Feykir


Feykir - 26.01.1994, Síða 5

Feykir - 26.01.1994, Síða 5
4/1994 FEYKIR5 „Núna er þetta orðið barnaleikur miðað við það sem það var" Spjallað við Odd Sigurðarson um sjálfboðavinnu fyrir Kormák og fleira komu alltaf upp árekstrar, þannig aó það þýðir ekkert annaó en vera neyslugrannur og láta þetta duga”. Hvaða kosti séröu við aó búa á Hvammstanga? “Við erum í mjög góðu vega- sambandi héma og komumst yfir- leitt allra okkar fcrtja. Það hefur að vísu ríkt héma stöðnun á undan- fömum ámm. Einstaklingar hafa t.d. ekki byggt. Það húsnæði sem risið hefur er í félagslega íbúða- kerfinu. Brasiö í kringum Meleyri á tímabili var auðvitað töluvert á- fall og kom í veg fyrir að íbúa- fjölgun ætti sér stað. Eins var það mikió áfall hvemig hefur farið með útgerðarmálin, að fjórir bátar skyldu fara úr byggðarlaginu á skömmum tíma. Þar ætluðu menn sér að gleypa of stóran bita í einu. Þetta var allt þegar á reyndi undir- fjármagnað, fiamsýni skorti, menn töluðu ekki nógu hreint út um hlutina og samstarfsviljann skorti. Stórvirkin verða áldrei unnin af einum eða tveimur mönnum, þar þurfa fleiri að koma til, þó svo eld- hugamir verði að vera til staóar. Annars gerðist hér stórkostleg- ur hlutur á síðasta ári, sem ég held að menn hafi ekki áttað sig al- mennilega á hvað er þýöingarmik- Aó margra áliti tilheyrir hugsjónamennskan fortíð- inni. Þó íyrirfmnst enn í dag hugsjónafólk, til aó mynda hafa nokkrir ungir menn á Hvammstanga í tæpan áratug staöiö aó út- gáfu auglýsingablaðsins Sjónaukans. Þaö er gefið út í nafni ungmennafélagsins Kormáks og nýtur félagið alls hagnaöar af útgáfunni, en vinnsla þess hefur ætíð verið í sjálfboðavinnu. Þaó þætti sjálfsagt mörgum mikil kvöó aö vinna að jafriaói 6-8 tíma í sjálf- boðavinnu á viku hverri, stundum meira, en þetta telja drengimir á Hvamms- tanga ekki eftir sér. Þrátt fyrir að auglýsinga- og sjónvarpsdagskrárblöð séu eitur í beinum þeirra er standa að útgáfú fréttablaða, hafði Feykir samband við annan þeirra sem starfað hefur frá upphafi að útgáfu Sjónaukans, Odd Sigurðarson rafeindavirkja. Hinn er Arsæll Daníelsson. „Þetta byrjaði þannig að við vorum að brasa við að auglýsa kvikmyndasýningar héma í félags- heimilinu og fengum að ljósrita hjá Ingólfi í Sparisjóðnum. Þá kom hann með þá hugmynd aó við ættum að gefa út auglýsinga- blað. Við slógum til og fyrst í stað var þetta sett upp við ffumleg skil- yrði hjá okkur og prentað í Húna- prenti. Fljótlega kom í ljós að með þessu móti stóó útgáfan rétt undir sér, þannig að við fómm út í aó fjárfesta í eigin tækjum. Oft unnið til fjögur á nóttunni Fyrst í stað keyptum við ljósrit- unarvél, sem borgaði sig upp á einu ári, þá var farið í að kaupa prentvél og síðan hefur tækjakost- urinn verið bættur enn frekar, þannig að í dag emm við orðnir vel settir hvað búnað varðar. Sér- staklega eftir að við fengum okkur brot- og röðunarvél fyrir ári, sem sparar okkur mikinn tíma og fyrir- höfn. Núna er þetta eiginlega bamaleikur miðað við það sem var lengi vel, en þá kom vorum vió að vinna til þrjú fjögur að nóttunni öllu jöfnu. Við vinnum blaðió á mánu- dags- og þriðjudagskvöldum og dreifum því síðan með póstinum á miðvikudagsmorgnum. Eini gall- inn í dag er hvað auglýsingamar berast stundum seint til okkar. Við emm kannski ekki nógu harðir að setja mönnum tímamörk, en það er líka erfitt að setja stólinn fyrir dymar, því stundum ber hlutina hratt að hjá fólki”. Heldurðu að blaðió njóti meiri velvildar hjá fólki, út á að það er ungmennafélagið sem nýtur góðs af? ,Já, ég býst við því og þess vegna séum við ekki bankaðir eins fast þegar einhver mistök eiga sér stað, eins og alltaf geta komið fyr- ir. Það er enginn vafi að Kormák- ur nýtur mjög góðs af útkomu blaðsins, hefur af því bæði óbein- an og beinan hagnað, þó innkom- an hafi að miklu leyti enn sem komið er farið í tækjakaupin”. Auk starfs síns við Sjónaukann hefur Oddur einnig gegnt starfi gjaldkera í stjóm Kormáks síðustu átta árin. Hann er einn þeirra sem vill beita sér fyrir byggingu í- þróttahúss á Hvammstanga. Ofvaxinn leikfimisalur á Laugarbakka , Jvlenn sjá fram á nauðsyn þess að hér rísi hús, en það em náttúr- lega mismunandi skoðanir um hver stærð hússins á að vera. Best væri ef við mundum ráða við að byggja stórt hús með löglegum handknattleiksvelli. Ég hef verið að kynna mér rekstur þess konar húss í Þorlákshöfn, og sýnist að miðað við þann kosmað sem sveitarfélagið og ungmennafélag- ið þarf að leggja út vegna afiiota í- þróttahússins á Laugarbakka, sé vel forsvaranlegt að byggja svona hús héma. Kormákur þarf að greiða um 200 þúsund krónur á mánuði í leigu og akstur végna níu íþróttatíma í viku á Laugarbakka. Menn sjá að það yrði mikið óhag- ræði og kostnaður í því í framtíð- inni að þurfa að keyra bömum og unglingum í tíma á Laugarbakka, og að mínu mati er húsið þar líka óhagkvæmt, Ld. að því leyti að ör- yggisvæði vantar meðfram leik- völlum. Þetta hús er í rauninni of- vaxinn leikfimissalur”. Rafeindaverkstæði sitt hefur Oddur rekið í rúman áratug, eða síðan hann lauk námi í greininni við Iðnskólann í Reykjavík. , J’að mætti vera meira að gera. Þjónustusvæðið er ekki stærra en svo að vinnan jafnar sig upp með 40-50% starf. Ég var fyrst í stað með vísi að verslun meó, en gafst upp á að liggja með vaming eins og t.d. sjónvarpstæki, þar sem að það er mjög dýrt. Ég er hinsvegar íolki innanhandar með val á tækj- um og útvega þau ef þess er ósk- að? Ætluðu að gleypa of stóran bita Þegar vinnan er ekki meiri, hefur þá ekki hvarflað aö þér að flytja burtu af staðnum? ,J4ei aldrei alvarlega, maður er nú fæddur og uppalinn héma. Ég reyndi á tímabili að vera í annarri vinnu með, en það gekk ekki upp, Oddur Sigurðarson við vinnu á rafeindaverkstæði sínu. ill. Það er að við skyldum fá að endurbyggja sjúkraliúsið, sem þýðir að þessi þjónusta verður hér til staðar áfram. Heilbrigðisþjón- ustan er náttúrlega einn af gmnn- þáttunum fyrir vexti og viðgangi byggðarlagsins. Einnig var mjög gott að áframhaldandi starfsemi Meleyrar skyldi tryggð og stoðum skotið undir rekstur sauma- og prjónastofunnar Drífu. Þá má ekki gleyma einu nýju atvinnusköpun- inni sem eitthvað hveður að, stofn- un Iguls hf. Allt em þetta mikil- væg störf, og þau er ekki auðfeng- in”, sagði Oddur að endingu. Fasteign til sölu! Til sölu tveggja herbergja íbúö aó Skúlabraut 14 á Blönduósi. Upplýsingar gefa Anna og Sævar í síma 24649 og Gísli í síma 24321. SCANDIC PARKET Scadic parket er íslensk gæðaframleiðsla Gegnheilt spónaparket sem má slípa oftar en einu sinni Hentar jafnt fyrir heimili og stofnanir Gefur sérhverju herbergi glæsilegt nýtísku útlit Ódýrt, slitsterkt og rakaþolið Auðvelt aö leggja og þrífa Boróastærð í 12 mm þykkt er 22,5x122,5 sm, 2,205 fm í pakka Borðastæró í 22 mm þykkt er 39x248 sm, 2,9 fm í pakka Lakkað í tveimur umferðum með sýruhertu glæru lakki Hægt aó sérpanta bæsað í mörgum litum Bygginga- vörudeildir

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.