Feykir - 02.02.1994, Blaðsíða 3
5/1994 FEYKIR3
Borgarbræður -
Slátursamlag -
Framleiðendur
Eftir að hafa heyrt um vel-
gengni Borgarbræðra í hádegis-
fréttum útvaips 15. jan. sl., því
næst lesið um þá athyglisverða
grein í Morgunblaðinu frá 13. jan.
og svo lesið á sama stað í Mogg-
anum viku seinna, 20. jan. athuga-
semd varðandi þá grein frá stjóm-
arformanni Slátursamlags Skag-
firðinga hf, sú athugasemd varð-
andi þá grein frá stjómarformanni
Slátursamlags Skagfirðinga hf., sú
athugasemd var því næst endur-
sögð í Feyki 26. jan. ásamt við-
bótarfréttum um staðfestingu Hér-
aðsdóms á nauöasamningum Slát-
ursamlagsins, þá fréttir maður í
dag, 27. janúar, í sjónvarpi að fyrir-
tækið Borgarbræður hf hafi verið
lýst gjaldþrota. Þetta kennir manni
að skjótt getur skútan sokkið, en
svo uppsker víst hver sem sáir.
Slæmt er íyrir okkur framleið-
cndur að standa frammi fyrir því
að afskrifa þurfi helming þeirrar
fjárhæóar sem við eigum ógreidda
hjá afúrðastöð íyrir afurðir okkar
og fá afgangrinn greiddan á
löngum tíma án vaxta. Háværar
raddir heyrast víða um að bændur
eigi að taka afúrðasölumálin i sínar
hendur, reka afurðastöðvamar
sjálfir. En af hverjum var Slátur-
samlaginu stjómað? Bændum
heldég?
Því getur maður vart orða
bundist og velt því fyrir sér hvað
fór úrskeiðis. Hingað til hafa
Borgarbræður verið meinið og
slæm staða Slátursamlagsins or-
sakast af því að þeir borguðu ekki
þær vömr sem þeir fengu, né
stæðu við gerða samninga. Einnig
hefúr verið talað um annan „aðila“
sem varð gjaldþrota á sl. ári og
skuldaði Slátursamlaginu „álíka“
upphæð og Borgarbræður. Lítið
hefur farið fyrir nafngreiningu á
þeim „aðila“ og upphæö sú er
hann skuldaði ekki tíunduð frekar.
Það kemur manni því á óvart
að Slátursamlagið átti eignarhlut í
umræddum „aðila“ og afskrifa
þurfti þar ríflega töfalda þá upp-
hæð sem Borgarbræður skulda,
eða yfir 50 milljónir króna. Hvað
hafa menn verið að hugsa með
rekstur á eigin íyrirtækjum? Ekki
munu vera mörg ár síðan Slátur-
samlagið eignaöist þessa aðild að
umræddu fyrirtæki. Ekkert hefur
verið skýrt frá samskiptum þess-
ara fyrirtækja og engar ástæður
gefnar fyrir því að tapið þar var
svo stórt. Vom því viðskiptin við
Borgarbræður ef til vill kærkomin,
þar sem mátti benda á skuldarann
og halda eigin mistökum utan
umfjöllunar.
Eg met því stöðuna svo að
stjómendurSlátursamlagsins skuldi
þeim framleiðendum sem afskrifa
þurftu sínar afúrðir, skilyrðislaust
skýringar á þessu tapi. Vænti ég
þess að það verði gert skjótt, því
ekkert fyrirtæki blómstrar ef
menn koma ekki heiðarlega fram.
Með þökk fyrir væntanleg
svör.
Vagn Þormar Stefánsson.
Safnamál komin út
Nýlega kom út 17. árgangur
Safhamála fyrir árið 1993, gefið út
af söftiunum í héraði, þ.e. bóka-
safninu, skjalasaíhinu og byggða-
safninu í Glaumbæ.
Efhi ritsins er með hefðbundnu
sniði, það flytur ársskýrslur safn-
anna fyrir árið 1992, auk annars
fróðlegs efhis.
I skýrslu byggðasafnsins kemur
fram, að 16350 gestir skráðu
komu sína í gestabók safnsins í
Glaumbæ á árinu 1992 og um
9000 manns komu í Víðimýrar-
kirkju. Um 220 munir bámst safn-
inu.
I bókasafninu var fjöldi lán-
þega með lánsskírteini alls 536 og
hafði nokkuð fjölgað. Einnig vora
útlán nokkra meiri en árið áður,
eða samtals 23.804.
I skjalasafhinu höfðu 790
manns skráð sig í gestabók og
samtals borizt 117 gjafir frá 80
einstaklingum, bæði ljósmyndir,
handrit og ýmis skjalgögn. Þar era
nú komin á skrá 2.372 hand-
ritanúmer og nokkuð á 11. þúsund
mannamyndir.
Af öðra efhi í ritinu er helzt að
nefna sýnishom af vísnagerð
Bjöms Péturssonar frá Sléttu í
Fljótum, sem fluttist til Kanada og
bjó þar í 26 ár, en kom svo aftur
heim. Hefur sú venja skapast, að í
hverju hefti Safnamála birtist
kynning á einhverjum þekktum
skagfirskum hagyrðingi úrval
vísna hans.
Þá er birt langt og skemmtilegt
bréf, sem Jón Osmann Magnús-
son ritaði Páli Vídalín Bjamasyni
vini sínum um fjóram mánuðum
áður en hann gekk af þessum
heimi. Segir þar m.a. frá mann-
fagnaði og viðureign við seli og
konur.
Greint er frá miklu safni bóka
og blaða um flug, sem Haukur
Stefánsson á Sauðárkróki hafði átt
og ekkja hans, Minný Leósdóttir,
gaf bókasafninu á árinu. Að lok-
um era birtar allmargar óþekktar
ljósmyndir úr héraðsskjalasafhi.
Ritið er 36 bls. að stærð,
prentað hjá SAST á Sauðárkróki
og hið vandaðasta að allri gerð.
Frá námskeiði hjá starfsfólki sútunarverksmiðjunnar Loðskinns í Strönd.
Góð aðstaða í verkalýðsfélaginu við Sæmundargötuna:
Mikið að gerast í Strönd
.Þetta er orðin mjög góð að-
staða hjá okkur varðandi nám-
skeið, ráðstefhur, ftmdi og
mannfagnaði yfirleitL Við erum
orðnir vel tækjum búnir varð-
andi miðlun á fræðsluefni ým-
isskonar, erum með mynd-
varpa sem getur kastað af blöð-
um engu síður en glærum.
Einnig erum við með vél sem
varpar efni af myndböndum
upp á vegg í margfaldri stærð
miðað við stærstu sjónvarps-
tæki og þannig mætti áfram
telja“, segir Jón Karlsson for-
maður Verkalýðsfelagsins Fram.
Að undanfömu hefur verið
mikið um að vera í Strönd, en svo
heitir verkalýðshúsið við Sæ-
mundargötu. Nýlega vora þar 60
manns á námskeiðum á vegum
starfsfræðunefndar fiskiðnaðar-
ins, en í samningum fiskverka-
fólks er kveðið á um rétt þess á
námskeiðum, sem veitir þeim
ákveðin réttindi og bætt launa-
kjör. Nú stendur yfir vinnuvéla-
námskeið þar sem era 20 þátttak-
endur og þá er nýhafið tölvunám-
skeið sem stendur fram á vor.
A annarri hæð Strandar er sal-
ur er tekur um 50 manns með
góðu móti við dúkuð borð, en
salurinn er einnig leiguður út til
veisluhalda og mannfagnaða. í
Strönd er einnig eldhús með öll-
um búnaði og við leigu salarins
era veitingar útvegaðar sé þess
óskað. Að sögn Jóns fá félags-
menn í Verkalýðsfélaginu Fram
og Iðnsveinafélaginu helmings af-
slátt vegna einkaafhota. Strönd er
starfrækt af samnefndu sameign-
arfélagi sem er í eigu Verkalýðs-
félagsins Fram og Iðnsveinafélags
Skagafjarðar.
íbúðir í félagslega
kerflnu til sölu!
Til sölu er fjögurra herbergja, 130,9 fm, félagsleg eignaríbúð að Víðimýri
10 (0402), Sauðárkróki ásamt bílgeymslu.
Áætlað verð er kr. 8.835-000.oo. Auk bílageymslu samkvæmt
reglum þar um.
Lánakjör: 90% lán úr Byggingarsjóði verkamanna til 43ja ára.
10% útborgun að viðbættu 25% af verði bílageymslu.
Til sölu Almenn kaupleiguíbúð fjögurra herbergja, 101,5 fm, að Skógargötu 2
(0101) Sauðárkróki.
Áætlað verð kr. 7.485.000.oo
Lánakjör: 70% lán úr Byggingarsjóði verkamanna til 43ja ára.
20% sérstakt lán til fimm ára.
Útborgun 10% eða 30% auk kostnaðar.
Umsóknarfrestur er til 19- febrúar 1994.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á bæjarskrifstofu, í síma
35133.
Sauðárkróki 27. febrúar 1994
Húsnæðisnefnd Sauðárkróks.