Feykir - 16.03.1994, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 11/1994
„Þetta voru þá engar ýkjur"
Af söngskemmtun Geirmundar í Sjallanum
Talsvert hefur verió látió af þeim góóu viðtökum sem
söngskemmtun meó lögum Geirmundar Valtýssonar hef-
ur hlotið, í íyrra á Hótel Islandi og í vetur í Sjallanum á Ak-
uryeri. Sagt hefur verió að fólk tryllist svo af fögönuði að
þaó stökkvi upp á borð í fagnaðarlátunum og dansi þar.
Sjálfsagt hafa einhverjir freistast til aö álykta sem svo aó
þetta hlyti nú að vera oróum ýkt og trúlega væri hér ein-
hver auglýsingamennska á ferðinni, að minnsta kosti í
bland. Svo var t.d. með blaóamann Feykis og þessvegna
gerði hann sér ferð í Sjálfstæóishúsió sl. laugardagskvöld
til að sjá meó eigin augum herlegheitin, sem kallast. „Lát-
um sönginn hljóma“.
Eins og færið var og veðrið á
laugardagskvöldið síðasta er ekki
mikil fyririiöfn að bregða sér bæj-
arleið frá Sauðárkróki til Akur-
eyrar. Beinn og breiður vegur alla
leið, að mestu uppúr snjó og
klaka, aðeins smáskel á Oxna-
dalsheiði, en þar var ekki laust
snjókom á vegi. Eftir tæplega
einn og hálfan tíma frá brottför, á
þægilegri ferð, var komið í Sjálf-
stæðishúsið á Akureyri. Þarhafði
þegar drifið að mannsöfnuð
nokkum. Gestimir þetta kvöld
vom frá ullarfyrirtækinu Foldu,
Sjálfsbjörgu og Gúmmívinnslunni,
auk fleiri gesta sem flestir vom af
Eyjafjarðarsvæðinu. Mjög fáir
Skagfirðingar vom þetta kvöld í
Sjallanum, og Húnvetningar eng-
ir, að minnsta kosti ekki þeir er
blaðamaður þekkir í sjón.
Eftirtekt vakti einn ærslabelg-
ur í hópi Foldufólks. Af mögu
broshým og glaðværa andlitinu í
þessum hópi skar þessi maður sig
úr. Seinna um kvöldið kom hann
að borði Feykismanns og heilsuð-
ust þar tveir Skagfirðingar. Kom í
ljós að þcssi maður var Sæmund-
ur nokkur Hrólfsson, sonur Hrólfs
Jóhannessonar fyrmm bónda í
Kolgröf.
Kvöldið byrjaði ákaflega vel.
Maturinn frábær og þjónustan
einstök. Þar með var gmnnur
lagður að góðri kvöldskemmtun.
Þegar klukkan var rúmlega hálftíu
og skammt í deserúnn, birtíst Geir-
mundur uppi á svölunum og var
fagnað þar eins og páfanum sjálf-
um. Nokkm síðar var tilkynnt að
brátt hefðist söngskemmtunin og
fólk beðið að sinna brýnustu er-
indagcrðum á snyrtingum og bör-
um hússins, gerðist þess þörf.
A slaginu hálf ellefu birtist síð-
an andlit kóngsins á breiðtjaldi,
syngjandi gamla smellinn „Nú cr
ég léttur". Bjami Hafþór Helga-
son kynnir sagði þetta elstu heim-
ild um Gcirmund Valtýsson í eigu
Ríkissjónvarpsins, en þessi mað-
ur hefði þó verið byrjaður að
skemmta fólki nokkm áður en
sjónvapið kom til sögunnar. Eftír
stutta kynningu fór söngkemmt-
unin á ftillt. Byijaði með kynning-
arlaginu Látum sönginn hljóma
og síðan rak hver „smellurinn"
annann.
Söngvaranir og hljómsveitin
vom í fínu formi og flutningur all-
ur mjög líflegur og skemmtilegur.
Enda tók fólkið vel við sér. Það
var eins og færi gleðistraumur um
salinn og fólk hoppaói upp úr sæt-
um sínum, upp á stóla og borð og
dansaði þar og klappaði. Konur
og menn dönsuðu upp að sviðinu.
„Þetta vom þá engar ýkjur", kom
í huga blaðamanns. Inn á milli
laga gaf að heyra hnittnar kynn-
ingar Húsvíkingsins glaðbeitta
Dansinn dunar í pottþéttri sveiflu.
> v ; 1 ^ J ' - c
Hljómsveitin á fullu: Sönvararnir í framlínunni: Geirmundur, Helga Möller, Erna Gunnars-
dóttir og Invar Grétarsson. Hljóðfæraleikamir Eiríkur HiImLsson gítarleikari, blásaramir Þorsteinn
Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. í skugganum em þeir Sólmundur Friðriksson bassalcikarí,
Kristján Baldvinsson trommuleikari og Magnús Kjartansson píanóieikari og hljómsveitarstjóri.
,JNú er ég léttur“. Samkomugestir þyrpist upp á stóla og borð.
Það var engu líkar en gleðistraumur færi um salinn.
Bjama Hafþórs Helgasonar.
„Hafiði einhvem tíma leitt að
því hugann, hver sé ástæðan fyrir
því að Geirmundi hafi tekist að
vera svona hressum í 30 ár? Hann
segir sjálfur að það sé vegna þess
að hann hafi aldiei bragðað áfengi",
sagði Bjami m.a. í einni kynningu
sinni.
Og brátt var söngskemmtunin
á enda. Þetta var frábær skemmt-
un og fljótlega eftír að henni lauk
hóf hljómsveitin að leika fyrir
dansi. Meö söngvumnum og
hljóðfæraleikumum sem veita
hlómsveit Geirmundar lið, er hér
mikil stórsveit á ferðinni, og fjör-
ið var mikið á dansgólfinu. Þegar
við yfirgáfum salinn um hált tvö
leytið, hljómaði Lífsdansinn og
sjálfsagt hefur hann verið stiginn
fram eftir nóttu.
A heimleiðinni rifjuðust lögin
upp í huganum hvert af öðm. Og
þegar bestu lögunum hefur verið
safriaó svona saman í einn pakka,
kemur enn betur í ljós hve mörg
góó lög Geirmundur hefúr samið.
Niðurstaðan af þessum vanga-
veltum varö sú að enginn maður
hafi komið Skagafirði eins ræki-
lega á landakortið og Geirmund-
ur Valtýsson.
Og niðurstaðan af ferðinni í
Sjallann. Þetta var frábær skemmt-
un sem enginn ætti að verða svik-
inn af og maturinn og þjónustan
frábær hjá starfsfólki Sjallans.
Skagfirðingarnir Sæmundur Hrólfsson frá Kolgröf og Magnús
Jónsson frá Hóli, sem kynntur var fyrsti trommuleikarinn er Geir-
mundur lék með.