Feykir - 29.06.1994, Side 5
25/1994 FEYKIR5
^N^
Á SAUÐÁRKRÓKI
Lausar stöður við
Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra
á Sauðárkróki
Laus er til umsóknar 50% staóa hjúkrunarfræóings til aó kenna hjúkrunar-
fræði á næsta skólaári. Þá er einnig auglýst eftir stundakennara til aó kenna
myndmennt 4-8 stundir í viku. Umsóknarfrestur er fjórar vikur frá birtingu
þessarar auglýsingar. Umsóknir sendist skólameistara sem veitir nánari
upplýsingar.
Fjölmenni gerði sér ferð í
stórveislu á Skagann
Þeir veiddu vænstu fiskana á veiðidegi fjölskyldunnar. Gunnar A.
Gunnarsson t.v. veiddi þann stærsta, rúmlega tvö pund og hlaut
að launum fimm þúsund króna ávísun frá Stangveiðifélagi Sauð-
árkróks. Ingimar Hannesson í miðið fékk þann næst stærsta og
Gísli Kristjánsson kom næstur. Tveir stærstu fiskamir veiddust í
Hörknárvatni, en fiskur Gísla í Kolluvatni. Talið er að um 50
veiðimenn hafi tekið þátt í veiðidegi fjölskyldunnar á Skaganum.
Nýtt byggðamerki
Torfalækjarhrepps
I*eir voru margir sem lögðu leið
sína út á Skagann sl. sunnudag,
þar fór fram svokallaður Skaga-
dagur sumarsæluvikunnar. Um
250 manns komu í fiskihlað-
borð í félagsheimilinu Skaga-
seli, þar sem framreitt var fisk-
meti er Skagabændur höfðu
veitt og framleitt og það var
meistarakokkurinn Rúnar Mar-
vinsson sem hafði umsjón með
hlaðborðinu. Stangveiðifélag
Sauðárkróks hélt veiðidag fjöl-
skyldunnar á Skaganum og
komu margir til að veiða í vötn-
unum á Skaganúm, en boðin
var óskeypis veiði í Ölvesvatni,
Hörknárvatni, Kelduvíkur-
vatni, Steinatjörn, Neðstavatni
og Kolluvatni.
Skagadagurinn hófst með
messu. Til stóð að messa á Ketu-
björgum, en vegna lágs hitastigs
var messan flutt í kirkjuna í
Hvammi. Um 100 manns sótti
messuna, fjöldi sveitafólks og
gesta, þar á meðal Drangeyjarkór- Meistarakokkurinn Rúnar Marvinsson hafði Ingólf Sveinsson
inn sem staddur var í héraðinu. bónda í Lágmúla sér til aðstoðar við eldamennskuna. Hér er Rúnar
Aó lokinni messunni komu marg- með bakaðan saltfisk með suðrænni sveiflu á pönnunni.
ir við í Skagaseli og fengu sér há-
degismat þar. Síðan var stöðug
umferð allan daginn í fiskihlað-
borðið, en þar var m.a. boðið upp
á skagfirska tindabikkju, heil-
soðna bleikju úr Urðarselstjöm,
saltfiskþjöppu, kryddlegna ýsu,
steikta grásleppu, bakaðan saltfisk
með suðrænni sveiflu, smálúðu
elegant, grafin silung úr Ölves-
vatni og sitthvað fleira.
Með Rúnari Marvinssyni var
einnig á ferðinni Magnús Sig-
mundssson tónlistarmaður og trú-
bador. Magnús söng og lék nokk-
ur lög, Island er land þitt og fleiri
ættjarðarlög ásamt lögum af
nýjasta geisladisk sínum, og fékk
að launum mikið klapp og lof
gestaí Skagaseli. Skagadeginum
lauk síðan með vorballi Búnaðar-
félags Skeflunga í Skagaseli. Var
það ágætlega sótt og skemmti
fólk sér vel.
Magnús Sigmundsson tónlistarmaður lék og söng nokkur lög
fyrir matargesti, sem renndu kræsingunum af fiskihlaðborð-
inu Ijúflega niður.
Eins og sjá má var hlaðborðið
hið glæsilegasta
Hreppsnefnd Torfalækjar-
hrepps hefúr tekið upp byggða-
merki fyrir hreppinn. I merk-
inu eru þrjú tákn sem tengjast
sveitinni: Reykjanibba sýnd
með hvítri Iínu, gullsteinn í
svörtum lit og stökkvandi lax í
hvítum lit. Höfúndur merkis-
ins er Guðráður Jóhannsson á
Beinakeldu, en oddvitinn Er-
lendur Eysteinsson á Stóru-
Giljá, hafði frumkvæði aðgerð
þess.
I nýútkomnum Sveitarstjóm-
armálum segir í frétt um merkið
að hreppsnefndin hafi samþykkt
það á síðasta ári, en beðið með
að kynna það uns séð varó hvort
af sameiningu hreppa í Austur -
Húnavatnssýslu yrði á árinu.
I samþykkt hreppsnefndar
um merkið segir m.a: „Byggða-
merki Torfulækjarhrepps skal
vera skjöldur í hvítri og svartri
umgjörð með fjórum innbyggö-
um litum. Blái liturinn er litur
himins, fjarlægðar og vatns,
grænn litur táknar samfellda
gróðurtorfu sveitarinnar, sem
vísar til Kolkumýra sem nefnd-
Guðráður á Beinakeldu er
höfundur merkisins.
ar voru eftir landnámsmannin-
um Þorbimi Kolku.
Eins og áður segir er í merk-
inu Gullsteinn einn þriggja tákna
í því er tengjast sveitinni. Við
Gullstein tók Konráð bóndi á
Stóru-Giljá fyrstur Islendinga
kristna trú af syni sínum Þor-
valdi víðförla og Friðriki biskupi
af Saxlandi áröið 981.