Feykir - 09.03.1994, Page 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Heldur betri útkoma
í steinullinni í fyrra
Tapið tilkomið vegna gengisfellingar í júní
Tap á rekstri Steinullarverk-
smiðjunnar á síðasta ári var 47
milljónir, sem er 10 milljónum
betri útkoma en árið á undan.
Tapið nú er sama upphæð og
gengistap sem fyrirtækið varð
fyrir við gengisfellinguna í júní
sl. Heildarsalan á einangrunar-
efhum í fyrra jókst um 2,7%
milli ára og tekjur fyrirtækisins
jukust um 2,8%. Söluverðmæti
afurða á innanlandsmarkaði
var 248 milljónir miðað við 240
millj. 1992 en útflutningsverð-
mæti nam 126 milljónum, sem
er um 4% aukning frá árinu
áður.
Rekstrarafkoma fyrir fjár-
magnskostnað og afskriftir er um
6,5 milljónum betri en árið á und-
an, cn sem fyrr vega árvissar
gengisfellingar þungt í fjármagns-
kostnaði fyrirtækisins. Gengistap
vegna hækkunar erlendra lang-
tímalána nam um 47 milljónum.
Sjóðsstreymi fyrirtækisins sýnir
að fjármunamyndun í rekstri var
um 50 milljónir og handbært fé
frá rekstri nam 44 milljónum.
Afborganir langtímalána og
fjárfestinar voru um 50 milljónir
en engin ný lán vom tekin á árinu.
Hreinar skuldir fyrirtækisins eru
nánast óbreyttar frá fyna ári og
nema um 435 milljónum og var
veltufjárhlutfall 1,86.
Eigið fé Steinullarverksmiðj-
unnar er nú um 146,5 milljónir og
lækkaði það um 40 milljónir milli
ára. Stöðugildi í árslok voru 40 og
hálft og námu heildarlauna-
greiðslur 65,7 milljónum, rúm-
lega einni og hálfri milljón meira
en árið áður.
Skipverjar á varðskipinu Tý kvöddu á hálfúndarlegan hátt þegar þeir létu úr höfn frá Sauðárkróki
í síðustu viku. Þeir skildu eftir sig bing af ruslapokum á bryggjunni og kvöddu án þess að tala við
kóng eða prest um að fjarlægja ruslið fyrir sig. Starfsmenn Sauðárkróksbæjar, Róar Jónsson og
Steinn Astvaldsson, voru mættir til að fjarlægja sorpið frá þeim varðskipsmönnum, en á starfs-
mönnum bæjarins mátti skilja að Landhelgisgæslunni yrði sendur reikningur vegna þessa atviks,
sem er enn fúrðulegra fyrir þær sakir að vörubifreið var á bryggjunni allan tímann sem skipið
stansaði og því hægt um vik að koma ruslinu með honum til urðunar.
Aðeins komin hreyfing á framboðsmálin á Króknum:
Forsetinn dregur sig í hlé
Knútur Aadnegaard forseti
bæjarstjórnar Sauðárkróks
og efsti maður á Iista Sjálf-
stæðisflokksins við síðustu
bæjarstjórnarkosningar, hef-
ur ákveðið að gefa ekki kost á
sér til framboðs fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor.
Það hefur legið í loftinu í vetur
að Knútur dragi sig í hlé frá
bæjarpólitíkinni í lok þessa
kjörtímabils og á dögunum til-
kynnti hann uppstillinganefnd
flokk síns ákvörðun sína.
Svo viröist sem framboösmál
séu ekki ýkja langt á veg komin
hjá flokkum og framboðsaðilum
sem buðu fram fyrir síðustu bæj-
arstjómakosningar og ætla að
bjóða fram fyrir komandi kosn-
ingar, cn uppstillinganefndir eru
að störfum hjá flestum þeirra.
Reiknað er með að þeir flokkar
sem flesta fulltrúa eigi í bæjar-
stjóm, sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn, tilkynni framboðs-
lista sína áður en langt um líði.
Knútur Aadnegaard er sá eini
af núverandi bæjarstjómamönn-
um sem gefið hefur afdráttar-
lausar yfirlýsingar um að hann
verði ekki í framboði, og margt
bendir til að ekki verði miklar
breytingar á bæjarstjóminni
næsta kjörtímabil, en fulltrúum
mun þó fækka úr niu í sjö. Knút-
ur, sem hefur verið í fylkingar-
brjósti í bæjarpólitíkinni hjá
sjálfstæðismönnum í allmörg ár,
rekur byggingarfyrirtæki. Hefur
honum ekki fúndist það fara
nógu vel saman við störfin í
pólitíkinni, og mun hafa hvarfl-
að að honum að draga sig í hlé
fyrir síðustu kosningar.
Stefán Logi Haraldsson odd-
viti framsóknar í bæjarstjóm,
hefúr sagt að hann vildi gjaman
draga sig í hlé nú, en Stefán hef-
ur ekki gefið út neinar yfirlýs-
ingar um aó svo verði. Það sama
hefur verið upp á teningnum með
Viggó Jónsson. Herdís Sæmund-
ardóttir gefur kost á sér í áfram-
haldandi framboð fyrir ffamsókn-
armenn, sömuleiðis Bjöm Sigur-
bjömsson fýrir Alþýðuflokk, Anna
Kristín Gunnarsdóttir fyrir Al-
þýðubandalag, og líkur benda til
að Bjöm Bjönsson og Steinunn
Hjartardóttir veiði áfram ofarlega
á lista fýrir Sjálfstæðisflokkinn,
svoogHilmir fyrir K-listann.
soiuatak a isienska
„Hofsóss" fánanum
„Maður vonast vitaskuld eftir
betri viötökum og meiri sölu á ís-
lenska fánanum núna í ár cn
venjulega. Við erum búin að
skrifa sveitarfélögum og söluað-
ilum og óska eftir að pantanir
verði gerðar í tíma. Við höfum
þegar fengið nokkrar pantanir,
en okkur finnst samt að menn
mættu taka svolítið mcira við
sér“, segir Svanhildur Guðjóns-
dóttir á Saumastofúnni Hofsósi.
íslenski fáninn hefúr verið fram-
leiddur á Hofsósi um nokkurra ára
skeið. Framleiðslan hefúr alla tíð átt
í samkeppni við innflutta fána. Nú
hefur verið hrint í framkvæmd
átaki til að selja fánann og fá fólk til
að kaupa íslenskan „íslenska fán-
ann“ fyrir afmæli lýðveldisins og
styrkja þannig íslenska framleiðslu.
Frá þessu sagói í fréttabréfi IN-
VEST nýlega.
Þaðermaikaðsfýrirtæki íReykja-
vík og INVEST sem fengin hafa
verið til að vinna að markaðsátak-
inu. Til stendur að gefa út bækling
og senda til hinna ýmsu aðila sem
nota íslenska fánann. Þá hafa um-
búóir verið endurhannaðar og ný
útgáfa af reglum fýrir íslenska fán-
ann verið gerðar. Það er von þeirra
sem standa að átakinu aö það megi
verða til að auka sölu þessarar vöru.
„Okkur líst náttúrlega vel á þetta
átak og vonumst til að eitthvað
komi út úr því“, segir Svanhildur.
Með henni vinna á saumastofunni
ein eða tvær manneskjur eftir verk-
efnastöðunni. Auk íslenska fánans
er þama saumaður vinnufatnaður,
s.s. vinnusloppar.
—ICTenfllll hjDI—
Aöalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
jm
bílaverkstæði
s/raí: 95-35141
Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN