Feykir


Feykir - 29.06.1994, Page 5

Feykir - 29.06.1994, Page 5
25/1994 FEYKIR5 ^N^ Á SAUÐÁRKRÓKI Lausar stöður við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki Laus er til umsóknar 50% staóa hjúkrunarfræóings til aó kenna hjúkrunar- fræði á næsta skólaári. Þá er einnig auglýst eftir stundakennara til aó kenna myndmennt 4-8 stundir í viku. Umsóknarfrestur er fjórar vikur frá birtingu þessarar auglýsingar. Umsóknir sendist skólameistara sem veitir nánari upplýsingar. Fjölmenni gerði sér ferð í stórveislu á Skagann Þeir veiddu vænstu fiskana á veiðidegi fjölskyldunnar. Gunnar A. Gunnarsson t.v. veiddi þann stærsta, rúmlega tvö pund og hlaut að launum fimm þúsund króna ávísun frá Stangveiðifélagi Sauð- árkróks. Ingimar Hannesson í miðið fékk þann næst stærsta og Gísli Kristjánsson kom næstur. Tveir stærstu fiskamir veiddust í Hörknárvatni, en fiskur Gísla í Kolluvatni. Talið er að um 50 veiðimenn hafi tekið þátt í veiðidegi fjölskyldunnar á Skaganum. Nýtt byggðamerki Torfalækjarhrepps I*eir voru margir sem lögðu leið sína út á Skagann sl. sunnudag, þar fór fram svokallaður Skaga- dagur sumarsæluvikunnar. Um 250 manns komu í fiskihlað- borð í félagsheimilinu Skaga- seli, þar sem framreitt var fisk- meti er Skagabændur höfðu veitt og framleitt og það var meistarakokkurinn Rúnar Mar- vinsson sem hafði umsjón með hlaðborðinu. Stangveiðifélag Sauðárkróks hélt veiðidag fjöl- skyldunnar á Skaganum og komu margir til að veiða í vötn- unum á Skaganúm, en boðin var óskeypis veiði í Ölvesvatni, Hörknárvatni, Kelduvíkur- vatni, Steinatjörn, Neðstavatni og Kolluvatni. Skagadagurinn hófst með messu. Til stóð að messa á Ketu- björgum, en vegna lágs hitastigs var messan flutt í kirkjuna í Hvammi. Um 100 manns sótti messuna, fjöldi sveitafólks og gesta, þar á meðal Drangeyjarkór- Meistarakokkurinn Rúnar Marvinsson hafði Ingólf Sveinsson inn sem staddur var í héraðinu. bónda í Lágmúla sér til aðstoðar við eldamennskuna. Hér er Rúnar Aó lokinni messunni komu marg- með bakaðan saltfisk með suðrænni sveiflu á pönnunni. ir við í Skagaseli og fengu sér há- degismat þar. Síðan var stöðug umferð allan daginn í fiskihlað- borðið, en þar var m.a. boðið upp á skagfirska tindabikkju, heil- soðna bleikju úr Urðarselstjöm, saltfiskþjöppu, kryddlegna ýsu, steikta grásleppu, bakaðan saltfisk með suðrænni sveiflu, smálúðu elegant, grafin silung úr Ölves- vatni og sitthvað fleira. Með Rúnari Marvinssyni var einnig á ferðinni Magnús Sig- mundssson tónlistarmaður og trú- bador. Magnús söng og lék nokk- ur lög, Island er land þitt og fleiri ættjarðarlög ásamt lögum af nýjasta geisladisk sínum, og fékk að launum mikið klapp og lof gestaí Skagaseli. Skagadeginum lauk síðan með vorballi Búnaðar- félags Skeflunga í Skagaseli. Var það ágætlega sótt og skemmti fólk sér vel. Magnús Sigmundsson tónlistarmaður lék og söng nokkur lög fyrir matargesti, sem renndu kræsingunum af fiskihlaðborð- inu Ijúflega niður. Eins og sjá má var hlaðborðið hið glæsilegasta Hreppsnefnd Torfalækjar- hrepps hefúr tekið upp byggða- merki fyrir hreppinn. I merk- inu eru þrjú tákn sem tengjast sveitinni: Reykjanibba sýnd með hvítri Iínu, gullsteinn í svörtum lit og stökkvandi lax í hvítum lit. Höfúndur merkis- ins er Guðráður Jóhannsson á Beinakeldu, en oddvitinn Er- lendur Eysteinsson á Stóru- Giljá, hafði frumkvæði aðgerð þess. I nýútkomnum Sveitarstjóm- armálum segir í frétt um merkið að hreppsnefndin hafi samþykkt það á síðasta ári, en beðið með að kynna það uns séð varó hvort af sameiningu hreppa í Austur - Húnavatnssýslu yrði á árinu. I samþykkt hreppsnefndar um merkið segir m.a: „Byggða- merki Torfulækjarhrepps skal vera skjöldur í hvítri og svartri umgjörð með fjórum innbyggö- um litum. Blái liturinn er litur himins, fjarlægðar og vatns, grænn litur táknar samfellda gróðurtorfu sveitarinnar, sem vísar til Kolkumýra sem nefnd- Guðráður á Beinakeldu er höfundur merkisins. ar voru eftir landnámsmannin- um Þorbimi Kolku. Eins og áður segir er í merk- inu Gullsteinn einn þriggja tákna í því er tengjast sveitinni. Við Gullstein tók Konráð bóndi á Stóru-Giljá fyrstur Islendinga kristna trú af syni sínum Þor- valdi víðförla og Friðriki biskupi af Saxlandi áröið 981.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.