Feykir


Feykir - 29.06.1994, Qupperneq 8

Feykir - 29.06.1994, Qupperneq 8
Öháð fréttablað á Norðurlandi vestra 29. júní 1994,25. tölublað 14. árgangur. Sterkur auglýsingamiðill Það komast allir í Gengið unglingaklúbb Landsbankans Sláðu til og komdu í Gengið | Pottþéttur klúbbur! m Landsbanki Sími35353^ Banki allra landsmanna Áheyrendur hlýða á söng Heimis úr brekkunum við Staðarbjargarvík. Fjölmenni á Hofsósi um helgina Velheppnuð Sumarsæluvikuhelgi Handan Vatna Hestamenn úr Svaða riðu niður gilið fyrir ofan Pakkhúsið og á eftir þeim kom gamli mjólkur- bíllinn í hægðum sínum. Á brúsapalli hans stóð Drangeyj- arkórinn og söng lagið um Bjössa á mjólkurbílnum. I>annig hófst sumarsæluviku- helgin á Hofsósi á föstudags- kvöld. Gestkvæmt var á Hofsósi um helgina og var greinilegt að fólk skemmti sér mjög vel á pakkhúsloftinu. Þá kom fjöldi manns til að hlýða á karlakór- inn Heimi syngja í Staðarbjarg- arvíkinni. Sá viðburður vakti greinilega forvitni og áhuga fólks. Það var fjölmenni á Pakkhús- loftinu á föstudagskvöldið, nánast „pakkað“. Fólk var yfir sig ánægt meó þá skemmtun sem það varð þar aðnjótandi. Drangeyjarkórinn söng undir stjóm Snæbjargar Snæbjamardóttur og því næst llutti Ámi Tryggvason leikari draugasögu og gamanmál. Þá sungu og léku systkinin ífá Ártún- um. Að lokinni þessari dagskrá var efnt til fjöldasöngs og var mjög almcnn þátttaka í honum. Boðið var upp á fomar veitingar í Pakkhúsinu, hákarl og brennivín, og var hákarlinn látinn ganga ó- sparlega. Skemmtunin var síðan endurtekin á laugardagskvöldið og var þá hátt í það eins margt eins og kvöldið áður. Veðurguðimir vom tiltölulega mildir Handan vatna á laugardags efdrmiðdag er Karlakórinn Heimir söng í Staðarbjargarvík. Fjöl- mennni var mætt til að fylgjast með og hlýóa á sönginn, líklega vel á þriðja hundrað manns. Með- al annars var fólk á tveim bátum að hlýða á kórinn ífá sjó. Kórinn söng nokkur af sínum þekktustu lögum og fékk mikið klapp fyrir. Það var gestkvæmna á Hofsósi um helgina en Nefndin Austan Vatna hafði þorað aö vona og ljóst er að Hofsósingar og gestir þeirra mega vel við una sinn skerf af Sumarsæluviku. Hafnarnefnd: Kona kosin Á fúndi Hafnarnefndar Sauð- árkróks bar það til tíðinda að kona var kosin í nefhdina. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem kona er kosin í hafnamcfnd Sauðáricnóks. Það var Hendís Sæm- undardóttir (B) er hlaut kosningu, en Herdís fylgdi því einmitt fast eftir á sínum tím að jafnrétt- isnefnd yrði komið á í bænum. Nítján umsónir um bæjarstjórastöðuna Umsóknarfrestur um stöðu bæjarstjóra á Blönduósi, sem nýlega var auglýst, er runnin ÚL Nítján umsóknir bárust um starlið. Umsóknimar vom kynntar bæjarfulltrúum á bæjarstjómar- fundi í gær. Pétur Amar Pétursson forseti bæjarstjómar segir að mál- ið verði nú unnið áfram, en ó- mögulegt sé að segja til um hvenær nýr bæjarstjóri yrði ráðinn á Blönduósi. Þjófavarnakerfið virkaði vel í Vísi Aðfaranótt síðastliðins laugar- dags var brotist inn í verslunina Vísi á Blönduósi. Þjófavarnar- kerfi sem komið hafði verið fyrir í búðinni fyrir tæpum mánuði virkaði vel og cr nánast einskis saknað úr húðinni. Þegar bjöllumar fóru af stað, virðist sem aó sá er innbrotið framdi, hafi ekki veriö lengi að yfirgefa húsið, því þúsundkrónur er geymdar voru í búóarkassa vom ósnertar. Aðeins hafði verið hróflað við sælgæti í búðinni en lítils af því saknað. Lögreglan fann skömmu síðar mann er gmnaöur var um innbrotið. Maðurinn hefur hinsvegar neitað öllum sakargiftum. Miklar breytingar í oddvitastöðum: Fimm nýir í jafnmargir Skagfirði og í Húnaþingi Miklar breytingar hafa orðið í stöðum oddvita í Skagafjarðar- sýslu í kjölfar hreppsnefndar- kosninga í vor. I Skagafirði eru komnir nýir oddvar í fimm sveitahreppum af tíu. Minni breytingar eru á oddvitum í Húnavatnssýslum, í vestur sýsl- unni eru þrír nýir oddvitar og tveir í Austur-Húnavatnssýslu. Anna Steingrímsdóttir hús- freyja í Þúlúm tekur við oddvita- starfi í Hofshreppi af Stefáni Gestssyni á Amarstöðum, Har- aldur Jóhannesson bóndi í Enni í Viðvíkurhreppi tekur við af Birgi Haraldssyni á Bakka, Valgeir Bjamason kennari á Hólum er nýr oddviti í Hólahreppi, tekur við af Trausta Pálssyni, Símon Traustason bóndi í Ketu í Rípur- hreppi leysir af hómi Ama Gísla- syni í Eyhildarholti og Ingibjörg Hafstað kennari og húsfreyja í Vík verður odddviti Staðarhrepps í stað Þorsteins Ásgrímssonar á Varmalandi. Þorsteinn vareinnig oddviti héraðsnefúdar og er óljóst hver tekur við því starfi. Valur Gunnarsson er nýr odd- viti á Hvammstanga, tekur við af þeim Hilmari Hjartarsyni og Guðmundi Hauki Sigurðssyni. Þorsteinn Helgason á Fosshóli tekur við oddvitastarfi í Fremri- Torfustaðahreppi af Eggerti Páls- syni á Bjargshóli. I Ytri-Torfu- staóahreppi er einnig nýr oddviti. Stefán Böðvarsson á Mýmm leysir Jóhannes Bjömsson á Laugarbakka af hólmi, en Jó- hannes var síðastur í röð þriggja manna er gegndu þessu cmbætti á síðasta kjörtímabili. Adolf H. Bemdsen er nýr odd- viti á Skagaströnd, tekur við af Sveini Ingólfssyni. I Svínavatns- hreppi hættir Sigurjón Lámsson á Tindum og Jóhann Guðmunds- son í Holti tekur við. Frestað var oddvitakjöri í Torfalækjarhreppi á dögunum, en líklegt er talið að Erlendur Eysteinsson á Stóm- Giljá verði áfram oddviti í hreppnum. Oddvitinn Ég er ennþá fastur í sessi. Gæðaframköllun bókabúð BRSTOiIARS

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.