Feykir


Feykir - 02.02.1994, Qupperneq 7

Feykir - 02.02.1994, Qupperneq 7
5/1994 FEYKIR7 Sveinsstaðir í búsetu sömu ættar í tæpar þrjár aldir Ættarhöfðingjans Ólafs Jónssonar minnst á næsta ári Á næsta ári eru 150 ár síðan langalangafi minn Olafur Jónsson og kona hans Oddný Ólafsdóttir fluttu að Sveinsstöðum í Þingi. Ólafur var sonur Jóns Péturssonar síóar prests í Steinnesi og konu hans Elísabetar Bjömsdóttur prests í Bólstaðahlíð, Jónssonar, þess sem Bólstaðahlíðarætt er komin frá. Oddný kona Ólafs var dóttir Ólafs Bjömsson bónda á Litlu-Giljá. Þessi 150 ár hafa afkomendur þeirra hjóna búið á Sveinsstöðum í beinan karllegg og er ég sá fimmti í röðinni. Tel ég fullvíst að það séu ekki margar jarðir hér á landi sem undanfarin 150 árhafa verið setnar af sömu ætt í beinan karlegg, en gaman vær að frétta af því. Þessu til viðbótar má geta þess að langamma mín, Þorbjörg Kristmundsdóttir frá Kolugili í Víðidal, kona Jóns Ólafssonar, var af þeirri ætt, sem setið hafði á Sveinsstöðum frá því um 1700. Get ég því sagt að mínir forfeður hafi samfellt setið Sveinsstaði í tæpar þrjár aldir. Niðjamót og niðjatal Ákveðið er að minnast þessar- ar 150 ára búsetu með því að efna til niðjamóts Ólafs og Oddnýjar og verður það haldið 5. og 6. ágúst í sumar. Samhliða er verið að taka saman niðjatal þeirra hjóna. Þessi grein er skrifuð til þess að vekja athygli á þessu máli og reyna aó ná til þeirra ættingja, sem hugsan- lega hefðu hug á að mæta á niðja- móti og vilja láta upplýsingar vegna niðjatalsins. Á Blönduósi er gott hótel og hótelstjórinn einn af ættinni og við tjaldstæði Blönduóss eru nokkur sumarhús til útleigu og hafa væntanlegir þátttakendur á niðjamótinu for- gang aó leigu þeirra en verða að píinta þau fyrir febrúarlok nk. Ymsir aðrir gistimöguleikar eru í héraöi en fólki er bent á að tryggja sér gistingu sem fyrst. Dagskrá mótsins hefur ekki endanlega ver- ið samin, en allar hugmyndir eru vel þegnar. Fjórtán börn og fjöldi afkomenda Oddný og Ólafur áttu 14 böm og komust 10 þeirra upp. Þau voru þessi: Elstur var Jón bóndi á Sveinsstöóum, langafi minn. Meóal alkomenda má nefna Frið- rik Pál Jónsson fféttamann á Rík- isútvarpinu og Guðrúnu Halldórs- dóttur skólastjóra Námsflokka Reykjavíkur. Ánnað bam var El- ísabet. Dóttir hennar Kristín gift- ist Stefáni Þórðarsyni Guðjohnsen kaupmanni á Húsavík. Meðal af- komenda þeirra er Einar Öm Stef- ánsson fféttamaður, Amór Guð- johnsen knattspymumaður og Oddur Einarsson fyrmrn prestur á Skagaströnd og forstöóumaður at- vinnuátaks á Suðumesjum. Þriðja bam var Gróa Ólafsdóttir. Sonur hennar var Jón Kristjánsson nudd- læknir og meðal alkomenda er Bogi Agústsson fféttastjóri sjón- varps. Fjórða bam var Þómnn sem dó í Ameríku. Líklega em engir afkomendur hennar á lífi. Fimmta bam var Ólafur söðla- smiður sem dó í Ameríku. Meðal afkomenda hans er Auður Júlíus- dóttir kona Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Sjötta bam var Odd- ný sem giftist Vigfúsi Melsted Guðmundssonarprests á Melstað. Meðal afkomenda þeirra er Guð- mundur Garðar Arthúrsson bankastarfsmaður. Sjöunda bam var Sigríður. Afkomendurhennar em í Ameríku. Áttunda bam sem upp komst var Elín, sem giftist Metúsalem Einarssyni bónda á Burstafelli í Vopnafirði. Meóal af- komenda þeirra em: Sigurjón Friðriksson bóndi í Yti-Hlíð í Vopnaflrði, Gestur Einar Jónas- son útvarpsmaður á Akureyri og Aðalsteinn Ingólfsson listfræðing- ur. Níunda bamið var Böðvar, sem fór til Ameríku ásamt fjöl- skyldu sinni. Tíunda bamið var Bjöm gullsmiður í Reykjavík kvæntur Sigríði Vilhelmínu Jóns- dóttir. Mikill félagsmála- maður Ólafur Jónsson bjó á Sveins- stöðum til dauðadags 1873. Hann var hreppsstjóri sveitarinnar og tók mikinn þátt í félagsstörfum auk þess að vera dugandi bóndi. Hann var þingmaður Húnvetn- inga eitt kjörtímabil, en sóttist ekki eftir endurkjöri vegna heilsu- brests. Hann var sæmdurheiðurs- krossi dannebrogsmanna. I líkræðu sem Páll Sigurðsson á Hjaltabakka flutti yfir Ólafi og varðveist hefur segir m.a.: „Ólaf- ur Jónsson var atgjörvismaóur mikill til sálar og líkama. Stakur reglumaður og bústjóri góður. Það sýndi hann um þau 29 ár er hann bjó á Sveinsstöðum. Hann hafði tekið við þeirri klausturjörð niður- níddri, en reisti hana við bæði með húsakynnum og jarðabótum og það þótt hann hefði þungt hús jafnan og mikla ómegð að annast. Lífssaga hans vottar einnig að þeim tíma er hann vann að verki köllunar sinnar, þá vann hann eigi aðeins fyrir sjálfan sig, heldur vann hann samfélaginu bæði vel og lengi og tók þátt í flestum fé- lagsmálefnum þessa héraðs, þeim er komu fyrir á hans tíð“. Líkur þar með tilvitnun í líkræðu sr. Páls. Verkfræðingurinn Til þess að vaipa ljósi á bónd- ann og framkvæmdamanninn Ólaf má vitna í grein eftir Ásgeir L. Jónsson vatnsvirkjaráðunaut hjá Búnaðarfélagi íslands, en hann var alinn upp á Sveinsstöð- um. Þar segir m.a. „Ólaf fysti að ná vatni til áveitu á engið, en það var ekki álitlegt verkefni. Hallinn fyrir vatnið var harla vafasamur, skurðstæðið grýtt skriða, enginn verkfræðing- ur til á Islandi, hallamálstæki ekki fáanleg, nema þá lóöbretti, sem ekki var nógu nákvæmt mælitæki, en fyrirtækið risavaxið miðað við þann tíma og allar aðstæður. Þó tókst Ólafi að leysa vandann. Hann fann upp og smíóaði halla- málstæki, sem dugði honum til mælingar. Þessi hallamælir ásamt viðeigandi hæðarmálsstöng með færanlegu reitarspjaldi var til á Sveinsstöðum í minni tíð og leng- ur, eða þar til gamli bærinn var rif- inn 1930-1931, að það lenti í glatkistunni í staó þess að geym- ast í fomgripasafni. Með þessum tækjum mældi Ólafúr fyrir áveitu- skurði úr Skriðuvaðsós til suður- enda engisins. Var skurður þessi um 650 m að lengd og voru upp- tökin nokkuð fyrir ofan vaðið á Vatnsdalsá, er hinn gamli Norður- landsþjóðvegur lá um. Skurðurinn lá um grýtt land (skriðuhlaup), sem var of óþétt fyrir vatnið, svo það reyndist ónógt fyrir áveituna. En Ólafur gafst ekki upp. Næst mældi hann fyrir áveituskurði úr norðvesturhomi Flóðsins, sem Vatnsdalsá rennur í gegnum. Haustið 1924 gerði ég nákvæma mælingu á þessum skurði í sam- bandi við fyrirhugaðar endurbæt- ur, eins og síðar verður getið, og reyndist þá lengd skurðarins 180 m og mesta dýpt 4 m. Skurður þessi liggur í gegnum skarð (Tíð- arskarð) milli svonefhdrar Suður- skriöu og hinna „óteljandi" Vatns- dalshóla. Þurfti meðal annars að grafa í gegnum 100 m breiðan grjót- og malarhrygg. Ólafi entist ekki aldur til að fullgera skurðinn, en náði þó svo langt að fá nokkurt flæði á engjamar. Jón sonur hans lauk verkinu. Ekki mun nútímamönnum vera ljóst hvílíkt risamannvirki þessir tveir áveituskurðir hafa ver- ið. Við gröftinn vom aðeins tiltæk þeirra tíma handverkfæri: jám- karl, páll, reka og handbömr. Þeg- ar Jón lauk við Tíðarskarðsskurð- inn, má það vera, að haki hafi ver- ió kominn í notkun, svo og hjól- bömr, sem hann hafði smíðað. Á djúpa kafla skuróarins var efri hluti mðningsins settur á skurð- bakkann, en neðri hlutinn fluttur norður fyrir melhrygginn eins og glögg ummerki sýndu. Þessir tveir skurðir era að minni hyggju eitt hið séstæðasta mannvirkjaafrek, sem nokkur bóndi á landinu hefur gert, miðað við tíma og aðstæður. Ólafslundur Til þess að undirstrika hve Ólafur var mikils metinn framá- maður hér um slóðir, má geta þess að um 1940 þegar félagasamtök hér í sveit hófu skógrækt og gróð- ursettu lítinn lund var hann skýrð- ur Ólafslundur til þess að halda nafni Ólafs Jónssonar á Sveins- stöóum á lofti. Ólafur var m.a. einn aðalhvatamaðurinn að stofn- Ókeypis smáar Til sölu Til sölu Mazda 626 árgerð 1986, ekinn 118 þúsund km. Mjög góður bíll. Upplýsingar í síma 35141 (Jóhann). Til sölu Bronco II '84. Góður bíll á góðu verói. Má greióast með hrossum aó hluta til eða allur. Upplýsingar í síma 38031. Til sölu Mitsubishi Colt árgerð '87 EXE, tveggja dyra, hvítur að lit í góðu lagi. Upplýsingar í síma 35992 eða 37904. Til sölu Nissan Patrol, langur, árgerð 1990, ekinn 112 þús. Upplýsingar í síma 95-30001. Til sölu Lada Station 1500 árgerð 1988. Ekinn 70 þús. km. Upplýsingar í síma 35580. un Búnaðarfélags Sveinsstaða- hrepps, en hafist var handa við ræktun Ólafslundar í tengslum við 75 ára afmæli Búnaðarfélagsins. Þessi lundur er sunnan í hól fast við Norðurlandsveginn. Þar hefur nú verið gerður áningastaður, sem ermjög vinsæll af ferðamönnum. Sveinsstöðum á bóndadaginn 1993 Magnús Ólafsson. Til sölu hásing undir hestakenu. Fjaðrir og fjórar felgur fylgja. Upplýsingar í síma 24006. Til sölu Nasa sjónvarpsleikja- vél, með 150 innbyggðum leikjum. Selst ódýrt. Upp- lýsingar í síma 95-24234. Tapað-fundið Lyklar af Toyotu töpuðust í grennd við ritstjómarskrifstofu Feykis eða sunnarlega við Aðalgötu í síðustu viku. Lykla- kippa er merkt Samvinnu- tryggingum. Fynnandi hafi samband á ritstjóm Feykis eða í síma 35757. Hestar til sölu! Nokkrir hestar til sölu. Reiðhestar og hryssur 5-9 vetra. Upplýsingar gefur Reynir í síma 95-12906. Styrkir til umhverfismála Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Pokasjóði Landverndar. 1. Um styrki geta sótt: Félög, samtök, stofnanir og einstaklingar. 2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviói umhverfis- mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun, verndun, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu og rannsókna. Skilyrói er aó verkefnin séu í þágu almennings. 3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa aó vera vel afmörkuó og skilgreind. 4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum mótframlag, sem getur falist í fjárframlögum, vélum, tækjum, efni eða vinnu. 5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok úthlutunarárs. 6. Styrkumsóknir þurfa aó berast skrifstofu Landverndar fyrir kl. 17,00 þann 28. febrúar 1994. Umsóknum ber aó skila á þar til geróum eyðiblöóum, sem fást á skrifstofu samtakanna. Stöndum vörð um Pokasjóðinn Landvernd Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík sími 25242.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.