Feykir


Feykir - 29.06.1994, Page 7

Feykir - 29.06.1994, Page 7
25/1994 FEYKIR7 Einn fjögurra flokka Eilífsbúa á mótinu. Efri röð frá vinstri: Valdimar Pétursson, Emil Dan Brynjólfsson og Þórdís Braga- dóttir. Neðri röð: Guðný Erla Steingrímsdóttir, Fríður Finna Sig- urðardóttir og Elísabet Kjartansdóttir. Ókeypis smáar Til sölu Til sölu Mazda 626 árgeró 1986, ekinn 128 þús. km, mjög góður bíll. Upplýsingar í síma 35141 (Jóhann). Heimilishjálp! Vantar þig heimilishjálp? 18 ára stúlku er stundar nám við Fjölbrautaskólann vantar hús- næði næsta skólaár. Vill gjaman vinna fyrir leigunni með heimilishjálp. Er vön bama- pössun og almennum heimilis- störfum. Reyki ekki. Upplýs- ingar í síma 95-27125 (Mæja). Súgþurrkunarblásari! Súgþurrkunarblásari óskast. Upplýsingar í síma 35225. vetur. Skilvísum greiðslum og reglusemi heitið. Upplýsingar í síma 22785. Vitni óskast! Þriðjudaginn 21. júní sl. milli kl. 16 og 17 var ekið eða bakkað aftan á Subaru station MS 381, á bifreiðastæði við Skagfirðinga- búð. Vinsamlegast hafið samband í síma 35753. Barnagæsla! Halló! Stelpur á aldrinum 18-24 ára, hafið þið gaman af bömum? Langar ykkur að losna úr snjónunt og kuldanum í vetur? Níu mánaóa stelpu og tveggja ára strák vantar bamapíu frá semtembermánuði nk. Ef þið hafi áhuga, skrifið þá til: RHH C/O FLORES PEASEO DE LOS SAVCES 14 CHALET 21 URB-MONTERPINCIPE BOADILLA DEL MONTE 28668 MADRID ESPANIA Seglbrettakennsla! Verðum með seglbrettakennslu á Sauðárkróki á næstunni ef næg þátttaka fæst. Skráning í síma 95- 24528. Emm á Eddu-hótelinu á Húnavöllum. Aðalfundur Feykis hf Eilífsbúar á skáta- móti við Úlfljóstvatn í tilefni af 50 ára afmæii Iýð- veldis Islands var haldið skáta- mót á Úlfljótsvatni dagana 22.- 26. júní sl. á vegum Skátasam- bands Reykjavíkur, undir yfir- skriftinni „Vertu með“. Alls voru um 500 þátttakendur á mótinu en talið er að um 700 manns hafi verið á svæðinu á laugardeginum, en þá var opinn heimsóknardagur, sem endaði með grillveislu og kvöldvöku með varðeldi. Frá Skátafélaginu Eilífsbúum á Sauðárkróki fóra alls 33 þátttak- endur á aldrinum 11-15 ára. Þótti það mjög góð þátttaka miðað við stærð félagsins, en í því era skráð- ir um 70 félagar. Var þeim skipt í fjóra flokka, sem unnu saman að undirbúningi mótsins og skilaði sá undirbúningur sér vel, þar sem allir flokkamir fengu viðurkenn- ingu fyrir þátttöku í dagskrárlið- um mótsins. Einn af þeim liðum var svokallað „Hike“, sem er fimm tíma gönguferð og í þeirri ferð átti að leysa ýmiss verkefni sem öll tengjast náttúranni og notkun korta og áttavita. Hópurinn vann mjög vel sam- an í heild sinni, sem sannast best á því að Eilífsbúar fengu hin eftir- sóttu verðlaun frá mótsstjóm fyr- ir bestu tjaldbúð mótsins. Fararstjórar era mjög ánægðir með frammistöðu Eilífsbúa og alla framkvæmd mótsins og vilj- um við þakka skátunum og for- eldram þeirra fyrir mjög góða samvinnu. Má geta þess hér að foreldrar unnu mjög vel með fé- laginu að hátíðahöldum á 17. júní sl. til fjáröflunar fyrir þetta mót og annað mót sem 12 skátar frá Sauðárkróki fara á í Danmörku 15. júlínk. Fararstjórar. Eilífsbúar fengu hin eftirsóttu verðlaun frá mótsstjórn fyrir bestu tjaldbúð mótsins. Hér er heiðursfélagi Eilífsbúa, Frank Mikkelsen við fordyri tjaldbúðanna, Hegranesþings. íbúð óskast! Systur, 16 og 17 ára, óska eftir lítilli íbúð eða stóra herbergi með eldunaraðstöðu til leigu næsta Stærsti laxinn úr Blöndu í 20 ár , Jú þetta var mikið högg þeg- ar fiskurinn tók og hann byrj- aði mótspyrnuna með allmiklu viðbragði. Maður var óncitan- lega orðinn þónokkuð þreytt- ur þcgar hann hafðist á land, enda þurili ég að hlaupa upp í brckkuna nokkrum sinnum til að koma í veg fyrir að honum tækist að skorða sig bak við steina neðan við flúðirnar í ánni. Það gera þeir stundum til að reyna að losa sig“, sagði Gunnar Pétursson bæjarverk- stjóri á Króknum sem nýlcga fékk nærststærsta laxinn er komið hefur upp úr Blöndu, en samkvæmt upplýsingum Feykis veiddist 25 punda fisk- ur í ánni fyrir rúmum 20 árum. Fiskurinn sem Gunnar fékk á toby-spún var 24 pund að stærð, gríðarlcgt ferlíki. Klukkan var átta að kvöldi miðvikudagsins 15. júní þegar sá stóri oeit á og það tók Gunnar 15-20 mínútur að landa fiskinum. „Þetta var á Breiðunni að norðanverðu rétt fýrir neðan flúðimar í ánni. Eg þurfti náttúrlega að marggefa lín- una út til að þreyt’ann, en þetta gekk ágætlega. Þetta er sá langstærsti fiskur sem ég hef nokkum tíma fengið í Blöndu. Þeir stærstu hingað til hafa verið svona um 15 pund", sagði Gunn- ar, sem fékk tvo fiska þcnnan dag í Blöndu, hinn var 11 punda. Veiði í Blöndu hefur verið mjög góð og lofar góðu fyrir sumarið. Um helgina höfðu veiðst 222 fiskar sem er liðlega helmingur veiðinnar í fyrra. Aóalfundur Feykis hf verður haldinn í Safnaóarheimilinu á Sauðárkróki miðvikudaginn 13. júlí nk. kl. 17,00. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstðrf. Stjórnin. Bændur! Bændur! Fyrir- liggjandi fóðursíló, 6 rm. að stærð, úr trefja- plasti. íftvÉLAVAL 560 Varmahlíð, sími 38118

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.