Feykir


Feykir - 25.05.1994, Blaðsíða 1

Feykir - 25.05.1994, Blaðsíða 1
© rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Heimasætan á Hæli, Berglind Heiðarsdóttir, með lömbin fímm. Móðir lambanna horfir stolt á. Frjósöm ær á Hæli Ærin Litla-Anna á Hæli í A.-Hún. bar fímm lömbum í vikunni. Voru þau ágætlega stór og lifa öll. Ekki er algengt að ær beri svona mörg- um lömbum, en þessi ær er sérlega frjósöm, hefúr á fimm vetrum skilað 17 Iömbum. Fyrstu þrjú árin var Litla-Anna fjórlembd og nú fimmlembd. Það er Kristín Jónsdóttir sem á þessa afurðasömu á, en Krístín býr á Hæli ásamt manni sínum Heiðari Kristjánssyni. MÓ. Enn gífurleg fönn í Fljótum Enn er mikið fannfergi í Fljót- um, og aðeins hólar og hæðir komnir upp úr snjónum. Kúfúr er á túnum, jafnt yfir, og er útlit fyrir að ekki verði borið á fyrr en seint í júní, nema mikil hlý- indi geri á næstunni og þá helst með vætu, en varla hefúr kom- ið dropi úr Iofti í rúman mánuð í Fljótum. An efa eru Fljótin snjóþyngsta sveit landsins nú og fyrir vegfarendur sem fara um þjóðveg eitt, blasir við annar heimur þegar komið er í Fljótin úr Sléttuhlíðinni, munurinn á snjóalögum í þessum tveim sveitum er slíkur. Búfénaður allur er ennþá á gjöf, og fóður tekið að minnka lijá bændum. Að sögn oddvita Fljóta- hrepps, Amar Þórarinssonar í Ökrum, munu fóðurmálin bjarg- ast. „Um mánaðamótin verður sjálfsagt orðió fóðurlítið á tveim til þremur bæjum, en ég hef ekki nokkra trú á öðru en þetta bjargist og nægt fóður sé innan sveitar“, sagði Öm í Ökrum. Bændur í Fljótum reikna með að hafa búpening hátt í mánuð í viðbót á gjöf, þótt einhver beit verði komin þá, verði það ekkert til að skepnur liafi í sig. Þá er hætta á kali talin mikil. Snjórinn, sem raunar er farinn að meyma nú, hefúr verið mjög þéttur, og því hætt á að öndun hafi verið lítil á túnin. Fannir hefur tekið mjög seint upp í Fljótum, enda vom næturfrost fram yfir miðjan maí. Myndaðist skel yfir nóttina þannig að snjórinn var mannheld- ur aö morgni. Þrátt fyrir ískyggilegt ástand segjast Fljótamenn hafa séð þaó svart áður, og ekki lengra síóan en 1989 að fannalög hafi verið svip- uð og nú. En þrátt fyrir það er ljóst að hér er með snjóameiri vorum í Fljótum að ræða, og hefur vorið 1949 verið ncfnt næst í tíma þess- um tveimur vorum, 1989 og 1994. Tveir listar boðnir fram í Skarðshreppi Tveii' Iistar komu fram í Skarðs- hreppi fyrir hreppsnefiidar- kosningarnar sem þar fara fram 11. júní nk. og eru þeir að mestu skipaðir sama fólki og voru á þessum listum fyrir síð- ustu kosningar í hreppnum. Þá var mjótt á munum. H-Iistinn fékk þrem atkvæðum fleira en L-listinn. A kjörskrá í Skarðs- hreppi eru 80. Það em Ulfar Sveinsson á Ing- veldarstöðum sem ber fram H- listann og Andrés Helgason í Tungu er forsvarsmaður L-listans. Eins og áður er helsta ágreinings- efni þessara framboða afstaða til sameiningarmála. , Jú við teljum okkur vera opn- ari fyrir hugsanlegri sameiningu Skarðshrepps við önnur sveitarfé- lög og munum taka vel viðræðum um þá hluti og skoða vel alla möguleika. Það ræðst svo vita- skuld af meirihlutavilja hreppsbúa hvort til sameiningar komi. Úlfar Sveinsson telur þá til- burði sem forsvarsmenn Sauðár- króks hafa haft í sameiningarmál- unum hingað til líkari því að þeir vilji innlima Skarðshrepp í bæinn, frekar en ræða um sameiningar- mál, sem Skarðshreppingar séu í sjálfu sér tilbúnir að skoða finnist skynsamlegur flötur á því, en sameining verði aldrei til samein- ingarinnar vegna, eins og leit út fyrir að ætti að verða með kosn- ingunum síðasta haust. Næstur Úlfari á H-listanum kemur Jón Eiríksson á Fagranesi, þá Sigurður Guðjónsson Borgar- gerði I, Heiðbjört Kristmunds- dóttir Borgargerði og Edda Har- aldsdóttir Sjávarborg. Næst Andrési á L-listanum kemur Sigrún Aadnegard Berg- stöðum, þá Sóley Skarphéðins- dóttir Tröð, Einar Guðmundsson Veðramóti og Helga Haraldsdótt- ir Sjávarborg. Það eru aðeins hólar og hæðir sem eru komnar upp úr snjónum í Fljótunum og búpeningur allur á gjöf. Hér er Þorgrímur Bjarnason í Neskoti í Flókadal að reita tuggu í hrossin. —KTcHflil! hpl— Aöalgötu 24 Sauöárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 SHfTbílaverkstæði /ull sími: 95-35141 Sæmundargata Ib 550 Sauðórkrókur Fax: 36140 Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.