Feykir


Feykir - 18.05.1994, Síða 1

Feykir - 18.05.1994, Síða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Skoðanakönnun Feykis vegna bæjarstjórnarkosninga á Sauðárkróki: Útkoman svipuð og í síðustu kosningum Alþýðubandalgið bætir við sig miklu fylgi, en K-listinn nær ekki inn manni samkvæmt könnuninni Álit efstu manna framboðslista: Bjöm Sigurbjömsson A-Iista: Hcr cr aöcins um skoðanakönn- un að ræða. Alþýðuflokkurinn spyr aó leikslokum 28. maí, og ég vona að sjálfsögðu að útkoman verði ekki lakari út úr kosningunum en könn- uninni. Stefán Logi Haraldsson B-Iista: Af því úrtaki sem gert var finnst mér svörunin lítil, og hlutur óákveó- inna talsvert stór. Könnunin sjálf er vísbending um að við séum stærsti flokkurinn áfram og ég hef trú á að við munurn bæta við okkur miðað við þessa könnun. Mér sýnist fjórði maðurinn innan seilingar. Jónas Snæbjörnsson D-lista: Skoðanakönnun í litlu samfélagi eins og okkar getur aldrei gefið marktæka niðurstöðu. Sjálfstæðis- flokkurinn gerir sér vonir um enn betri úrslit í kosningnum en skoð- anakönnunin gefur til kynna. Anna K. Gunnarsdóttir G-lista: Þctta er því miður allt of lítið úr- tak til að könnunin geti verið mark- tæk. En ef hún gefur einhverja vís- bendingu, sem ég tel samt ekki, þá sýnir það sig að Alþýðubandalagið er líklegast minni framboðanna til aö ná inn manni. Við þurfum samt á öllu okkar aö halda. Hilmir Jóhannesson K-lista: Eg álít að skoðanakannanir ætti ekki að taka nær kosningum en tveim vikum fyrir kjördag, vegna þess að þær geta verið skoðana- myndandi. Hins vegar get ég engu ráðið um þetta og verð að sæta mig við þær reglur sem í gildi eru. Eg er í rauninni ánægðurmeð að K-listinn er með og á sama máta mun ég verða ánægður með það fylgi sem K-listinn fær út úr kosningunum því það er það fylgi sem við eigum skilió. Skoðanakönnun Feykis um fylgi framboðslista fyrir bæj- arstjórnarkosningarnar á Sauðárkróki 28. maí nk., gefur niðurstöður sem eru ótrúlega líkar úrslitum síðustu kosn- inga. Helstu breytingar eru þær að G-Iisti Alþýðubanda- lagsins bætir við sig verulegu fylgi frá síðustu kosningum, samkvæmt könnuninni, en K- listinn tapar talsvert. Sem kunnugt er verður nú kosið um sjö sæti í stað níu í bæjar- stjórn áður. B-Iistinn hlyti þrjá menn nú samkvæmt könnun- inni, D-listinn tvo og G-Iistinn og A-listinn sinnhvorn fúlltrú- ann. Könnunin var framkvæmd um síðustu helgi, frá laugardegi til mánudags. Gert var 10% úr- tak úr kjörskrá og reyndist tím- inn of skammur til að unnt reyndist að ná í um fjórðung þeirra sem lentu í úrtakinu. Af þeim 137 sem náðist í tóku af- stöðu 71 eða rúmlega helmingur. Spumingin sem lögð var fyrir þá sem hringt var í var eftirfarandi: Hvem framboðslista á Sauðár- króki mundir þú kjósa ef kosið yrði í dag? Atkvæðin skiptust þannig að A-listi Alþýðuflokks hlaut 8 at- kvæði, B-listi Framsóknarflokks fékk 25, D-listi Sjálfstæðisflokks 21, G-listi Alþýðubandalags 12, K-listi óháðra 5. Óákveðnir voru 37 og 29 neituðu að svara. Samkvæmt könnuninni verða næstu bæjarfulltrúar á Sauðár- króki þessin Stefán Logi Har- aldsson B, Jónas Snæbjömsson D, Bjami R. Brynjólfsson B, Anna K. Gunnarsdóttir G, Stein- unn Hjartardóttir D, Herdís Á. SæmundardóttirB og Bjöm Sig- urbjömsson A. Næsti maður inn er Bjöm Bjömsson af D-lista og þarf hann um 20 atkvæði frá krötum til að ná kosningu. Framkvæmd könnun- arinnar Urtakið var framkvæmt þannig, að kjörskrá var reituð í hólf með tíu nöínum. Utbúin var talnaröð með tölum frá eitt til tíu, og tölunum víxlað eins og ætla mætti að gerðist ef teningi væri varpað. Nöfn kjósenda vom síð- an valin eftir þessari talnaskrá. Það var Helgi Már Þórðarson kennari ffá Vopnafirði sem ann- aðist ffamkvæmd könnunarinn- ar að mestu og var hún fram- kvæmd á eins trúverðugan og heiðarlegan hátt og ffekast var unnt. Ymsir kunna að spyrja hvort að ekki hefði verið nær að fá ein- hvem þeirra aðila sem sérhæfa sig í gerð skoðanakannana til að ffamkvæma könnunina. Svar við því er að stærri blöð en Feykir hafa ekki treyst sér til að leggja út í þann kostnað sem því fylgir. Fljótlega var ljóst að stór hluti þeirra sem hringt var í vom óá- kveðnir eða vildu ekki gefa svar. Vom þeir spurðir hvort þeim fyndist óþægilegt að aðili tengd- ur svæóinu eins og Feykir gerði þessa könnun, hvort svörin hefðu verió öðmvísi ef Gallup, Skáís eða félagsvísindastofhun hefðu gert könnunina? Fólk sagði hiklaust að það skipti ekki neinu máli, það væri einfaldlega ekki búió að gera upp hug sinn. Hinsvegar stóð ekki á svari hjá þeim sem höfðu tekið afstöðu, enda var fólki gerð grein fyrir að engu persónulegu væri haldið eftir varðandi könnunina, aðeins merkt við listabókstaf. Áhugaleysi kjósenda? I samtölum við fólk sem var óákveðið kom ffani að þeim fyndist stefnuskrámar seint á ferðinni hjá framboðunum. Það hefói ekki lesið blöðin sem flokkamir hafa borið í hús og yf- ithöfuð virtist áhuginn ffemur lít- ill fyrir kosningunum hjá þessum hluta úrtaksins. Svör í þessum dúr vom ótrúlega algeng, og svo virðist sem talsverð breyting þurfi að verða á til að kosninga- þátttaka verði ekki eitthvað rninni í kosningunum 28. maí, en verið hefur í undangengnum kosningum. I síðustu kosningum vom gild atkvæði rúm 82% þeirra er vom á kjörskrá. Ef gert er ráð fyrir að skipting atkvæða verði eins í komandi kosningum og í skoðanakönnuninni og að þátttaka í kosningunum 28. maí verði sú sama og 1990 munu atkvæði skiptast þannig milli flokka: Könnun Feykis Kosningar 1990 A Alþýóuflokkur.......171....11,27%.......149....10,17% B Framsóknarflokkur..535.....35,21%.......532....36,34% D Sjálfstæðisflokkur...450...29,58%.......424....28,96% G Alþýóubandalag....257......16.90%...... 148...10,11 % K Óháðirborgarar....107.......7,04%.......154....10,52% Ungir bæjarlistamenn Eitt af því sem bryddað hefur verið upp á vegna væntan- legrar Sumarhátíðar á Sauðárkróki er að ungum og efni- legum listamönnum verði boðið að gera útilistaverk í bænum. I gær voru undirritaðir samningar milli Fiskiðjunnar, ungra listamanna og umsjónarmanns Sumarhátíðar um gerð mynd- verka á veggi Skjaldarhússins. Verða myndirnar málaðar í súlnabilin í bakgrunni myndarinnar, og eiga þær að tengjast fiskinum og því sem skagfirskt er. A myndinni eru frá vinstri talið: Öm Ingi Gíslason umsjónarmaður sumarhátíðar, Sverrir Bergmann Magnússon, Pálmi Jónsson og Einar Svansson fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar. —KTenfli!! hjDI— Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 SHTIbílaverkstæði Æ J_CJLK sími: ti-35141 Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36! 40 Bílaviógeróir • Hjólbaröaverkstæði RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.