Feykir


Feykir - 02.02.1994, Síða 6

Feykir - 02.02.1994, Síða 6
6FEYKIR 5/1994 hagyrðingaþáttur 157 Heilir og sælir lescndur góðir. í síðasta þætti birtist vísan, Fljóðin annast um sinn hag, sem gerð var á Akureyri eftir að fólk hafði flúið þar í loftvamarbyrgi. Hef ég nú fengið þær upplýsingar, sem ég þakka fyrir, að vísan muni vera eftir Þorstein Magnússon frá Gilhaga. Þá er þess að geta að Bragi Kárason er skorað var á hér síóast mun ekki láta heyra írá sér hér í þættinum. Langar mig til að óska eftir því við Heiðrúnu Jónsdóttur Litlu-Ásgeirsá V.-Hún., að hún láti til sín heyra fyrir næsta þátt. Eins og fram hefur komið áður hér í blaðinu urðu þau tímamót á ævi Jóhanns Guðmundssonar í Stapa að hann fyllti sjöunda tuginn 22. janúar sl. Finnst mér við hæfi að birta lesendum Feykis örlítið sýnishom af því sem ort var á þessum tímamótum til þessa góða drengs og fjöl- hæfa snillings í vísna- og ljóðagerð, og flutt var í afmælisfagnaði í Árgarði 22. jan. sl. Kristján Stefánsson frá Gilhaga yrkir svo. Hér í kvöld þegar sanian við sitjum meðan sögunnar spjöldum er flett þá er margt sem að minnast við þurfum enda megum við taka á sprett. Komdu með upp á Heiði við höldum þar er hatningja auðlegð og völd þar í hásœti hejja við eigum þig sem hér ert að veita í kvöld. Það er nótt með sinn albjarta unað það er algleymi í líðandi stund, og í moldryki hraðfara hesta markar hófurinn sporin í grund. Það er áð og við uppsprettu tœra sem í unaði svalar og þvœr, það er hægt bœði að lcera og lifa þegar lífsblóm í hjartanu grœr. Það er sólris með gull-flóði-geisla sem að guðlegar myndir upp ber það er dýrlegur dagur upp runninn því er drauminum lokið hér. Vertu sœll meðal góðvina glaðra gakktu oftar á draumanna völd. Gakktu frjáls og á gœfunnar vegi gakktu heill inn í komandi öld. Erlingur A. Jónsson er höfundur að næstu vísu. Skálum klingja skáldnueringar skipa hring um kvœðahöld. Hátt á þingi hagyrðingar honum syngið lofí kvöld. Grímur Lárusson frá Grímstungu yrk- ir svo: Segginn hyllum sjötugan sigg með harða lófa, orkuþrunginn ágœtan okkar Stapa-Jóa. Björtum hljómum beita kann í bragastrengjumfínum, skagfirskt blóðið hefur hann hreint í œðum sínum. Oft á fimdum lðunnar okkar sinni gleður. Ur bragasmiðju bráðsnjallar bögur sínar kveður. Viðmótið og hjartað hreint, hagyrðingur slyngur, enda erJói Ijóst og leynt Ijúfur Skagfirðingur. Kveikir víða gáska og grín, gott er það að tnuna. Láttu áfram Ijóðin þín lífga tilveruna. Þá koma næst vísur eftir Jón Gissurar- son í Víðimýrarseli. Afratn líður ceviskeið örfvast lífsins fengur svífur inn á scela leið sjötíu ára drengur. Enn skal leita í Ijóðanuil lítið heit að enda. Gleði veita hyggnum hal heillaskeyti senda. Léttmun kveða Ijúfa stund lífið meðan berðu. Þjóni gleði þinni lund þar til héðan ferðu. Mörgum er kunn sú sterka þrá sem Jói ber til öræfanna og allra ferða á vit þeirra, t.d. á þeim tíma er sinna þarf göngum og réttum. Næsta vísa er eftir Jóa og minnir mig að hún sé gerð í göngum á Eyvindar- staðaheiði fyrir rúmum 10 árum síðan. Eigum leið um auðn og grjót, ölduskeið og fláa. Frjálsan breiðir faðminn mót fjallaheiðið bláa. Önnur vísa kemur hér eftir Jóa og er hún gerð eftir næturvist á fjöllum. Sókn var greið áfrjálsan fimd fjarri leiðavöndum. Gott var að eyða unaðsstund inni á heiðalöndum. Þar með er komið að lokum þessa þáttar. Að síðustu heimagerð vísa sem mig langar til að senda okkar góða vini Jóa, meö hamingjuóskum á þessum tíma- mótum. Enn þig seiði kostaklár og kunna heiðin farna, veginn greiði um œviár andans leiðarstjarna. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum 541 Blönduósi, sími 95-27154. Grindvíkingar náðu hefndum Tindastóll tapaði stórt þrátt fyrir góðan leik lengst af Þrátt fyrir tæplega 20 stiga tap gegn Grindvíkingum í gærkveldi, sýndi Tindastólslið- ið ágætan leik lengst af, barátt- an var góð og ef liðið hefði aldrei sýnt slakari leiki en þennan í vetur væri það statt annars staðar í deildinni í dag. Grind- víkinga voru einfaldlega betri og áttu sigurinn skilið, en spennan í leiknum hefði átt að haldast lengur. Þar voru söku- dólgar slakir og beinlínis hlut- drægir dómarar leiksins, en þar hallaði talsvert á Tinda- stólsliðið í gærkveldi. Flest vafa- atriðið féllu gestunum í vil. Grindvíkingargerðu góða ferð til Sauðárkróks í gærkveldi og unnu mjög sannfærandi sigur á heimamönnum í Tindastóli, 89:70, eftir að hafa haft yfir í hálf- leik 41:39. Gestimir byrjuðu betur en Tindastólsmenn náðu sér síðan á strik og leikurinn var mjög jafn fram á íyrstu mínútur seinni hálf- leiks, að Grindvíkingar tóku góð- an sprett og komust 12 stigum yfir, meó tveim þriggja stiga körf- um frá Casey og Hirti og troðslu frá Guðmundi Braga. Páll Kol- beinsson hélt Tindastóli inni í lciknum með tveim þriggja stiga körfum í röð, en það var síðan upp úr miðjum seinni hálfieikn- um sem leiðir skildu og sigur Grindvíkinga var öruggur í lokin. Hjá Tindastóli voru Páll og Róbert góðir og þeir Lárus og Ingvarkomust ágætlega frá leikn- um. Stig Tindastóls: Páll Kol- beinsson 16, Robert Buntic 16, Lárus D. Pálsson 15, Ingvar Orm- arsson 12, Hinrik Gunnarsson 7, Sigurvin Pálsson 2 og Ómar Sig- marsson 2. Nökkvi Már Jónsson og Pétur Guómundsson áttu stjömuleik í Grindavíkurliðinu og Guömund- ur Bragason og Casey voru drjúgir. Stig Grindavíkur: Nökkvi Már Jónsson 22, Dwaine Casey 19, Pétur Guðmundsson 17, Guð- mundur Bragason 14, Hjörtur Harðarson 9, Marel Guðlaugsson 5, Ingi K. Ingólfsson 2 og Bergur Eðvarðsson 2. Dómaran Kristinn Albertsson og Ami Sigurlaugsson, slakir. Dómgæsla þeirra setti slæman svip á góóan leik. Áhorfendur 300. Maóur leiksins: Nökkvi Már Jónsson, Grindavík. Gangur leiksins: 0:4, 4:12, 6:15,19:19,28:29,36:36 (39:41) 41:46, 44:54, 50:56, 56:61, 60:70,64:76 (70:89) Hinrik Gunnarsson og félagar hans í Tindastóli áttu í erfið- leikum með Suðurnesjamenn í gærkveldi. Góð frammistaða Þryms í körfunni Þrymsmenn gerðu góða ferð til Þelamerkur við Akureyri um helgina, þar sem fram fór annað ijölliðamót af þremur í Norðvesturlandsriðli 2. deUdar íslandsmótsins í körfubolta. Þrymur sigraði í öllum þrem leikum sínum í keppninni, en á ólokið leik við USAH, sem tapaði þeim tveim leikjum sem liðið lék eins og USVH, en þessi leið eiga cinnig eftir að leiða saman hesta sína. Þrymur sigraði Leiftur, sem er efst í þessum riðli eins og er, með 21 stigs mun, UMFA með 17 stigum og USVH með 13 stigum. Nái Þrymur sigri á USAH stendur liðið jafnfætis Leiftri í efsta sæti riðilsins fyrir síðasta fjölliðamótið sem fjram fer á Blönduósi um miðjan mars. Vinalínan tveggja ára Vinalína Rauða kross íslands er tveggja ára um þessar mundir. Vinalína er símaþjónusta fólks átján ára og eldra, þar sem fyllstu nafnleyndar er gætt. Er hún opin á hverju kvöldi frá kl. 20-23. Til Vinalínunnar hringir fólk sem á við vandamál að stríða og eins þeir sem em cinmana og vilja spjalla. Þann 16. janúar 1992 hófu sjálfboðaliðar að sitja símvaktir. Ekki leið á löngu þar til símtöl bámst og hefur Vinalínan sýnt fram á að þörf er fyrir þjónustu scm þessa. Forvitnilegt er hve símtölum hefur fjölgað milli ára og að fleiri vita um Vinalínuna en áður. Samtöl síðasta árs vom þriðjungi fleiri en árið á undan. Sjálfboðaliðar Vinalínunnar em nú 45 talsins, af báðum kynjum og á ýmsum aldri. Auk þess aó sitja símvaktir sækja sjálfboðaliðar fræðslufundi um ýmis málefni og handleiðslu hjá sálfræðingi. Sjálfboðaliðar þurfa að fara í einstaklingsviðtal og sækja símanámskeið áður en þeir fá aó starfa hjá Vinalínunni. Námskeið fyrir nýja sjálf- boðaliða veróur haldið helgina 5.-6. mars 1994. Kjörorð Vina- línunnar em: ...Hefurðu einhvem til að tala við? ...Við emm til staðar. Vinalínan hefur græna síma- númerið 996464.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.