Feykir


Feykir - 02.02.1994, Page 2

Feykir - 02.02.1994, Page 2
2FEYKIR 5/1994 Kemur út á mióvikudögum vikulega. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Aöalgata 2, Sauóárkróki. Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauóárkróki. Símar: 95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703. Ritstjóri: Þórhallur Asmundsson. Fréttaritarar: Magnús Olafsson Austur - Húnavatnssýslu og Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu. Blaóstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur Hermannsson, Siguröur Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftarveró 137 krónur hvert tölublaó með viröisaukask.. Lausasöluverð: 150 krónur meó viróisaukask. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf. Feykir á atMld að Samtökum bæja- og héraðs- fréttablaða. Unglingaheimilið Stórugröf: Vilji til að halda starf- semi áfram í firðinum en finna þurf i nýtt og hentugra húsnæði Fullur vilji er innan stjórnar Ung- lingaheimilis ríkisins að kanna möguleika á að halda áfram starfscmi dcildar með svipuðu formi og verið hefur starfrækt í Stórgröf í Skagafirði frá liðnu sumri, og geGst mjög vel, en stofh- sctning dcildarinnar á sínum tíma var tilraunavcrkcfni. Starf- scmin mun þó verða flutt frá Stórugröf, þar sem húsnæði þar þykir of lítið og óhcntugt, og leit- að verður eftir hcntugu húsnæði á Norðurlandi, væntanlega í Skagafirði, enda eru starfsmcnn- irnir 12 sem starfað hafa í Stóru- gröf allir búsettir á því svæði. Eins og komiö hefur fram í Feyki er starfrækt í Stórgröf lokuð deild. Þar hafa verið í vistun ung- menni, sem engin úrræði höfðu haldið fram að komu þeirra þangað. Ungmennin fjögur munu væntan- lega ljúka dvöl sinni í Stórugröf í vor og þá fara að takast á við lífið upp á eigin spýtur í óvemduðu um- hverfi. Þrátt fyrir að um lokaða deild sé að ræða í Stórugröf hefur ungling- unum, sem eru á 1 16. aldursári ekki verið haldið föngnum. Lögð hefur verið mikil áhersla á verk- þjálfun þeirra og ennig útivist, svo sem fjallaferðir. Að sögn Bryndísar Guðmundsdóttur forstöðumanns deildarinnar í Stórugröf verður við flutning deildarinnar þaðan leitað að hentugum stað sem gefur tilefni til að hýsa fleiri unglinga en verið hafa í Stórugröf, cnda er svo fá- menn vistun mjög dýrt úrræði. Þá er hugmyndin að á staðnum sé hægt að stunda búskap, en í Stórgröf hef- ur það háð starfseminni að nokkru leyti, að fjölbreytni í verkefnavali er af skomum skammti. Kaup bæjarins á Villa Nova felld naumlega í bæjarstjórn Á fundi bæjarstjórnar Sauðár- króks í gær var fellt með fjór- um atkvæðum gegn þremur að heimila kaup bæjarins á Villa Nova, en viðræður hafa átt sér stað í nokkurn tíma um kaup bæjarins á þessu húsi. Allir þrír bæjarfúlltrúar framsóknar beittu sér á móti kaupunum, sem og Hilmir Jóhannesson af K-lista, og þau Steinunn Hjart- ardóttir Sjálfstæðisflokki og O- lafúr Arnbjörnsson Alþýðu- bandalagi sátu hjá. Knútur Aadnegard og Björn Björnsson af D-lista og Björn Sigurbjörns- son af A-lista voru fylgjandi kaupunum. Miklar umræður urðu um mál- ið á bæjarstjómarfundinum í gær. Vildu þeir sem andsnúnir kaup- unum meina að þau væru ótíma- bær, nær væri að snúa sér aó því að ljúka við mörg þau verkefni sem ekki hefði verið lokið við í bænum og brýnni væru. Fylgj- endur kaupanna vildu hinsvegar meina að réttur tímapuntkur væri nú fyrir bæinn að tryggja sér kaup á húsinu, cnda hefði húsfrióur- nefnd tekió erindi forráðamanna bæjarins vel, er þeir héldu á fund nefndarinnar syðra. Bæjarráð hafði fyrir fundinn í gær samþykkt kaup bæjarins á Villunni fyrir6,8milljónirkróna, enda mundi semjast um greiðslu- kjör við núverandi eigendur Villa Nova, sem er samnefnt hlutafélag einstaklinga sem að stærstum hluta eru félagar í Alþýðuband- lagsfélagi Skagafjarðar. Fyrir fundinum í gær lá bókun frá Stefáni Logi Hraldssyni bæj- arfulltrúa framsóknar, sem einn þriggja bæjarráðsmanna var á móti kaupunum. Þar segir hann andstöðu sína við kaupin byggjast á því að þau séu ótímabær nú og fjármunum þessum sébeturvar- ið í nauðsynlegum framkvæmd- um á vegum bæjarins, sem gætu orðið til ffekari atvinnusköpunar í bænum. Margir vilja meina að frá fag- urfræóilegu og sögulegu sjónar- miði sé Villa Nova eitt merkasta hús í bænum, en húsið var byggt af miklum stórhug á sínum tíma, 1903, og þótti þá eitt það glæsi- legasta í landinu. Hugmundir eru um að Villa Nova verði nokkurs konar „Höfði“ Sauðárkróks og húsið geymi einnig nokkum hluta þeirra málverka og safngripa sem eru í eigu Listasafns Sauðárkróks og annarra safna, og verið hafa í geymslu hingað og þangað um bæinn. Að sögn þeirra er gerst þekkja liggur Villa Nova undir skemmdur og þarfnist húsið viðgerðar áður en langt um liður. Stafú þess er veit mót suðri sé t.d. ónýtur af fúa. Hörð gagnrýni í fréttabréfi verkalýðsfélagsins á Skagaströnd: Stjórn Hólaness sofið á verðinum „í heimi viðskiptanna í dag er hver sjálfúm sér næstur. Og hér hefði mátt ætla að stjórn Hólaness stæði fyrirtækinu næsL En ekki verður betur séð en stjórnendur þess hafi sofið á verðinum og látið flatreka að feigðarósi. Einhverjir hefðu reynt að bjarga sér eða gera eitthvað. Ef ffá eru talin þau 500 tonn sem fyrirtækið fékk afhend ffá Skagstrcndingi og kolinn síðsumars þá hefúr ekk- ert verið unnið í húsinu. Önnur hús hafa verið að kaupa fisk og keyrt honum um landið þvert og endilangt. I>etta hefúr ekki verið framkvæmanlegt hjá Hólanesi af einhverjum orsök- um og fiski sem nánast var landað gegnum húsið var ekið burt og hann unninn annars staðar“. Þessi harða gagnrýni á stjóm- endur Hólaness á Skagaströnd kemur fram í Mysunni, fréttabréfi Verkalýðs- og sjómannafélags Skagstrandar er nýlega kom út. Þar er ekkert verið að skafa utan af hlutunum og því beinlínis hald- ið fram að dugleysi hafi hrjáð stjómendur Hólaness og þeir ekki gert minnstu tilraun til að bjarga rekstri fyrirtækisins, eftir að það missti tryggingu fyrir hráefni við úteldingu gamla Amars og komu þess nýja um síðustu áramót. Þar sem talað er um að fiski hafi nánast verið landað í gegnum húsið, er sú staðreynd að síðasta sumar og haust var mjög góð veiði færabáta út af Skaga, lögðu þeir allir upp á Skagströnd og var fiskurinn seldur í gegnum fisk- markaðinn þar og fluttur burtu til vinnslu. Höfðu menn þá orð á að blóðugt hafi verið aó horfa á eftir því hráefni burtu. Hólanes hefur greiðslustöðvun til 9. mars nk. Tekin var sú stefna í rekstri fyrirtækisins að leggja megináherslu á rekstur rækju- vinnslunnar, og var af þeim sök- um unnt að veita mun fleiri vinnu í rækjunni síðasta sumar en jafti- an áður. Ekki náðist í Lárus Ægi Guómundsson framkvæmda- stjóra Hólaness í gær til að leita á- lits hans á þeirri gagnrýni sem fram kom í fréttabréfi VSS, en Lárus hefur tilgreint þá ástæðu helsta fyrir slæmri stöðu Hóla- ness, að afkoman úr rækjunni hafi ekki dugað til að standa straum af skuldum og öðrum fastakostnaði sem fylgir rckstri íyrirtækisins.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.