem láta karl- ana ráða og gamalmenni og eymingjar sem engar kröfúr gera. Og satt að segja eigum við erfiða ferð um gangstéttir bæjar- ins. Sums staðar hafa myndast stærðar fjöll á gagnstéttum; af- mokstur af götum. Böm og ung- lingar klífa þau auðveldlega eða skoppa yfir götuna ef betur er fært þar. Húsmæður undir Nöf- um hafa líka löngum bjargað sér. Þaó em gamalmennin og eymin- gjamir sem líklcga em skemmti- legust þegar þau laumast út á ak- brautimar til þess að komast fyr- ir farartálma. Þá koma þessi heilsugóðu á besta aldri á bílun- um sínuni og flauta á þessi gam- almenni og eymingja sem kunna ekki umferðarreglumar. Það hlýt- ur að vera ofsagaman að sjá fát- ið sem grípur gamalmennin og eymingjana þegar þau reyna að bjarga sér. Annars keyra bílamir bara yfir fólkið eins og dæmin sanna. Einar Sigtryggsson ritaði at- hugasemd um það í síðasta tölu- blaði Feykis, hvemig fréttamaóur Utvarps hefði komið inn tor- tryggni hjá hlustendum vegna lækkunar vömverðs í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts. Frétta- maður vill því koma eftirfarandi á framfæri. I fyrsta lagi var ekki um neina frétt að ræða heldur spumingu dagsins sem vegfarendur á Sauð- árkróki svömðu. Spumingin var samin af fréttamönnum Utvarps Norðurlands og hljóóaði svo: Hefur þú orðið vör eða var vió að verð á matvöm hafi lækkað í kjöl- far lækkunar virðisaukaskatts? Svör viðmælcnda vom flest á þann veg að þeir hefðu ekki oiðiö varir við lækkunina, að minnsta kosti ekki nóg, nokkrir töldu þó svo vera og einn viðmælenda til- greindi að verð á unnum kjötvör- um hefði lækkað um nokkrar krónur. Þessi svör komu án nokk- urs þrýstings ffá fréttamanni og var aldrei komið inn á það að matvöruverslanir í Skagafirði hefðu ekki staðið sig með að lækka samkvæmt fyrirmælum hins opinbcra eins og skilja má á skrifúm Einars að fjallað hafi ver- ið um. Helst er á skrifum hans að skilja að hann hafi ekki áttað sig á um livað var spurt, eða að hann hafi ekki heyrt spuminguna. Málið snerist alls ekki um það hvort að féttamaðurinn hefði átt að spyrja eiginmann sinn, deildar- stjórann, um þetta mál því spum- ingu dagsins var ekki beint að honum. Þ:ir að auki eru athuga- semdir af þessu tagi ósmekklegar og sendar undir beltisstaó þegar rök skortir. Hefði þá ekki títt- nefúdur Einar átt að taka það ffam að hann skrifaði sem faóir eig- enda Hlíðarkaups? Að lokum, Einar, þarf vart að taka það ffam eina ferðina enn, að í síðustu verðkönnun á Sauðár- króki hafi Hlíðarkaup verið með lægsta vöruverðið, því ef þú hlust- :ir jafngrannt á Utvarp Norður- lands og þú virðist gera, ætti ekki að hafa farið fram hjá þér að þeirri vcrðkönnun var margoft gerð skil í fréttum og það þrátt fyrir að fréttamaður sé gift einum af deild- arstjómm Kaupfélags Skagfirð- inga. Hefói ekki verið hreinlegra að auglýsa bara í Feyki og greiða fullt verð fyrir það? María Björk Ingvadóttir fréttamaður RÚV. Fasteign til sölu! Tilboð óskast í fasteignina Raftahlíð 7 a sem er 70 fermetra endaraðhús. Eignin er laus til afliendingar. Tilskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Allar nánari upplýsingar I síma 35884 eftir kl. 18,00 (María Lóa). Þorramatur! Súrmaturinn hefur aldrei verib betri. Sviðasulta blóðmör pungar lundabaggar sviðalappir grísasulta lifrapylsa eistnavefjur bringukollar þorrabakkar Verölækkun á áleggi Ódýrt - Ódýrt unghrossasaltkj öt Hrossaframpartar af nýslátruðu: 115 kr. pr. kg. til afgreiðslu í Sláturhúsi. Verslanir Kjötvinnsla Sláturhús. Einbýlishús til sölu! Til sölu einbýlishúsió nr. 7 vió Eskihlíð á Sauðárkróki. Húsið er fimm herbergja, um 150 fermetrar að gólffleti ásamt tvöföldum bílskúr. Skipti á minni eign kemur vel til greina. Upplýsingar í síma 35670 og 35470. Þorbjöm Ámason lögmaóur.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.