Feykir


Feykir - 04.05.1994, Page 1

Feykir - 04.05.1994, Page 1
© rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Gagna aflað varðandi umferð á Króknum: Umferðin mun meiri en menn ætluðu Það var fallegt um að litast í Fljótum sl. sunnudag, snjóhvít fannbreiða yfir öllu, eins og sjá má á myndinni sem tekin er fram Flókadalinn. Fljótamenn segja snjódýptina nú þó mun minni en hafi verið á sama tíma vorið 1989, en snjórinn sé þéttari nú og jafnari yfir en þá var. Fiskiðjan á Sauðárkróki bregst við kvótasamdrætti: Stefnt að nýjung í fullvinnslu seinna á árinu, er veitir 10 störf Þessa dagana er unnið að taln- ingu bíla við nokkur gatnamót á Sauðárkróki á ákveðnum tím- um dagsins, bæði þegar um- ferðarþungi er hvað mestur og einnig á þeim tímum sem ætla má að umferð sé í lágmarki. Að sögn Guðmundar Ragnarsson- ar byggingaríulltrúa er þetta gert í tengslum við endurskoð- un á aðalskipulagi bæjarins. „Það liggja ekki fyrir neinar handbærar upplýsingar um umferðarþunga á gatnakerfi bæjarins og með öflun þessara upplýsinga, verðum við vonandi einhvers vísari um hvort hönn- un umferðarkerfisins á sínum tíma hefur staðist tímans tönn í þeim skilningi, að það flytji þá umferð þokkalega ennþá sem ætlast var til af því í upphafi, og þá væntanlega hverjar breyt- ingar helstar þurfi að gera á gatnakerfinu“. Niðurstöður talna liggja ekki fyrir en ljóst er af einstökunt taln- ingum að umferóin er mun meiri en fólk almennt gerir sér grein fyr- ir. Sem dæmi rná nefna að um gatnamót Skagfirðingabrautar og Skólastígs, gatnamótin gcgnt Búnaðarbankahúsinu, fóru milli klukkan tvö og þrjú sl. miðviku- dag tæplega 500 bílar. Þetta cr á þeim tíma dagsins sem ætla rná að umferðin sé livað minnst. A sömu gatnamótum fóru á hálftíma um hádegiö tæplega 400 bílar. Um- ferðarþungi er þó mun meiri um gatnamótin við skólahverfið. Töl- ur þar um liggja ekki fyrir, en sýnt er eftir þessum tölum að dæma að ómögulegt er að giska á þann fjölda bíla sem fer um þau gatna- mót, allra síst á mestu álagstímum dagins. Talsvert hefur verið rætt um umferðarmál í bænum undanfar- ið. Foreldra- og kennarafélag gagnfræðaskólans gekkst fyrir fundi varðandi lausn á umferðar- vanda unt skólahverfið í síðustu viku, en lengi hefur verið fjallað urn það mál í bæjarkerfinu og ýmsar hugmyndir verið á lofti varðandi lausn á því. Að sögn Guðmundar Ragnarssonar bygg- ingarfulltrúa er samkvæmt þeim tillögum sem fyrir liggja ekki gert ráð fyrir færslu á þeirri umferð sem nú er um skólahverfið. Fyrir- liggjandi áætlun gerir ráð fyrir verulegri hækkun götunnar, og undirgöngum milli skólamann- virkjanna fyrir gangandi umferð. Guðmundur segir að þrátt fyrir þrýsing og áskoranir um að kom- ið verði fyrir umferðarljósum við gatnamótin, verði það trúlega ekki gert. Hann segir menn horfi frek- ar til þess að hringtorg leysi þann vanda sem þama cr með fiutning umferðar á álagstímum og ágætis reynsla væri af hringtorgum við svipaðar aðstæður og þama em. Hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki eru á döfinni nýjungar varð- andi fullvinnslu og úrvinnslu sjávarafurða. Forráðamenn fyr- irtækisins sjá þessa leið helsta tii að vega upp á móti aflasam- drætti, sem enn verður fyrirsjá- anlega til staðar á þessu ári. Til stendur að Fiskiðjan setji upp vinnslulínu til að brauða fisk- bita síðar á árinu. I»etta kom fram á aðalfundi Kaupfélags Skagfirðinga á dögunum. Þórólfur Gíslason kaupfélags- stjóri sagði við það tækifæri að ef vel tækist til væri gcrt ráð fyrir 10 nýjum störfum við þessa úr- vinnslu aflans. Þá konr einnig fram í máli Þórólfs að áfram yrði unnið að eflingu kjötvinnslu KS og nú sé kannað að koma reykt- um laxi og öðrum fiski á markað, í samvinnu við Islenskar sjávaraf- urðirhf. „Efla ber þann vísi að rann- sóknarstofu sem KS og FISK starfrækja. Við höfum áhuga á að ná samningum við bæjaryfirvöld og Háskóla Islands um að gera Sauóárkrók að miðstöð sam- starfsverkefna atvinnulífsins og Háskólans á sviði matvæla- vinnslu“, sagði Þórólfur kaupfé- lagsstjóri, en undirbúningur fyrir þessa framtíóarsýn er þegar haf- inn af hálfu kaupfélagsins með stofnun starfshóps, sem vinnur m.a. að því að komið verði á kennslu á framhaldsskólastigi í matvælavinnslu og sameiginlegri rannsóknaraðstöðu skóla og at- vinnulífs á þessu sviði. Óvænt framboð á Blönduósi Aukið líf hefur færst í kosningabaráttuna á Blönduósi eftir að nýtt framboð kom fram í bænum, svokallaður F-listi framfara sinn- aðra. Voru frambjóðendur og stuðningsfólk þess lista að safna stuðningmönnum síðustu dægrin áður en framboðsfrestur rann út og náðu að ganga frá honum í tæka tíð. Jón Hannesson framkvæmdastjóri sem skip- ar þriöja sæti listans, segir framboðið tilkomió vegna megnrar óánægju með uppröðun á aðra lista í bænum. „Fólkiö í efstu sætunum á þessum listum eru eiginlega allt opinberir starfsmenn og hefur að auki lítió komið nálægt bæjarmálefn- um, svo sem afskiptum af atvinnumálum í bæn- um. Það veitir svo sannarlega ekki af að taka á þeim málum núna og því vildum viö endilega blanda okkur í barattuna", segir Jón. Sjö efstu sæti F-listans skipa: 1. Sturla Þórö- arson tannlæknir, 2. Sigrún Sophaníasdóttirskrif- stofumaður, 3. Jón Hannesson framkvæmda- stjóri, 4. Sigurður Ingþórsson verslunarmaður, 5. Bjami Jónsson pípulagningarmeistari, 6. Jón Daníel Jónsson deildarstjóri, 7. Valdís Þórðar- dóttir nuddfræðingur. —ICTew?ill hjDI— Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 bílaverkstæði ÆXæSZB. sími: 95-35141 Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 Bílaviögerðir • Hjólbarðaverkstæði RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.