Feykir - 29.06.1994, Blaðsíða 6
6FEYKIR 25/1994
Heilir og sælir lesendur góðir. Það er
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd sem
byrjar þáttinn að þessu sinni. Eftir lestur
síðasta þáttar yrkir hann svo.
Óskar glettur góðar kann
geðs með réttum hótum.
Andans fléttur iðkar hann
oft á léttum nótum.
I mars sl. þegar borgarmálapólitíkin
tók á sig nýjar myndir, orti Rúnar svo.
Hœgri klíkan hrœslugjörn
haldin fári mörgu,
mœldi núll á Markús Örn
móti Ingibjörgu.
Og önnur kemur hér um sama efni og
hefur Rúnar þar reynst sannspár.
Markús Örnfrá völdum vék
vildi fara í hvelli.
Ihaldið þar leikinn lék
sem leggur það að velli.
Síðan kemur „grindarsnúningsvísan"
að hætti Sigurðar Hafstað.
Hœlatinda húsdýr enn
hylla syndarnúning.
Tœla lyndis Ijúfa menn
leika grindarsnúning.
Þegar Bretar tóku togarann Rex (áður
Amar frá Skagaströnd) og færðu hann til
hafnar urðu til eftirfarandi vísur hjá Rún-
ari.
Málin þyngjast, vandinn vex
verðurflest að meini.
Breski flotinn rœndi Rex
reis á móti Sveini.
Það mun honum þó til tjóns
þetta skip að góma.
En árœði hins enska Ijóns
er því mjög til sóma.
Þá langar mig að koma þeirri orðsend-
ingu til Sigmundar Jónssonar bónda á
Vestara-Hóli í Fljótum aó hann verði svo
vinsamlegur að senda mér nokkrar vísur
fyrir næsta þátt.
Ekki kann ég að nefna höfund að
næstu vísu.
Loks er þögn, hún allt skal erfa
oftast jarðlífvarir skammt.
Okkar bíður allra að hverfa
áfram lífið heldur samt.
Onnur vísa kemur hér í svipuðum dúr
og mun höfundur hennar vera Skúli V.
Guðjónsson.
Þegar œvisól er sest
segl og reiði fúin,
held ég gröfin geymi best
gömul bein og lúin.
Þá má vel bæta einni viö eftir Eirík
Einarsson frá Hæli.
Síguryfir heiminn húm
herra náðargjarni.
Ljáðu hentugt legurúm
lífsins tökubarni.
Næstu tvær vísur held ég að séu eftir
Þormóð B. Pálsson frá Njálsstöðum.
Fer að verða stutt í stans
streymir tíminn hraður,
stígur lífsins lokadans
lúinn förumaður.
Þegar hrökkva heimsins bönd
hvað semfólkið skrafar,
get ég rétt þér hlýja hönd
hinum megin grafar.
Talsvert hefur gengið á nú undanfarið
hjá krötum eins og stundum áður. Má
með sanni segja að vel sé við hæfí að rifja
upp eftirfarandi vísu.
Ekki er happaleiðin Ijós,
linast apparatið,
þó að kappar rauða rós
reki í hnappagatið.
Það mun hafa verið um svipað leyti og
Jón Baldvin klofaði á milli kjördæma og
spurði kjósendur hver ætti Island?, sem ég
heldaðBöðvarGuðlaugsson hafiortsvo.
Nú er kátt í koti hjá
krötum hér á Fróni.
En œtli þeir lifi lengi á
loftinu í honumJóni.
Fram kom hjá Óskari Sigurfinns í síð-
asta þætti athugasemd vegna fyrirhugaðs
banns á notkun á nef- og munntóbaki.
Kristján H. Benediktsson lætur sitt álit í
ljós með eftirfarandi vísu.
Ég held það sé skoðun og hugsunin mín
að hér myndi ei leysast neinn vandi,
þótt banni þeir tóbak og brennivín
bœði á sjó og landi.
Næst kemur vísa sem ég held að sé
eftir Gísla Stefánsson í Mikley. Tildrög
hennar munu vera þau að einhverju sinni
er ball var haldið á Stóru-Ökrum í
Blönduhlíð (Héðinsminni), var þar stadd-
ur Pétur Jónsson þá nýkominn frá Amer-
íku. Mun athygli samkomugesta hafa
beinst nokkuð mikið að honum sem von-
legt var og margir viljað ræða við hann.
Héma úti í eyjunum
ég erfalinn gleymsku,
meðan Pétur meyjunum
miðlar vesturheimsku.
Þá er gaman að hcyra næst vísu eftir
Kára frá Valadal.
Kætir lundu kveðið mál
kosta er fiindið gaman.
Ég hefstundum öls við ál
orðin bundið saman.
Það er Þorvaldur Þórarinsson frá
Hjaltabakka sem yrkir svo um vormorg-
un á Stóra-Vatnsskarði.
Vakna hlýjar, helgar kendir
hefjum lofog þakkargjörð,
þegar geisla sína sendir
sólin yfir Skagafjörð.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum
541 Blönduósi, sími 95-27154.
Fysti sigur Tindastóls í höfn
Dalvíkingar lagðir af velli 2:1 í norðannepjunni á föstudagskvöldið
Afrakstur norðvestanliðanna slakur um helgina:
■ ■
Hvöt bar sigurorð af HSÞb í
leik sem fram fór á Blönduósi á
laugardaginn. Önnur lið af
svæðinu töpuðu sínum leikjum:
Þrymur 2:4 gegn Geislanum á
Hólmavík, Neisti 1:3 gegn SM á
Hofsósi og KS 1:4 á móti
Magna á Grenivík.
Hvöt var mun betri aðilinn í
leiknum gegn HSÞb, en Hvatar-
mönnum tókst samt sem áður ekki
að skora í fyrri hálfleiknum. Það
var síðan Sveinbjöm Asgrímsson
sem tók til sinna ráða og skoraði
þrjú glæsileg mörk í seinni hálf-
leiknum, áður en Þóri Þórissyni
tókst að minnka muninn fyrir
Þingeyinga.
Neisti fór flatt í leik sínum
gegn SM. Neistamenn voru öllu
sterkari aðilinn í leiknum en það
dugði ekki til. Það sem gildir er
víst að skora mörkin og það nýttu
SM menn í þau fáu skipti sem þeir
komust upp að marki Neista, en
Hofsósingar voru ekki að sama
skapi jafn glúmir hinum megin.
SM náði forustunni í fyrri hálfleik,
en Magnús Jóhannesson jafnaði
þegar um stundarfjórðungur var
liðinn af seinni hálflcik. SM-menn
skoruðu síðan tvisvar á síðasta
stundarfjórðungi leiksins og unnu
öruggan sigur.
Þrymsmenn voru sprækari að-
ilinn í fyrri hálfleik á Hólmavík.
Staðan í leikhléi var 2:2 og skror-
aði Orri Hreinsson bæði mörk
liðsins úr vítaspymum. í seinni
hálfleiknum náðu síðan Geisla-
menn yfirhöndinni og skomðu þá
tvö mörk.
Magnamenn byrjuðu vel gegn
KS-ingum og það var fimm mín-
útuna kafli seint í fyrri hálfleikn-
um sem gerði útslagið. Þá skomðu
Magnamenn þrjú mörk og höfðu
fyrr í hálfleiknum skorað eitt,
þannig að staóan í leikhléi var 4:0.
Siglfiróingar fengu rönd við reist í
seinni hálfleiknum og skorðu þá
einu sinni, Steingrímur Öm Eiðs-
son skoraði það mark.
Staðan í Norðurlandsriðli 4.
deildar er þá þannig, að Magni er
efstur með 18 stig, KS og SM em
með 16, Hvöt meö 15 stig, Kor-
mákur 10, HSÞ b og Neisti meó 6
stig hvort félag, Geilsinn með 4
stig og Þrymur 3 stig. KS er með
örlítið betra markahlutfall cn SM
og er því í öðm sæti deildarinnar.
Tindastóll sótti þrjú dýrmæt
stig til Dalvíkur á föstudags-
kvöldið og hefúr með þessum
fyrsta sigri sínum í deildinni
náð að lyfta sér aðeins á töfl-
unni. I>að var svo sem ekkert
tilhlökkunarefni að leika knatt-
spyrnu á föstudag, þegar hríð-
aði niður í miðjar hlíðar á
Norðurlandi, en Tindastóls-
menn stóðust þessa karl-
mennskuraun og héldu ánægð-
ir heim að leik loknum. Þetta
var annars leikur sem gat í
rauninni farið á hvern veginn
sem var og það var á elleftu
stundu sem Tindastælingar
innbyrtu stigin þrjú.
Tindastólsmenn fengu óska-
byrjun í leiknum þegar hom-
spyma Grétars Karlssonar reynd-
ist vísir að marki. Boltinn hrökk í
þverslána neðanverða og Bjöm
Sigtryggsson reyndist réttur mað-
ur á réttum stað og ýtti boltanum
inn fyrir línuna. Tindastóll var
betra liðið í fyrri hálfleiknum og
minnstu munaði að Króksumm
tækist að bæta við öðm marki
þegar Hilmar Hilmarsson átti skot
í stöng seint í hálfleiknum.
Dæmið snérist við í seinni
hálfleiknum. Þá sóttu Dalvíkingar
mun meira, cn Tindastólsvömin
stóð oftast fyrir sínu. Hún gaf þó
heimamönnum dauðafæri um
miójan hálfleikinn og hreint ótrú-
legt að þeir skyldu ekki nýta það.
Þegar um sjö mínútur vom til
leiksloka náðu síðan Dalvíkingar
að jafna og var megn rangstöðu-
fnykur að því marki. Tindastóls-
menn lögðu samt ekki árar í bát
og vom ákveðnir í að knýja fram
sigur. Það tókst fjóram mínútum
síðar þegar Gunnar Gestsson
skoraði með skoti af stuttu færi
eftir að Peter Pisanjuk hafði skall-
að í stöngina.
Ámi Stefánsson þjálfari Tinda-
stóls gerði þá breytingu á upp-
styllingu liðsins, að færa Peter
Pisanjúk í stöðu liósstjómanda á
miójunni og Gunnar Gestsson í
stöðu aftasta vamarmanns. Þetta
virtist skila árangri þegar á heild-
ina er litið.
Næstu leikur Tindastóls er í
kvöld gegn Þrótti Reykjavík í 32-
liða úrslitum Bikarkeppni KSI. I
deildinni leikur Tindastóll næst
gegn Hetti frá Egilsstöðum. Báð-
ir þessir leikir fara fram á Krókn-
um.
Tindastóll er nú í 7. sæti ann-
arrar dcildar, skammt á eftir 2-3
liðum, með sex stig. Höttur cr í 8.
sæti með 4 stig, en Dalvík og
Haukar reka sem fyrr lestina mcð
aðeins 1 stig.
Mjólkurbikarinn 32-liða úrslit!
Sauðárkróksvöllur í kvöld:
Tindastóll - Þróttur R
Komið og sjáiö spennandi
leik og hvetjið ykkar menn!
Stjómin.