Feykir - 01.06.1994, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Óvænt á Króknum
Alþýðubandalgið tvöfaldar fylgi sitt, tilflutningur
atkvæða frá Framsókn sem tapar manni
Þannig var umhorfs við Giljá um miðjan dag á mánudag. MyndAlÓ.
Gífurlegt tjón af vatnavöxtum
„Það var sem sprengju hefði
verið varpað á veginn yflr Giljá
á sunnudagskvöldið, þegar ræsi
yfir ána brast og vegfylluna tók
burt með straumnum. Nokkru
áður hafði skarð komið í veginn
en fært var gangandi fólki yfir.
Eg horfði á fólk ganga yfir, en
sem betur fer var enginn stadd-
ur yfir ræsinu þegar sprenjging-
in varð“, sagði Magnús Olafs-
son fréttaritari Feykis, sem
staddur var við Giljá þegar
miklar skemmdir urðu á vegin-
um á sunnudagskvöldið og
þjóðvegurinn lokaðist milli
Norður- og Suðurlands.
Ræsið sem um getur er um 10
metrar í þvermál og á mánudag
var skaróið í veginn orðið um 40
metrar. Brúarflokkur frá vega-
gerðinni vann að því á mánudag
og byggja stálbitabrú yfir gilið á
gamla vegarstæðinu og er í ráði að
styrkja þá brú enn frckar til að hún
geti tekið við þungaflutningum,
en burðarþol brúarinnar, sem
hleypt var umferö á aðfaranótt
þriðjudags, er 5 tonn. Aætlað er að
margar vikur taki að gera við veg-
inn og ræsið við Giljá.
Miklarskemmdirhafaorðið á
vegum Norðanlands í vatnavöxt-
um undanfama daga. Auðólfsstaðá
flæddi yfir veginn í Langadal og
lokaði honum um tíma þannig að
vegfarendur urðu að fara Svín-
vetningabraut. Þá urðu miklar
vegaskemmdir í Norðurárdal í
Skagafirði og einnig á Hjaltadals-
vegi við Nautabú og talsverðar
vegaskemmdir á Vatnsskarði.
Mikið tjón varð á túnum við
bæinn Hvamm í Svartárdal í A,-
Húnavatnsýslu. A sem rennur
skammt frá bænum fór úr farvegi
sínum og beljaði um tíma á hús-
vegg íbúðarhússins. Tókst að
koma í veg fyrir verulegar
skemmdir á íbúðarhúsinu með
því að riðja sundur veginum við
bæinn. Þá hefur bærinn Húsey í
Vallhólmi verið umflotinn vatni
síðustu daga.
Kosningaúrslitin á Sauðár-
króki urðu mjög óvænt. Fram-
sóknarmenn sem stefndu á að
ná fjórum mönnum og hrein-
um meirihluta í bæjarstjórn,
töpuðu talsverðu fylgi og fengu
einungis tvo menn kjörna. Svo
virðist sem fylgistap framsókn-
ar hafi komið Alþýðubandalag-
inu til góða, en Allaballar
kornu sem sigurvegari úr kosn-
ingunum, rúmlega tvöfölduðu
fylgi sitt frá síðustu kosningum
og skorti aðeins 14 atkvæði til
að fá tvo menn kjörna á kostn-
að óháðra.
K-listi óháðra og A-listi Al-
þýðuflokks héldu sínum manni
hvert framboð og fylgið var svip-
aö og í síðustu kosningum. Marg-
ir höfðu efasemdir um að K-list-
inn kæmi aö manni í þetta sinn,
en stuðningsmenn Óháðra gerðu
þær hrapspár að engu. Sjálfstæð-
ismenn töpuðu dálitlu fylgi frá
síðustu kosningum og fengu tvo
menn kjöma eins og margir höfðu
spáð þeim.
Úrslit kosninganna urðu á
þann veg að meirihluti, Sjálfstæð-
isflokks, Alþýðuflokks ogÓháðra
heldur velli, hefur samtals fjóra
Jón Arnar Magnússon tug-
fulltrúa af sjö í bæjarstjóm og
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
bandalag verða að láta sér lynda
að verða í minnihluta áfram þetta
kjörtímabil. Akveðið hefur verið
að Jónas Snæbjömsson verði for-
seti í nýrri bæjarstjóm, Bjöm Sig-
urbjömsson formaður bæjarráðs
eins og hann var á síðasta kjör-
tímabili og K-listinn fái for-
mennsku í veitunefhd og hafnar-
nefnd. Snorri Bjöm Sigurðsson
verði áffarn bæjarstjóri.
Kjörsókn á Sauðárkróki var
87,7%. Úrslitin urðu þau aó A-
listi Alþýðuflokks hlaut 173 at-
kvæði og einn mann kjörinn B-
listi Framsóknarflokks 486 at-
kvæöi og tvo menn kjöma, D-listi
Sjálfstæðisflokks 430 atkvæði og
tvo menn kjöma, G-listi Alþýðu-
bandalags 327 atkvæði og einn
mann kjörinn og K-listi áháðra 170
atkvæði og einn mann kjörinn.
Verðandi bæjarfulltrúar em:
Bjöm Sigurbjömsson (A), Stefán
Logi Haraldsson og Bjami Ragn-
ar Bryjólfsson (B), Jónas Snæ-
bjömsson og Steinunn Hjartar-
dóttir (D), Anna Kristín Gunnars-
dóttir (G) og Hilmir Jóhannesson
þrautarmaður úr UMSS setti
um helgina nýtt Islandsmet á
tugþrautarmóti í Austurríki.
Jón hlaut alls 7896 stig og lenti í
12. sæti af 32 þátttakendum.
Á mótið í Austurríki var ein-
ungis boðið þeim allra sterkustu í
tugþraut í heiminum og hafði um
helmingur þátttakenda náó 8000
stigum fyrir mótið. Jóni Amari var
því sýndur mikinn heiður að vera
boðið á þetta mót sem haldið er ár-
lega. Árangur Jóns kemur í sjálfu
sér ekki á óvart, þar sem aó hann
hefur sýnt það í vor að hann er til
alls líklegur á mótum sumarsins.
Grásleppuvertíð í meðallagi
Grásleppuvertíðin, sem segja
má að sé á cnda, hefúr verið í
mcðallagi góð. Algeng útkoma
eflir vertíðina er 50-60 tunnur á
bát þar sem tveir eru á og
hclmingi minni hjá þcim sem
róa cinir. Grásleppukarlar eru
byrjaðir að taka upp netin,
þrátt fyrir að það megi stunda
veiðarnar fram til 20. júní, enda
hefur veiðin verið mjög dræm
síðustu vikurnar.
Spádómar Þorleifs Ingólfssonar
grásleppubónda á Þorbjargar-
stöðum í Skefilsstaðahreppi virðist
hafa ræst, en hann bjóst við stuttri
vertíð. Vertíðin byrjaði ágætlega
og veiði var góð í aprílmánuði, en
gæftir voru að sama skapi ekki
góðar þannig að minna aflaðist
fyrir vikið. Þegar síðan tíðarfarið
batnaði til muna í maímánuði og
gæftir urðu góðar lét sú gráa á sér
standa.
Þessi vertíð var mun betri en
sú síðasta sem var mjög léleg.
Reyndar höfðu grásleppubændur
vonast eftir mjög góðri vertíð nú
og verð fyrir hrognin er gott. Samt
er að heyra á mönnum að þeir séu
tiltölulega ánægðir að vertíðin
skuli þó hafa verið í meðallagi,
það sé allavegana útlit fy'rir að
offramboð verói ekki á
markaðnum og verðið muni því
haldast svipað á næstuvertíð.
(K)._______
Jón með íslandsmet
—ICTeH?ill hj!)l— bílaverkstæði
Aóalgötu 24 Sauðárkrókl ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
Æ M mm M sími: 95-35141
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargata J b 550 Sauíárkrókur Fax: 36140
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 RÉTTINGAR • SPRAUTUN