Feykir - 04.05.1994, Blaðsíða 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Gagna aflað varðandi umferð á Króknum:
Umferðin mun meiri
en menn ætluðu
Það var fallegt um að litast í Fljótum sl. sunnudag, snjóhvít fannbreiða yfir öllu, eins og sjá má á
myndinni sem tekin er fram Flókadalinn. Fljótamenn segja snjódýptina nú þó mun minni en hafi
verið á sama tíma vorið 1989, en snjórinn sé þéttari nú og jafnari yfir en þá var.
Fiskiðjan á Sauðárkróki bregst við kvótasamdrætti:
Stefnt að nýjung í fullvinnslu
seinna á árinu, er veitir 10 störf
Þessa dagana er unnið að taln-
ingu bíla við nokkur gatnamót
á Sauðárkróki á ákveðnum tím-
um dagsins, bæði þegar um-
ferðarþungi er hvað mestur og
einnig á þeim tímum sem ætla
má að umferð sé í lágmarki. Að
sögn Guðmundar Ragnarsson-
ar byggingaríulltrúa er þetta
gert í tengslum við endurskoð-
un á aðalskipulagi bæjarins.
„Það liggja ekki fyrir neinar
handbærar upplýsingar um
umferðarþunga á gatnakerfi
bæjarins og með öflun þessara
upplýsinga, verðum við vonandi
einhvers vísari um hvort hönn-
un umferðarkerfisins á sínum
tíma hefur staðist tímans tönn í
þeim skilningi, að það flytji þá
umferð þokkalega ennþá sem
ætlast var til af því í upphafi, og
þá væntanlega hverjar breyt-
ingar helstar þurfi að gera á
gatnakerfinu“.
Niðurstöður talna liggja ekki
fyrir en ljóst er af einstökunt taln-
ingum að umferóin er mun meiri
en fólk almennt gerir sér grein fyr-
ir. Sem dæmi rná nefna að um
gatnamót Skagfirðingabrautar og
Skólastígs, gatnamótin gcgnt
Búnaðarbankahúsinu, fóru milli
klukkan tvö og þrjú sl. miðviku-
dag tæplega 500 bílar. Þetta cr á
þeim tíma dagsins sem ætla rná að
umferðin sé livað minnst. A sömu
gatnamótum fóru á hálftíma um
hádegiö tæplega 400 bílar. Um-
ferðarþungi er þó mun meiri um
gatnamótin við skólahverfið. Töl-
ur þar um liggja ekki fyrir, en sýnt
er eftir þessum tölum að dæma að
ómögulegt er að giska á þann
fjölda bíla sem fer um þau gatna-
mót, allra síst á mestu álagstímum
dagins.
Talsvert hefur verið rætt um
umferðarmál í bænum undanfar-
ið. Foreldra- og kennarafélag
gagnfræðaskólans gekkst fyrir
fundi varðandi lausn á umferðar-
vanda unt skólahverfið í síðustu
viku, en lengi hefur verið fjallað
urn það mál í bæjarkerfinu og
ýmsar hugmyndir verið á lofti
varðandi lausn á því. Að sögn
Guðmundar Ragnarssonar bygg-
ingarfulltrúa er samkvæmt þeim
tillögum sem fyrir liggja ekki gert
ráð fyrir færslu á þeirri umferð
sem nú er um skólahverfið. Fyrir-
liggjandi áætlun gerir ráð fyrir
verulegri hækkun götunnar, og
undirgöngum milli skólamann-
virkjanna fyrir gangandi umferð.
Guðmundur segir að þrátt fyrir
þrýsing og áskoranir um að kom-
ið verði fyrir umferðarljósum við
gatnamótin, verði það trúlega ekki
gert. Hann segir menn horfi frek-
ar til þess að hringtorg leysi þann
vanda sem þama cr með fiutning
umferðar á álagstímum og ágætis
reynsla væri af hringtorgum við
svipaðar aðstæður og þama em.
Hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki
eru á döfinni nýjungar varð-
andi fullvinnslu og úrvinnslu
sjávarafurða. Forráðamenn fyr-
irtækisins sjá þessa leið helsta tii
að vega upp á móti aflasam-
drætti, sem enn verður fyrirsjá-
anlega til staðar á þessu ári. Til
stendur að Fiskiðjan setji upp
vinnslulínu til að brauða fisk-
bita síðar á árinu. I»etta kom
fram á aðalfundi Kaupfélags
Skagfirðinga á dögunum.
Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri sagði við það tækifæri að ef
vel tækist til væri gcrt ráð fyrir 10
nýjum störfum við þessa úr-
vinnslu aflans. Þá konr einnig
fram í máli Þórólfs að áfram yrði
unnið að eflingu kjötvinnslu KS
og nú sé kannað að koma reykt-
um laxi og öðrum fiski á markað,
í samvinnu við Islenskar sjávaraf-
urðirhf.
„Efla ber þann vísi að rann-
sóknarstofu sem KS og FISK
starfrækja. Við höfum áhuga á að
ná samningum við bæjaryfirvöld
og Háskóla Islands um að gera
Sauóárkrók að miðstöð sam-
starfsverkefna atvinnulífsins og
Háskólans á sviði matvæla-
vinnslu“, sagði Þórólfur kaupfé-
lagsstjóri, en undirbúningur fyrir
þessa framtíóarsýn er þegar haf-
inn af hálfu kaupfélagsins með
stofnun starfshóps, sem vinnur
m.a. að því að komið verði á
kennslu á framhaldsskólastigi í
matvælavinnslu og sameiginlegri
rannsóknaraðstöðu skóla og at-
vinnulífs á þessu sviði.
Óvænt framboð á Blönduósi
Aukið líf hefur færst í kosningabaráttuna á
Blönduósi eftir að nýtt framboð kom fram í
bænum, svokallaður F-listi framfara sinn-
aðra. Voru frambjóðendur og stuðningsfólk
þess lista að safna stuðningmönnum síðustu
dægrin áður en framboðsfrestur rann út og
náðu að ganga frá honum í tæka tíð.
Jón Hannesson framkvæmdastjóri sem skip-
ar þriöja sæti listans, segir framboðið tilkomió
vegna megnrar óánægju með uppröðun á aðra
lista í bænum. „Fólkiö í efstu sætunum á þessum
listum eru eiginlega allt opinberir starfsmenn og
hefur að auki lítió komið nálægt bæjarmálefn-
um, svo sem afskiptum af atvinnumálum í bæn-
um. Það veitir svo sannarlega ekki af að taka á
þeim málum núna og því vildum viö endilega
blanda okkur í barattuna", segir Jón.
Sjö efstu sæti F-listans skipa: 1. Sturla Þórö-
arson tannlæknir, 2. Sigrún Sophaníasdóttirskrif-
stofumaður, 3. Jón Hannesson framkvæmda-
stjóri, 4. Sigurður Ingþórsson verslunarmaður, 5.
Bjami Jónsson pípulagningarmeistari, 6. Jón
Daníel Jónsson deildarstjóri, 7. Valdís Þórðar-
dóttir nuddfræðingur.
—ICTew?ill hjDI—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
bílaverkstæði
ÆXæSZB. sími: 95-35141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviögerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN