Feykir - 26.01.1994, Qupperneq 6
6 FEYKIR 4/1994
Feykir fyrir 10 árum
Tindastólsmenn byrjuðu leik-
inn vel gegn Njarðvíkingum í
úrvalsdeildinni sl. sunnudags-
kvöld. I»að var undir Iok fyrri
hálfleiks sem Njarðvíkingar
náðu góðum leikkafla og lögðu
þar með grunninn að sigri sín-
um. Lokatölur í leiknum urðu
90:74 fyrir Njarðvík. Verður sú
frammistaða að teljast nokkuð
góð, þar sem að Njarðvíkingar
eru trúlega með eitt besta lið
landsins í dag og það reynslu-
mesta.
Forskot þaó sem Njarðvíking-
ar náðu undir lok fyrri hálfleiks
var of mikið til að Tindastóls-
menn næðu að vinna það upp í
þeim seinni. Tindastóli hafði tek-
ist að halda hraðanum niðri í
leiknum þar til um 5 mínútum
fyrir leikhlé að heimamönnum
tókst að keyra upp hraðann með
því að spila pressuvöm út um all-
an völl. Á þessum tíma skoruðu
Tindastólsmenn einungis tvö stig.
Staðan í leikhléi var 50:35. Páll
og Róbert skoruðu 21 stig hvor
fyrir Tindastól, Ingvar Ormarsson
8, Sigurvin Pálsson 8, Lárus D.
Pálsson 7, Omar Sigmarsson 5
og Hinrik Gunnarsson 4.
Páll Kolbeinsson var í aðal-
hlutverki hjá Tindastólsmönnum
í leiknum og einnig lék Róbert
Buntic mjög vel. Sigurvin Páls-
son lék sinn fyrsta lcik meó
Tindastóli og virðist þessi ungi
piltur lofa góðu.
Til stóð að Tindastóll léki
gegn KR-ingum syðra á föstu-
dagskvöldið, en þeim leik var
frestað þíir sem tvísýnt var með
færð, og veðurútlit slæmt. Leikur-
inn hefur nú verið settur á næsta
föstudagskvöld og á þriðjudags-
kvöld er síðan von á Grindvíking-
um í heimsókn.
Jón Arnar Magnússon Tinda-
stóli setti um helgina Islands-
met í sjöþraut innanhúss á
Meistaramóti Islands. Jón
Arnar hlaut 5457 stig og bætti
eldra metið sem hann átti
sjálfúr um rúmlega 300 stig.
Olafur Guðmundsson HSK,
frændi Jóns, varó í öðm sæti
með 4911 og í þriðja sæti kom
síðan Húnvetningurinn Friðgeir
Halldórsson. Friðgeir hlaut
4512 stig.
Árangur Jóns Amars í þraut-
inni var eftirfarandi: 50 m hlaup
5,9 sek., langstökk 7,32 m, kúlu-
varp 14,32 m, hástökk 2,06 m
(héraðsmet), 50 m grindahl. 6,9
sek., stangastökk 4,40 m og
1000 m hlaup 3:06,7 mín.
í frétt af héraðsmóti í frjálsum
íþróttum nýlega var tilgreindur
rangur tími hjá Helga
Sigurðssyni í 50 metra hlaupi.
Réttur tími er 6,0 sek. en ekki
7,1 eins og sagt var.
Skelveiðar kærkomin
búbót á Tanganum
Veiðar á hörpuskel hafa geng-
ið vel í vetur. Tveir bátar eru gerð-
ir út á þessar veiðar frá Hvamms-
tanga og fundu þeir ný mið á
Miðfirði í vetur. Aflinn sem á
land berst er unninn hjá Meleyri.
Þessar veiðar veita 15-20 manns
atvinnu.
Að sögn Þórðar Skúlasonar
sveitarstjóra á Hvammstanga hafa
þessar veiðar hindrað atvinnuleysi
á Hvammstanga í vetur. Línu-
veiðar hafa undanfarin ár verið
stundaðar frá Hvammstanga. Þær
drógust saman vegna aflaleysis
og em ekkert stundaðar í vetur.
Bílar ekki gangsettir
vegna ófærðar
Mikil ófærð hefur verið um
Húnaþing allt síðan um jól. Hefur
því verið rninna um mannamót en
oft er á þessum árstíma. Vitað er
að fólk var flutt á snjósleðum úr
nýársboðum í Vatnsdal og víða
vom þeir einu samgöngutækin,
sem sæmilega komust leiðar sinn-
ar. Messur féllu niður í mörgum
kirkjum um jól og áramót og
bamaskemmtanir féllu niður í
Bólstaðarhlíðarhreppi, Vatnsdal
og Víðidal. Jón í Artúnum segir
snjó þar um slóðir með meira
móti og sömu sögu segja menn úr
Vatnsdal. Vegna ófærðar gang-
setti Kristófer í Köldukinn ekki
bíl sinn í hálfan mánuð, frá að-
fangadegi að telja, og telst slíkt til
tíðinda.
Samgöngur við aðra lands-
hluta hafa verið mjög stirðar og
iðulega hafa ferðamenn orðið
hríðtepptir á leið sinni. Gest-
kvæmt hefur því verið vegna
þessa, sérstaklega á bæjum í
Hrútafirði, í Staðarskála og á Hót-
el Blönduósi. Einnig licfur fólk á
leið norður oft þurft að gista á
Hreðavatni eða Borgamesi. T.d.
komst sumt af því fólki sem lagði
af stað norður föstudaginn 6. jan-
úar ekki til Blönduóss fyrr en
miðvikudaginn 11. janúar.
Jónas Árnason á
Skagaströnd
Þió munið hann Jónas, var yf-
irskrift kvöldvöku sem Leik-
klúbbur Skagastrandar gekkst fyr-
ir að kvöldi 28. desember sl. Þar
var lesið upp úr verkum Jónasar
Ámasonar og sungin ljóð eftir
hann. Hápunktur skemmtunarinn-
ar var þá Jónas sjálfur kom upp á
sviðið, spjallaði við fólkið og
stjómaói fjöldasöng. M.a. gerði
frumsaminn bragur mikla lukku,
sem Jónas kvaðst hafa ort um
Skagstrending, sem hann var mcó
á togara. Var sá í mjög léttum dúr,
enda kveðinn í tilefni dagsins og
tóku samkomugestir kröftuglega
undir í viðlaginu.
Magnús B. Jónsson sagði að
skemmtunin hefði tekist mjög vel,
og verið vel sótt miðað við það að
bæði Dallas og Bubbi vom sam-
hliða í sjónvarpinu.
Vegna ófærðarinnar var erfitt
að að ná Jónasi norður yfir heið-
ar og varð aó senda tvo mcnn á
jeppa suður og vom þeir á sjö-
unda tíma að berjast frá Kópa-
reykjum meó skáldið og komu
ekki til Skagastrandar fyrr en
skömmu áður en samkoman átti
að hefjast.
GRETTISSAGA
Texti: Kristján J. Gunnarss.
Teikningar: Halldór Péturss.
121. Gísli sat við skip um haustið, en um morgun-
inn áður en hann reið þaöan, talaði hann til fylgdar-
manna sinn: „Nú skulum vér ríða í litklæðum í dag
og látum skógarmanninn það sjá, að vér eram eigi
sem aðrir fömmenn, er hér rekast daglcga".
Grettir sá að þrír menn riðu sunnan yfir Hítará, og
skein á skrúðklæðin og smelta skjölduna. Var honum
forvitni á að finna þá, er svo mikið gambraði, tekur
nú vopn sín og hleypur ofan.
122. Gísli mælti: „Maður fer ofan úr hlíðinni og
heldur mikill. Verðum nú við rösklega, því að hér ber
veiði í hendur".
Gretdr kom að í því og tók til klæðasekks, er Gísli
hafði fyrir afitan sig við söóul sinn, og mælti: „Þctta
mun ég hafa. Ég lýt oft að litlu“.
„Vera má að þér þyki lítið", segir Gísli, „en held-
ur vil ég láta þrjá tigu hundraða. En ofarlega mun
liggja ójafnaður í þér, og sækjum aó honum piltar.
123. Grettir lét hefjast fyrir og veik að steini þeim,
er þar stendur við götuna og Grettishaf er kallað, og
varðist þaðan. Gísli eggjaði fast fylgdarmenn sína.
Grettir sá nú, að hann var eigi slíicur fullhugi, sem
hann lést, því að hann stóó jaffian að baki mönnum
sínum. Gretti leiddist nú þófið, og sveipaði saxinu og
hjó annan fylgdarmann Gísla banahögg og hljóp nú
frá steininum og sótti svo fast, að Gísli hrökk fyrir
allt út með fjallinu. Þá féll annar fömnautur Gísla.
124. Grettir mælti þá: „Það sér lítt á, að þú hafir
víóa vel lram gengið, og illa skilst þú við þína félaga".
Gísli svarar: „Sá er eldurinn heitastur, er á sjálf-
um liggur, og er illt að fást við heljarmanninn".
Kastaði Gísli þá vopnunum og hefúr á rás á und-
an út með fjallinu. Grettir gefúr honum tóm til að
kasta því, sem honum líkar, og í hvert sinn er Gísli
sér ráðrúm til, kastaði hann einhverju klæði. Fór
Grettir aldrei harðara cftir en sund var á milli þeirra.
Góð byrjun dugði
ekki í Njarðvík
Jón Arnar
Einar Sigtryggsson:
Hugleiðing
Frelsisstríð hcíðu EES samning
feður vorir, Alþing samþykkti,
sigurreijir stjórnarskrá þraut
með sigg í lófa. stýrði valdníðslu.
Veraldarvaskir Mat að engu
valdið sóttu. okkar forseti
Sýndu samhug meirihluta þjóðar,
og sóknarmátt. mannvits-hugsjónir.
Ognaði um aldir Aldrei skal lúta
okkarþjóð hafis, erlendu valdi,
úr iðrun jarðar framtíð byggja
eldar brunnu. með fyrirhyggju.
Sultur og seira Leysum úr lœðingi
sátu á verði, lífskraft þjóðar,
á köldu skeri úrjjötrum skulda
í kafaldsbyl. skal frjáls þjóð rísa.
Fljóta að feigðarósi Æskan og óbornir
flokksleiðtogar, erfa landið,
heimta hervernd fylgi framsali
háðirNato. fornar dygðir,
Með jjöregg Islarids trúarmáttur og
að fótakefli traust í orði
sjálfstœði þjóðar seiðmagni gifta
sett að veði. greinda kynslóð.