Feykir


Feykir - 15.06.1994, Page 1

Feykir - 15.06.1994, Page 1
© rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Þýsku togararnir landa stöðugt Hegranes og Drangey í Smugunni 1‘ýski togarinn Bremen landaði í fyrradag 160 tonnum til vinnslu hjá Fiskiðjunni. Von er á Europa um helgina með hátt í svipað magn, en skipið var komið með um 50 tonn í gær. hýskir togarar landa nú hrá- efni til vinnslu hjá Fiskiðjunni í hverri viku og hafa landað um 700 tonnum frá því í vor. Vonir standa til að viðskiptin við Þjóðverjana heldi áfram í næsta mánuði einnig. Að sögn Magnúsar Erlings- soníir hjá Fiskiójunni/Skagfirð- ingi er þetta hráefni ekki dýrt í krónunt talið, en hinsvegar hefur aðeins skort á gæðin. Er unnið að því að bæta þau og segir Magnús Þjóðverjana hafa tekið vel í það að koma upp tvöföldu þvottakerfi á aflanum, og eins að karavæða skipin, en þar er ísað í stíur upp á gamla móðinn, sent gerir það að verkum að fiskurinn verður aldrei eins gott hráefhi eins og sá sem ís- aður er í kör, sem síðan er við löndun hægt að láta óhreyfð í frystigeymslur þar til vinnsla fer frant. Skagfirðingur og Skafti eru á karfaveiðum og eiga söludaga í Þýskalandi sitthvoru megin við mánaðamótin næstu. Drangey og Hegranes eru hinsvegar í Smug- unni. Gísli Svan Einarsson út- gerðarstjóri Skagfirðings vildi lít- ið um veiðar skipanna ræða. Sagði allt gott að ffétta þaðan, en þess má geta að mörg skip eru að veiðum í Smugunni og má því búast við aó veiði þar sé góð. Eldi hlýsjávarfiska á Sauðárkróki gengur vel. Að sögn Guð- Arnar Ingólfssonar framkvæmdastjóra Máka, hafa seiðin fimmfaldað þyngd sína, þann rúma mánuð sem þau hafa verið í eldi, og er það 20% betri árangur en reiknað var með. Guðmundur var með nokkur seiði í búri tif sýnis á Land- búnaðarráðstefnunni sem haldin var á Króknum sl. laugardag og flutti einnig ffóðlegt erindi um hlýsjávareldið á ráðstefnunni. Sérstæð nauðgun á Króknum Hundur hvelpir labradortík í óþökk eigenda tíkurinnar „Ég hef hótað því að ef hund- urinn birtist hérna einu sinni enn verði hann fjarlægður fyr- ir fúllt og allt. Þetta var í fjórða skiptið sem þessi rakki kom hérna sem þetta gerðist og hann er búinn að koma hérna einu sinni síðan“, segir Þor- björg Snorradóttir hundaeig- andi á Sauðárkróki, en I>or- björg varð fyrir þeirri óskemmti- legu reynslu nýlega að hundur úr næstu götu birtist inni á lóð hjá henni og hvelpti labrador- tík sem hún á. Dýralæknir var fenginn til að ff amkvæma fóst- ureyðingu, enda var búið að gera ráðstafanir til að tíkin fengi hjá öðrum „höfðingja“ syðra. „Þetta er talsvert tjón fyrir okkur þar sem að við vomm búin að lofa hvolpum í lok júlí. Eg var líka rosalega reið þegar þetta gerðist því lögin um hunda- hald eiga aö tryggja að svona hlutir geti ekki gerst“, sagði Þor- björg. Aðspurð sagðist hún hafa leitað til lögreglu vegna ágengni og lausagöngu hundsins, en kvaðst ekki munu aðhafast ffekar í mál- inu svo framarlega sem hundur- inn birtist ekki þama aftur. Jú hundurinn nauðgaði vita- skuld tíkinni sem var í bandi á lóðinni, en annars finnst ntér fólk héma gera of mikið grín að þessu og sjá ekki alvöruna sem að baki er. I sannleika sagt hef ég haft lít- inn friö meó tíkina fyrir öðrum hundum síðan við fluttum hing- aó fyrir tæpuni tveim mánuðum. Hún virðist vera mjög eftirsótt af þeim. En málið er að meö hundaskattinum á fólk að búa við það öryggi að lögum um hundahald sé framfylgt, þar á meðal að hundar séu ekki lámir ganga lausir. Eg verð að scgja að fyrir sunnan er þetta allt öðruvísi. Þar er mun fastar tekió á svona málum og maður er öruggari með sinn liund. Eigandi hundsins scnt hvelpti tík Þorbjargar varð aó greiða dýralækniskosmaó, en þess má geta að í hundaskattinum felst trygging þar sem sjálfsábyrgð hundaeiganda er 16.500 krónur valdi viðkomandi hundur tjóni. „Að öðru leyti líkar okkur mjög vel héma í bænuni", segir Þorbjörg sent er nýlega tekin við ffamkvæmdastjóm í saumastof- unni Vöku. Það var mikið að gerast á íþróttasvæðinu undir Nöfunum um helgina, en unnið var að þöku- lagningu á nýjum grasvelli sunnan aðalleikvangsins. Þessi nýi völlur er að stærð sem nemur einum og hálfúm grasvelli, og er gerð hans nú að mestu lokið. Um 40 manns mætti í þökulagninguna á laugardeginum og fjöldi manns síðan eftir hádegi á sunnudag. Fyrir miðri mynd má m.a. sjá Stefán Guðmundsson alþingismann sem hér á árum áður var einn af fremstu íþróttamönnum Skaga- fjarðar. Nýi völlurinn og sú starfsemi sem þar fer fram á eflaust eftir að skapa aukið líf í bænum, og enn eykst glæsileiki íþróttasvæðisins við innkeyrsluna í bæinn, sem þótti þó mikill fyrir. —KTeHflÍt! f»|DI— Aöalgötu 24 Sauöárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 Æl bílaverkstæði sími: 95-35141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 Bílaviógerðir • Hjólbarðaverkstæði RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.