Feykir


Feykir - 13.07.1994, Page 1

Feykir - 13.07.1994, Page 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Ungmennin vinna að uppbyggingu gamaliar sjóbúðar að Reykjum á Reykjaströnd. Unglingar í Vestnorden varðveita náttúru- og sögulegra minja Undanfarna daga hafa dvalið í Skagafirði 15 unglingar frá Fær- eyjum, Grænlandi og íslandi, og unnið að svokölluðu Vest- norden-verkefni sem beinist að varðveislu náttúru og sögulegra minja. Unnið er að slíku verk- efhi til skiptis í löndunum þrem- ur, á næsta ári verður t.d. starf- að í Færeyjum og þarnæst á Grænlandi. Verkefnisstjóri að þessu sinni var Sigurður Jóns- son (Björnssonar frá Nesi) sem margir Skagfirðingar þekkja eða kannast við. Ástæða þess að Skagafjörður varð fyrir valinu að þessu sinni má rekja til þeirra sögulegra minja sem héraðið geymir og einnig að í suinar er unniðaðúrbótum nátt- úru- og söguminja í héraðinu, s.s. hjá Jóni Eiríkssyni Drang- eyjarjarli í Drangey og á Reykj- um, en báðir tengjast þessir staðir sterklega Grettissögu. Að sögn Sigurðar verkefnis- stjóra var auglýst eftir þátttöku unglinga í þessu vcrkefni, og voru þau valin með tilliti til áhugasviðs og þeiiyar menntunar er þau stunda. I hópnum em t.d. ungling- ar sem nema sögu og stunda nám tengdu starfi í ferðamálum og ferðaþjónustu. Sjálfur starfar Sig- urður að ferðamálunt og er m.a. starfsmaður nefhdar er vinnur að úrbótum á áningastöðum ferða- manna. Vinnultópurinn kom til Skaga- fjarðar þriðjudaginn 5. júlí og lióf þegar störl' við grisjun í lundi Bólu-Hjálmars að Bólu. Á fimmtudag og föstudag var hóp- urinn að störfum út við Reykja- disk á Reykjaströnd og í Drangey. Á Reykjum aðstoðuðu ungling- amir grjót- og torfhleðslumenn við uppbyggingu gamallar sjó- búðar, sem þar fer fram þessa dagana, og í Drangey var unnið að lagfæringu uppgöngunnar í eyna, en hún hefur látið nokkuð á sjá síðustu árin. Föstudagskvöldsins naut hóp- urinn á Borgarsandi við göngu og í útreiðartúar. Á laugardagsmorg- un var haldið til Hóla og staður- inn skoðaður. Eftir hádegið var hópurinn viðstaddur afhjúpun minnisvarða um Guðríði Þor- bjamardóttur við Glaumbæ og seinna um daginn var fylgst með sýningu á sögu íslenska hestsins á Vindheimamelum, sem Hesta- sport gengst íyrir. Á sunnudags- morgun yftrgaf hópurinn Skaga- fjörð og hélt til Akureyrar og Mý- vatnssveitar. Á mánudagsmorgun var síðan haldið með fyrstu vél til Reykjavíkurog Grænlendingam- ir flugu heim þá um daginn og Færeyingamir daginn eftir. Að sögn Sigurðar Jónssonar þekkm Færeyingamir í hópnum vel til sögu Grettis og Gísla sögu Súrssonar, útlaganna tveggja, og Grænlendingamir vom vitaskuld með sögu Eiríks rauða á hreinu. Sex Islendingar vom í hópnum: þrír frá Akureyri, tveir frá Reykja- vík og ein frá Sauðárkróki, fimm Færeyingar og fjórir Grænlend- ingar. Greinilegt var að ungling- amir sýndu viðfagnsefni sínu mikinn áhuga og vom afköst þeirra undraverö þessa fáu daga í Skagafirði. Gott atvinnuástand á Skagaströnd Atvinnuástand hefhr stórbatn- að á Skagaströnd síðustu vik- urnar. Er cinkum tvennt sem veldur því að nú eru fáir án at- vinnu á Ströndinni. Fyrir um hálfúm mánuði var farið að vinna kola í Hólanesi og starfa 25 manns við þá vinnuslu. Þá var um helgina byrjað að vinna á vöktum í Rækjuvinnslu Hóla- ness, en mikið magn af góðri rækju hefur borist á land nú að undanförnu. Á atvinnuleysiskrá í síðustu viku vom 17, og höfðu nokkrir af þeim vinnu hálfan daginn. Búist var við að þessi listi styttist enn- frekar nú eftir helgina þegar vakt- imar væm komnar á í rækju- vinnslunni. Til samanburðar má geta þess að rúmlega 70 manns vom á atvinnuleysisskrá í vetur þegar mest var og yfirleitt vom 50-60 manns atvinnulausir. Fimm einstaklingar stofnuðu fyrir nokkm fyrirtækið Norður- strönd og stendur það á bak við kolavinnsluna í Hólanesi. Tveir bátar stunda kolaveiðamar, Helga Björg og Auðbjörgin. Mjög stutt er á miðin, eða héma rétt út af Höfðanum og bæjunum, eins og Vilhjálmur Skaftason hafnarvörð- ur sagði í samtali vió Feyki. Bát- amir hafa verið að fá upp í þrjú tonn yftr daginn en kolinn er frek- arsmár. Mikil vinna hefur verið í rækj- unni að undanfömu og var t.d. unnið bæði á laugardag og sunnu- dag í Hólanesi. Skúli ráðinn bæjar- stjori a Blonduosi „Mér líst bærilega á þetta og það er ljóst að um spennandi verkefni er að ræða. Blönduós er vaxandi bær og ég sé fyrir mér að með virkri samvinnu við nágrannasveitarfélög eru sóknarfæri í sjónmáli í atvinnu- málum“, segir Skúli Þórðarson, sem í síðustu viku var ráðinn bæjarstjóri á Blönduósi úr hópi 19 umsækjenda. Skúli, sem er frá Hvammstanga, tekur við starfinu í ágústbyrjun. Hann hefur í rúmt ár gegnt starfi framkvæmdastjóra Sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra, og hafði þar áður unnið með hlé- um hjá félagsmálaráðuneyti að ýmsum verkefnum. Nú er haft á orói að fjárhags- staða Blönduóss sé mjög erfið í dag, eftir miklar framkvæmdir á síðustu ámnt og samdrátt í at- vinnumálum á sama tíma? ,Jú því er ekki að neita að staða sveitarfélagsins er þröng um þessar mundir, en með markviss- um aðgerðum er hægt að laga hana. Líkur eru til að grípa þurfi til aðhaldsaðgerða af einhverju tagi, og menn gera sér það ljóst aó verklegar framkvæmdir verða í lágmarki á þessu kjörtímabili, í ljósi þessarar þröngu stöðu. En eins og ég segi þá em líka sóknar- færi í sjónmáli og lykillinn að því er virk samvinna í héraði og með því móti er ljóst að unnt verði aó bæta hag allra héraðsbúa", segir Skúli, en þvertekur fyrir að þessi orð sín þýði aó hann muni sem bæjarstjóri á Blönduósi beita sér fyrir sameiningu sveitarfélaga á svæðinu. „Hér eftir sem hingað til verð- ur fmmkvæöið í þeim málum aó koma frá sveitarstjómunum sjálf- um“, sagði Skúli Þórðarson. Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 bílaverkstæði simi: 95-35141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 Bílaviögerðir • Hjólbarðaverkstæði RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.