Feykir


Feykir - 16.03.1994, Side 6

Feykir - 16.03.1994, Side 6
6FEYKIR 11/1994 Heilir og sælir lesendur góðir. Það er Ámi Jón Eyþórsson á Bálkastöðum í Hrútafirði sem sér um pistilinn að þessu sinni. Hann yricir svo veturinn 1990, en þá voru eins og márgir eflaust muna víða mikil snjóþyngsli. Varasöm og vond er tíð, verkum fyrir tefur. Alla daga ofan hríð alveg látlaust skefur. Það má orða svona synd, sjást ei veðrakaflar. Hart er stál afhörðwn vind, himna ná til skaflar. Um tamningarfola yrkir Ámi svo. Fetar spenntur.finn ég bál. Fara um mig straumar. Mín í fína síast sál svona rœtast draumar. Næstu vísu mun Ámi hafa ort er hann eins og fleiri beið eftir sl. vori sem reynd- ar kom ekki fyrr en í september. Bráttfer hér helvítis horið að herja um alla sveit. Aumt er það andskotans vorið að eiga ekki hlýju og beit. Og Ámi Jón skorar á Magnús Guð- mundsson bónda Staóarbakka II að við- halda vísnagerðinni og sjá um pistilinn í næsta þætti. Þá kemur vetrarvísa eftir Þór- arinn Bjamason jámsmið. Hranna skvaldur heyrist þrátt hrímið faldar serki, vetur baldinn hreykir hátt húmsins skjaldarmerki. Friðrik Hansen á Sauðárkróki mun vera höfundur að þessari. Sendið hingað sólskin inn sumardagar Ijósir, vetur gróf á gluggann minn gráar hélurósir. Þá langar mig að fá upplýsingar um höfund efdrfarandi vísu, ef lesendur kann- ast viö hana. Ei erfolnuð frostsins rún fönn er enn í spori, en yfir vetrar ygglibrún er þó bjarmi afvori. Margir hafa eflaust heyrt um það fjaðrafok sem varð er fjáreigandi á Blönduósi skaut hund er hafði það sér til dægradvalar að elta fé hans á túninu. Erlendur Hansen á Sauðárkróki er höf- undur eftirfarandi vísu, og hefúr hann lát- ið í ljósi það álit sitt að fjáreigandinn Olaf- ur Sigurjónsson eigi heiður skilið fyrir þetta framtak. Telur Erlendur fáa Hún- vetninga hafa unnið þarfara verk. Hann yrkir svo. Heiður fá oft mœtir menn sem rnargan leysa vanda. Bólar lítt á orðu enn Ólafi til handa. Kristján Stefánsson frá Gilhaga er höf- undur að næstu vísu. Finnst mér hlýða aðfjalla um ást þvíflesta tíðin gleður. Frost og þýða saman sjást samt er blíðu veður. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd hlustaði á umræður um EES-málin og var ekki mjög hrifinn af því sem hann heyrði þar, eftir þessum vísum hans að dæma. Lýðveldinu grið ei gaf gróðaklíkan mikla. Seldi hún yfir austurhaf okkar frelsislykla. Þjóðarsóma kom á kné kolröng pólitíkin, sleikti að framan EBE, aftan Bandaríkin. Oft er býsnast yfir hvað bandarískar fjölskyldur séu hlynntar náttúmvemd. Eftirfarandi mynd dró Rúnar upp í hugan- um af einni kjamafjölskyldu þar vestra. Sonurinn fagnandi senunni stal sá vildifréttina kynna. Amma er búin að œttleiða hval þó afi sé hœttur að vinna. Þegar Rúnar heyrði sagt frá í fréttum hinu sviplega ffáfalli hins vinsæla utanrík- isráðherra þeirra Norðmann varð til eftir- farandi vísa. Holst er dáinn, harma ber hann víst meira en lítið. En Jón á lífi ennþá er. Ó hvað margt er skrýtið. í síðasta þætti tókst ekki vel til með birtingu á vísu Jóns S. Bergmanns. Með vitlausu oiöi í fyrstu hendinguni eyðilagð- ist hringhendan eins og glöggir lesendur hafa séð. Skrefagreiður gekk ég frá geislabreiðum degi. Þú varst leiðarljósið þá langa heiðan’egi. Þá koma hér að síðustu tvær vísur eft- ir Sveinbjöm Beinteinsson. Heimsins vegur hulinn er huga manrts og vilja, enginn þarfað œtla sér örlög sín að skilja. Trídn hrein og hugsun djörf hjálpa mest í raunum, þakkir fyrir fögur störf flyt ég þér að launum. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum 541 Blönduósi, sími 95-27154. Tap í tveimur heimaleikjum En Tindastólsmenn þurfa samt vart að óttast fallið Tindastólsmenn hafa ekki átt velgengni að fagna í tveim síð- ustu leikjum sínum í Úrvals- deildinni, sem báðir hafa farið fram í Sfldnu, og báðir tapast Fyrir Njarðvík í gærkveldi, 79:98, og íyrir KR á föstudags- kvöldið, 86:93. Tindastóll á eftir einn leik í deildinni, gegn Grindavík syðra. Á sama tíma leika Valsmenn og Keflavík í Kcflavík. Valsmenn unnu Skalla- grím í gærkveldi og eru því með jaftimörg stig og Tindastóll, 14, en Tindastóll stendur betur með sigur í báðum innbyrðisviður- eignunum. Skallagrímsmenn eru neðstir með 12 stig. Þeir mæta Skagamönnum í Borgarnesi. Njarðvíkingar unnu öruggan sigur á Tindastóli á Króknum í gærkvöldi og eygja því enn mögu- leika á efsta sæti riðilsins í kepn- inni við Grindavík um það sæti. Fljótlega vaið ljóst hvert stefhdi í leiknum og Njarðvíkingar náðu fyrir miðjan fyrri hálfleik góðri forystu sem þeir létu ekki af hendi. Staðan í leikhléi var 44:59 og loka- tölur urðu 79:98. Hinrik Gunnarsson var besti maður Tindastóls í leiknum og þeir Páll Kolbeinsson og Róbert Buntic áttu þokkalegan dag. Hjá Njarðvík var Rondey Robertsson bestur. Friðrik Rúnarsson átti einnig mjög góðan leik og í heild lék Njarðvíkurliðið vel. Stig Tindastóls: Páll Kolbeins- son 18, Róbert Buntic 18, Hinrik Gunnarsson 10, IngvarOrmarsson 10, Lárus D. Pálsson 9, Ingi Þór Rúnarsson 8, Omar Sigmarsson 2, Garðar Halldórsson 2 og Baldur Einarsson 2. Stigigahæstir í Njarðvíkur- liðinu vom þeir Rondey Robins- son með 27 stig og Friðrik Rún- arssonmeð 19. KR-ingar hafa seiglast áffam á baráttunni í undanfömum leikjum og náð að vinna sæta sigra. Svo var einnig upp á teningnum er þeir heimsóttu Tindastólsmenn í Síkið á föstudagskvöldið. Heimamenn eygðu með sigri í leiknum von um að skilja Vals- menn og Skallagrím kyrfilega eftír á botni deildarinnar. Fram eftir fyrri hálfleik leit út fyrir aö þeim ætlaði að takast það. Tindastóll byrjaði betur og var kominn í 12 stiga mun uppúr miðjum fyrri hálfleik, en þá kom kafli sem baráttan og einbeitingin virtist ekki nægjanleg. Staðan í leikhléi var 46:40 fyrir Tindastól. KR-ingar komu mjög grimmir til seinni hálfleiks og náðu fljót- lega að jafha og komast yfir, mest 13 stig. Tindastólsmenn héldu haus. Þeir náðu góóum leikkafla undir lokin og minnkuðu þá muninn allt niður í eitt stig, en KRingar léku skynsamlega og sannfærandi sigur þeirra var staðreynd, 86:93. Hjá Tindastóli var Páll besti maður liösins. Hinrik var mjög sterkur í vöminni og þeir Ingvar og Róbert áttu þokkalegan dag. Stig Tindastóls: Róbert Buntic 27, Páll Kolbeinsson 24, Ingvar Ormarsson 13, Hinrik Gunnarsson 8, Lárus D. Pálsson 7 og Ingi Þór Rúnarsson 6. David Grisson skor- aði 34 stig fyrir KR. Fótboltinn er byrjaður að rúlla og fyrir nokkru hafa félögin hér á svæðinu sem annarstað- ar á landinu, hafið sinn undir- búining lyrir komandi keppn- istímabil. Feykisbikarinn æf- ingamót fyrir meistara- flokkslið í Norðurlandi vestra fer brátt að hefjast. Fyrirhug- að var að íyrstu leikirnir færu fram nk. laugardag, en af því getur ekki orðið sökum þess að vellir eru enn undir klaka og snjó. Vonir standa til að keppnin geti hafist um aðra helgi. Feykisbikarinn var haldinn í fyrsta skipti síðasta vor. Þá kepptu fjögur lið. Hvatarmenn á Blönduósi, sem báru sigur úr Kvennalið Tindastóls í körfúbolta gerði góða ferð til Grindavíkur um helgina. Stelpurnar unnu sig- ur á heimamönnum 70:67 í hörkuleik og tryggðu sér þar með sæti í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna sem hefst í næstu viku. Þar mæta Tindastólsstúlkur verð- ugum andstæðingum, Islands- meisturum Keflavíkur, sem eiga fyrsta leik á heimavelli og odda- leik einnig komi tíl hans. Tindastólsstúlkumar sýndu frá- bæran karakter og baráttu gegn býtum, Knattspymufélag Siglu- fjarðar, Neisti á Hofsósi og Þrymur á Sauðárkróki. Nú bæt- ast tvö lið í þennan hóp, Tinda- stóll á Sauðárkróki og Kormákur á Hvammstanga. Til stóð að nk. laugardag mættust á Sauðár- króksvelli Tindastóll og Neisti annarsvegar og KS og Hvöt hinsvegar. Þeim leikjum hefur verið frestað. Af þjálfaramálum félaganna er þaó að fretta að Ámi Stefáns- son mun þjálfa Tindastól í sum- ar, Höróur Júlíusson KS, Helgi Amarson Hvöt, Grétar Eggerts- son Kormák, Guðbrandur Guð- brandsson Þrym, en Neisti hefur enn sem komið er ekki gengið frá ráðningu þjálfara. Grindvíkingum. Heimamenn voru 13 stigum yfir í leikhléi, en með pressuvöm og gífurlegri baráttu tókst stelpunum að vinna þann mun upp og gott betur. Tindastóll komst 12 stigum yfir þegar um sjö mínútur voru til leiksloka. Þá fóm villuvand- ræði sem pressuvömin skapaði að gera vemlega vart við sig í herbúð- um Tindastóls og þær Kristín Magn- úsdóttir og Inga Dóra hurfu af leik- velli. Grindvíkingum tókst að minnka muninn, en ekki nægjan- lega, svo Tindastólssigur varð stað- reynd, 70:67. En glöggt stóð það, því þær Petrana og Bima vom komnar með fjórar villur og Sigrún Skaihéðinsdóttir þrjár. Stígahæstar í Tindastólsliðinu vom: Bima Val- garðsdóttir með 24 stig, Inga Dóra Magnúsdóttir 18og PetranaBunt- ic 11. Að sögn Magnúsar Svavarsson- ar bílstjóra liðsins og helsta forkólfs kvennakörfuboltans var þetta besti leikur Tindastóls í vetur og ef liðið nái svona leik á móti Keflvíkingum séu góðir möguleikar á sigri. „Mér leist ekkert á blikuna í hálfleik, en þetta var ótrúleg barátta í seinni hálf- leiknum“, sagði Magnús. Ljóst er að hvemig svo sem leik- imir við Kefivíkingana fara öðlast hið unga lið Tindastóls dýrmæta reynslu með því að komast í úrslita- keppnina. Tindastóll hlaut 16 stig í deildarkeppninni og hafnaði í fjórða sæti. Það em ÍBK, KR, Grindavík og Tindastóll sem leika tíl úrslita. Feykisbikarinn að byrja

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.