Feykir - 13.04.1994, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Það var unnið kappsamlega á snæviþöktum knattspymuvellinum á Króknum sl. laugardag. Þar vom
mætt stúdentsefhi Fjölbrautaskólans og hlóðu þau upp hverjum snjómanninum á fætur öðmm.
Þegar dagur kom að kvöldi var orðið mannmargt á norðurhluta vallarins, þyrping rúmlega 100 snjó-
karla og keriinga. Astæða þessa uppátækis stúdentsefha er sú að þama vom þeir að afla sér með áheit-
um Qár til útskrifitarferðarinnar, sem verður farin til Algarde í Portúgal að loknum prófum í vor.
Er hér um afar nýstárlega fjáröflunarleið að ræða og heppnaðist hún ágætlega að sögn nemenda.
Góð aðsókn að Sæluvikunni
Hrossaræktendur í
kjördæminu kynna
afurð sína í Noregi
Góð aðsókn hefur verið að dag-
skrárliðum Sæluviku, sem hófst
sl. laugardag. Sýningar vom Ld.
mjög vel sóttar á sunnudag.
Húsfyllir var á frumsýningu
Leikfélags Sauðárkróks á Karl-
inum í kassanum á sunnudags-
kvöld og leikendum og leik-
stjóra mjög vel tekið og þeir
hylltir í lok sýningar. Fjölmenni
sótti sýninguna Alþýðulist í
Safhahúsinu, tónleikar í tónlist-
arskólanum voru vel sóttir og
einnig var fjölmenni á Kirkju-
kvöldi í Sauðárkrókskirkju á
mánudagskvöld.
I gærkveldi var Heimiskvöld í
Bifröst og síðan rekur hver dag-
skrárliðurinn annan. Skákþing
Norðurlands hefst í Safnaðar-
heimilinu á morgun (fimmtudag)
og um kvöldið verður stór-
skemmtun í Bifröst, þar sem úrslit
dægurlagakeppninnar fer ffam. A
föstudagskvöld verður Skagfirska
söngsveitin með tónleika í Iþrótta-
húsinu og að þeim loknum verður
eldridansaklúbburinn með dans-
leik í Bifröst. Sæluvikunni lýkur
síðan á laugardag. Þá verður ým-
islegt um að vera: unglingadans-
leikur og lokadansleikur í Bifröst
og í Miðgaiöi verða stórtónleikar,
þar sem fram koma Karlakórinn
Heimir, Rökkurkórinn, Skagfirska
söngsveitin og Karlakórinn Þrestir.
Þess má geta að í byrjun Sælu-
viku komu ný sæti í Bifröst.
Gömlu sætin þóttu óþægileg fyrir
kvikmyndaliús- og leikhúsgesti.
Nýju sætin, sem reyndar eru not-
uð og voru áður í Stjömubíói í
Reykjavík, þykja notaleg og ætti
gestum Biffastar að líða vel í þeim
meðan á sýningum stendur, en
misbrestur mun hafa verið á því
um tíðina.
„Iætta er gullvægt tækifæri fyr-
ir okkur að kynna íslenska
hestinn og nýta áhuga þann
sem fyrir honum er í Noregi, og
reyndar mun um þessar mund-
ir gæta vaxandi áhuga Norð-
manna að kynnast íslandi. Ég á
von á því að ef vel tekst til geti
þetta orðið góð auglýsing fyrir
okkur“, segir Jón Friðriksson
hrossaræktandi á Vatsnleysu
um samstarf Norsk-íslenska
hestafélagsins annarsvegar og
Jóns hinsvegar, um kynningu á
íslenska hestinum í Noregi á
næstu mánuðum.
Forsaga þessa er sú að nýaf-
staðið landsþing félaga um ís-
lenska hestinn í Noregi ákvað aó
efna til þessa samstarfs við Is-
lendinga. Ástæðu þess að Jón á
Vatnsleysu var valinn til þessa
samstarfs, má rekja til þess að
hann hefur verið umsvifamikill
útflytjandi á íslenska hestinum til
Noregs. Á síðasta ári flutti hann
út um 80-90% þeirra hrossa sem
til Noregs vom seld.
Kynning íslenska hestsins
verðureingöngu tengd sýningum
í Noregi. Jón snéri sér strax til
einstaklinga og félagasamtaka á
Norðurlandi vestra, sem hann seg-
irhafa sýnt málinu mikinn áhuga
og verði þessir aðilar þátttakend-
ur í stómm sýningarbás. Verður
Islandskynningin helguð Norður-
landi vestra og mun kynningin
snúast um ýmsa þætti er lúta að
íslenska hestinum, svo sem ferða-
mál, þekkingu, þjónustu og iön-
að. Má m.a. geta þess að Gísli
Pálsson á Hofi í Vatnsdal hefur
ráðist í það stórvirki að láta þýða
á norsku bókina „Hestar í norðri",
sem fjallar um hrossaræktendur í
Skagafirði og Húnaþingi. Verður
bókin til sýnis og sölu í umrædd-
um sýningarbás.
Á sýningunum verður hesta-
sýningin byggð á þrem þáttum,
sem em: í starfi með fötluðum, en
í Noregi er hesturinn ekki síður
vinsæll til notkunar á þessu sviði,
sem fjölskylduhestur og síðan
sem keppnishestur. Hestamir sem
koma fram í sýningunum em að
mestu í eigu Norðmanna.
„Fyrirhugað er að fara með til
Noregs 4-6 keppnishesta. Við emm
famir að líta í kringum okkur eft-
ir þeim og stefnum að því að fara
með hross af þessu svæði. Gerðar
verða miklar hæfniskröfur til
þeirra. Kaupendur em í Noregi að
þessum hrossum. Við þurfum að
vanda valið vel, til að auglýsingin
nýtist okkur sem skyldi“, segir Jón.
Fyrsta sýningin verður í Osló í
maí nk. Á þessari sýningu fara
einnig fram vinsælustu og fjöl-
mennustu kermkappreiðar í Nor-
egi og er búist við 12 þúsund áhorf-
endum auk þess sem sjónvarpað
verður beint í Norska sjónvarp-
inu. Næstu sýningar verða haldn-
ar í Ósló og Seljord á tímabilinu
júní-september og er búist við allt
að 100 þúsund áhorfendum á
þessar sýningar.
Refaskyttur í Austur- og Vesturdal:
Hafa feílt 24 dýr í vetur
,Jú við höfúm verið að því og
sú 24. Iá í nótt“, sagði Birgir
Hauksson bóndi í Valagerði, en
hann hefúr ásamt Kára Gunn-
arssyni í Flatatungu stundað
nokkuð stíft tófuveiðar í vetur.
Þeir félagar hafa legið á annan
tug nátta fyrir lágfótu, oftast í
gangnamannakofanum við Norð-
urá við rætur Öxnadalsheiðar,
en einnig hafa þeir skotið út um
stofugluggann á eyðibýlinu
Skatastöðum í Austurdal.
Mest hafa þeir Birgir og Kári
skotið sjö tófur á einni nóttu, var
það við Skatastaði aðfaranótt ann-
ars janúar. Veiðin var síðan treg
um tíma en seinni part vetrar hafa
dýrin sótt í ætið, hross sem lagt
var út, og féllu þau flest yfir fengji-
tímann sem nýlega er afstaðinn,
en þá em dýrin mikið á ferðinni.
„Okkur þótti ansi athyglisvert
að finna lambamerki í eyru einnar
tófúnnar sem við skutum, sem
bendir til að sem yrðlingur hafi
hún komist undir manna hendur,
en síðan látið sig hverfa. Tófan er
svikul eins og við vitum“, sagði
Birgir. Dýrin sem skotin hafa ver-
ið em frá yrðlingum upp í harð-
fúllorðin dýr. Kjálkamireru send-
ir suóur til aldursgreiningar.
—ICTeHgílf —
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
jffMffIbílaverkstæöi
/f t M I ■
Sæmundargata I b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviðgeröir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN