Feykir


Feykir - 11.05.1994, Blaðsíða 1

Feykir - 11.05.1994, Blaðsíða 1
@ rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Unglingaheimilið Stóru-Gröf: Starfseminni haldið áfram, í breyttri mynd Ekki hefur þurft að kvarta undan veðráttunni það sem af er maímánuði, sólin skinið flesta daga og hitastigið stundum farið í tveggja stafa tölu, óvant því sem Norðlendingar hafa búið við á þessum árstíma upp á síðkastið. Þeir sem vinna inni kunna að meta það að geta drukkið kaffisopann utandyra og komast aðeins undir bert loft. Svo var að minnsta kosti að sjá á starfsfólki Prent- smiðjunnar Sást á Sauðárkróki í gær. Það er reyndar ekki víst að svona stundir gefist svo mikið á næstunni, en mikið verður að gera hjá prentsmiðjufólki þegar nær dregur bæjarstjómarkosning- unum, 28. maí. Þýskt skip landar ferskum fiski Akveðið hefúr verið að starf- semi deildar Unglingaheimilis rfldsins, sem starírækt hefur verið í Stóru-Gröf í Skagafirði í tæpt ár, verði haldið áfram, en í breyttri mynd. Ekki verður um lokaða deild að ræða eins og verið hefúr, enda er gengið út frá því að skjólstæðingarnir sem vistist í Stóru-Gröf í fram- tíðinni þurfi ekki eins mikla gæslu og þeir sem verið hafa þar undanfarið. Stóru-Grafarheimilinu var komið á fót til að leysa brýnustu þörf Unglingaheimilins varóandi vistun nokkurra unglinga sem ekki hafði fundist neitt vistunarúr- ræði fyrir. í Stóru-Gröf hafa dval- ið fjórir unglingar og að sögn Bryndísar Guðmundsdóttur for- stöðumanns heimilsins hefúr starfsemin gengið framar vonum. Hópurinn útskrifast frá Stóru-Gröf nú um miðjan mánuðinn og held- ur þá út í frelsið. Undanfamar vik- Hólanesi á Skagaströnd var í gær veitt heimild til nauða- samninga, en af því hefur verið stefht síðan fyrirtækið fékk greiðslustöðvun snemma árs. Greiðslustöðvunin rann út í gær. Að sögn Lárusar Ægis Guð- mundssonar framkvæmdastjóra Hólaness virðist sem víðtækt samkomulag hafi náðst við kröfuhafa um nauðasamningana og bendi flest til þess að það frumvarp sem kynnt hefur verið nái fram að ganga, en það gerir ur hafa unglingamir verið í starfs- fræðslu á ýmsum vinnustöðum á Sauðárkróki og hefur þeim alls- staðar verið mjög vel tekið. Að sögn Bryndísar forstöðu- manns mun breyting úr lokaðri deild þýða að starfsmönnum fækki úr 12 í 9. Uppsagnir em enn í gildi og ekki hefur verið gengið ffá endurráðningum starfsfólks, en ljóst er að einhverjir verða að hætta. Aformað er að 4-5 ungling- ar verði til heimilis í Stóm-Gröf. „Þá er ljóst að húsnæðismálin verður að leysa á einhvem hátt, en þau em ófuílnægjandi. Annars er ég mjög ánægð með aó ákveóió hafi verið að halda starfseminni áfram, og tel að á margan hátt sé þetta ákjósanlegt form sem hér hefur verið. Það hefur væntanlega einnig verið mat þeirra sem ákvörð- unina tóku og einnig hagkvæmni sú sem felst í því að nýta áfram þá þjálfun sem starfsfólkið hér heftir öðlast", sagði Bryndís. ráð fyrir þeim meginforsendum að 30% krafna verði greiddar. Umsjónarmaður nauðasamninga hefur veriö skipaóur Ragnar H. Hall lögmaður. Búist er við að 2-3 mánuðir líði þar til búið verði að ganga frá samningum. Rækja hefur verið unnin í Hólítnesi ffá febrúarbyrjun og vonast framkvæmdastjórinn til að þegar líður fram í mánuðinn hafi nægjanlegthráefhi verið tryggt hl að unnt verði að taka upp vakrir í rækjunni um mánaðamótin næstu. Á mánudagsmorgun kom til Sauðárkróks þýski togarinn E- uropa með 130 tonn af ísuðum fiski, sem hann vciddi úr kvóta EB í Barentshafi. Togarinn landaði aflanum, sem var aðal- lega þorskur og ýsa, hjá Fiskiðj- unni og gæti orðið framhald á þessum viðskiptum, að sögn Ein- ars Svanssonar framkvæmda- stjóra Fiskiðjunnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Fiskiðjan fær hráefni ff á þýskum skipum, cn fyrirtækið hefur keypt nokkra farma af fiski úr Barcntshafinu af rússneskum skipum. Togarinn Europa er frá útgerð í Bremerhafen og er nánast eina ís- fiskútgerðin í Þýskalandi sem lifað hefur af aflasamdrátt síðustu ára. Svo skemmtilega vildi að á mánu- dag lá einnig við bryggju á Sauðár- króki, Skagfirðingur SK-4 nýkom- inn úr sölutúr frá Bremnerhafen þar sem skipið selur karfa einu sinni í mánuði allan ársins hring. Einar Svansson segir að hér sé um hálfgerð vöruskipti að ræða milli landanna, sem séu hagkvæm fyrir báöa aðila. Fiskiðjan/Skag- firóingur hagnist Ld. verulega á því að selja karfann í Þýskalandi. Fengist hafi 410 milljónir fyrir karfasöluna í fyrra, en einungis hefðu fengist 170 milljónir fyrir karfann unninn hér heima. Nýlega hefur verið gengið frá vaktavinnusamningi við starfsfólk Fiskiðjunnar, sem felst í því að unnið verður á tvcim sex tíma vöktum, að minnsta kosti fram yfir sumarfrí og verður þá staðan met- in að nýju. Forráðamenn Fiskiðj- unnar eru bjartsýnir á að takist að afla hráefnis yfir þennan tíma. Hólanes fær heimild til nauðasamninga —KJch^íii it|DI— Aóalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 jm bílaverkstæði sími: 95-35141 Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 Bílaviðgerðir • Hjólbaróaverkstæði RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.