Feykir - 29.06.1994, Síða 3
25/1994 FEYKIR3
Af götunni
Sláttur hafinn
Ekki læddist sá grunur aó tíö-
indamönnum Feykis er blaðið kom
út fyrir viku, að sláttur væri þá
hafinn í héraðinu, enda liefur
tíðarfarið undanfarið hreint ekki
gefið tilefni til slíkra vangaveltna.
Það mun engu að síður vera ár-
visst að Stefán bóndi á Grænu-
mýri í Blönduhlíð byrji helst ekki
slátt seinna en kringum þjóð-
liátíðardaginn og svo var einnig að
þessu sinni. Þeir er fóm hjá garði
Stefáns sögðu grassprettu þar góða
og því ekki of snemmsleggiö þar
frekar en endranær.
Markús á Reykjarhóli hefur
þær kenningar uppi að þessi mikla
gróska hjá Stefáni eins og fleiri
bændum stafi af mikilli notkun
liúsdýraáburóar. Þunn mykjan
gangi vel ofan í túnin, og síðan sé
einnig auóveldara fyrir þá sem
einungis cru með mjólkurfram-
leiðslu, að verja túnin ágangi
búfjár.
Kórar í upptökum
Að undanfömu hafa bæði
Heimir og Lóuþrælar verió að
liljóðrita efni, sem væntanlega
mun koma út á plötu eða geisla-
diski áður en mjög langt um líður.
Lóuþrælar liafa þegar lokið sér af,
en upptökur hjá Heimi hófust um
síðustu helgi og er búið aó hljóó-
rita um helming laganna.
Heimismenn vom að syngja
fyrir upptökur í Höfðaborg á
Hofsósi sl. laugardag. Gámng-
amir á Hofsósi sögðu að Þor-
valdur á Sleitustöðum, formaður
kórsins, hefði verið mættur
snemma um morguninn til að reka
burtu spóa, stelka og aðra háværa
fugla, svo að þeir tmfluðu ekki
upptökuna, en það mun hafa borið
við þcgar Heimismenn hljóð-
rituðu síðustu plötu sina í Argarði
fyrir nokkmm ámm, að söng-
fuglar í nágrenninu létu í sér heyra
og er Þorvaldur sagður hafa rekið
sama stelkinn í tvígang úr tún-
fætinum. Þetta mun þó ekki vera
ástæðan fyrir því að Heimismenn
vom ekki við upptökur í Argarði
nú, heldur var sú ástæðan að
félagsheimilið var frátekið vegna
ættarmóts.
Þá sögu háðfuglar á Hofsósi
það einnig, að hrafn einn sem
verpti í Staðarbjargarvíkinni
mundi syngja bassann með þeim
Hcimisfélögum.
□
Steinklumpar eiga t.d. að fara í uppfyllingu á Eyrinni.
Slæm umgengni um
safnhauga bæjarins
Að sögn Helgu Gunnlaugsdótt-
ur garðyrkjustjóra Sauðár-
króksbæjar er illa gengið um
safnhaugana skammt frá á-
haldahúsinu, þar sem safhað er
gróðurúrgangi. Nokkur brögð
hafa verið að því að fólk hefur
komið þangað með dót sem alls
ekki má lenda þarna, svo sem
steinklumpa, járnadrasl, plast
og fleira. Það eru aðrir staðir í
bænum sem henta betur fyrir
þennan úrgang.
Fólki skal bent á að steinklumpa
og slíkt dót cr best að fara með í
haug út á eyrina norðan slátur-
hússins þar sern það fcr undir fyll-
ingu. Jámadót er best að fara mcö
upp í krúsina fyrir ofan Steypu-
stöóina þar sem safnhaugar eru
fyrir bílhræ.
Með safnhaugum fyrirgróður-
úrgang er verið að leitast við að
framleiða lífræna gróðurmold. Að
sögn Helgu garðyrkjustjóra ætti
fyrsti haugurinn að verða tilbúinn
til notkunar næsta vor, en ljóst er
að hann verður ekki nýttur nema
aó hreinsa hann áður. Þar er nefhi-
lega i honum mikið af plastúr-
gangi sem þarf að hreinsa burtu.
Hclga segir að mikiö sé um að
fólk komið með mold í plastpok-
um og losi mslið ekki úr pokun-
um heldur skilji þá eftir. Það sé
ekki nóg, því plastið eyðist ekki.
Það sé því nauðsynlegt að fólk
losi pokana og fari með tómu
pokana með sér.
Vinabæjamót á Skagaströnd
Þrjátíu norrænir gestir
komnir til bæjarins
Kominn er til Skagastrandar
30 manna hópur frá vinabæj-
unum á Norðurlöndum, forset-
ar bæjarstjóra í viðkomandi
bæjum, bæjarstjórnarmenn og
fúlltrúar norrænu félaganna á-
samt mökum. A morgun hefst
vinabæjamót á Skagaströnd og
stendur það fram á föstudags-
kvöld með viðamikilli dagskrá.
Á laugardag munu forráða-
menn á Skagaströnd síðan
fylgja gestum sínum suður yfir
Kjöl með viðkomu í Blöndu-
virkjun, á Hveravöllum, Gull-
fossi, Geysi og einnig verður
farið um Þingvöll og þessir
staðir skoðaðir.
Vinabæir Skagastrandar á
Norðurlöndunum em bæir með
13-60 þúsund íbúa og Skaga-
strönd því sveit eða smáþorp í
samburði við þá. Vinabæimir em
Aabenrá í Danntörku, Hönefors í
Noregi, Váxhö í Svíþjóð og Lohja
í Finnlandi.
Dagskrá heimsóknar vinabæj-
anna hefst í kvöld með boði fyrir
þá í Kántríbæ og þar verður m.a.
hlýtt á Borgardætur. Á morgun
(fimmtudag) verður síðan form-
leg mótsetning. Að lienni lokinni
verður boðið til útsýnisferðar um
nágrennið, farió fyrir Skaga,
Steinullarverksmiðjan á Sauðár-
króki skoðuð, einnig væntanlega
Hitaveita Sauðárkróks, síðan
verður haldið heim til Hóla og
þaðan farið í Varmahlíó þar sem
ferðalangamir munu fá í svanginn
og hlýða á söng Jóhanns Más Jó-
hannssonar.
Dagskráin á föstudag mun
hefjast með skoðunarferð um
Skagasrönd og síðan verður um-
ræðufundur um umhverfismál,
þar sem aö Magnús Jóhannesson
ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu-
neyti mun hafa framsögu. Eftir
hádegið veröur svo efnt til svo-
kallaðs útivistardags. Gefst þá
gestunum m.a. kostur á að fara í
golf, reiðtúr, siglingu á bátum eða
í silungsveiði. Um kvöldið verður
hátíðarkvöldverður þar sem vina-
bæjarmótinu verður formlega slit-
ið.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu er um glæsilega dagskrá
aó ræða og vonandi að veðurguð-
imir veröi hliðhollir Skagstrend-
ingum og gestum þeirra.
Gripahúsaeignedur
vilja afturfrest
Gripahúsaeigendur hafa óskað
eftir því að frestað verði gild-
istöku banns við skepnuhaldi á
deiliskipulögðum svæðum í
bænum, sem ganga á í gildi nú
l.júlí.
Þetta bann átti að ganga í gildi
sl. sumar en gripaliúsaeigendur
fengu því þá frestað. Á fundi
bæjarráðs nýlega var samþykkt að
Bjöm Sigurbjömsson og Stefán
Logi Haraldsson ræddu við
eigendur gripahúsanna ásamt
bæjarstjóra.
Skagfírðingar!
FöstLidaginn 1. júlí n.k. höldmn við upp á
30 ára afmæli útibús Búnaðarbankans
á Sauðárkróki.
í tilefni dagsins bjóðum við upp á kaffi
og meðlæti.
Ókeypis myndataka í debetkort
allan daginn.
Allir hjartanlega velkomnir.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
Útibúið á Sauðárkróki