Feykir - 14.09.1994, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
SS selur íslenskum
skinnaiðnaði hlut
sinn í Loðskinni
Loðskinn tapar við söluna helming
hráefnismarkaðarins hér á landi
„I>etta kom okkur ákaflega á
óvart og við erum mjög undr-
andi á þessum vinnubrögðum.
Við vorum einmitt syðra í síð-
ustu viku og vorum þá einmitt
að ræða við sláturleyfishafa um
bætta meðferð gæranna. Síðan
fengum við að frétta þetta um
hádegið í dag“, sagði Birgir
Bjarnason framkvæmdastjóri
Loðskinns. í gær seldi SS 20%
hlut sinn í Loðskinni til Islensks
skinnaiðnaðar á Akureyri og
mun selja allar gærur sem til
falla á þessu hausti til vinnslu á
Akureyri.
Þetta cru alvarleg tíðindi fyrir
forráðamenn Loðskinns, þar sem
að gæmmar M SS hafa verið um
helmingur af hráeíhismarkaði
Loðskinns. yrst og fremst emm
við undrandi, en við munum snúa
okkur að því strax að athuga
hvemig við getum bmgðist við
þessu, það em ýmsir möguleikar
í stöðunni. Meira er ekki hægt að
segja í bili, en ég á ekki von á að
þetta stoppi okkur af‘, sagði
Birgir.
Loðskinni barst seint í gær
símbréf frá íslenskum skinna-
iðnaði þar sem óskað var eftir
vióræðum um samvinnu þessara
fyrirtækja.
Þorkelshólshreppur:
Kannar fyrst sveitarfélaga
ástand frárennslismála
Þrettán ára drengur á Sauðárkróki:
Gengst undir lengingaraðgerð
Rökkvi Sigurlaugsson 13 ára Sauðkræking-
ur, sem slasaðist mikið er hann varð fyrir
skólabíl við barnaskólann fyrir tæpum
fimm árum, mun á næstu dögum gangast
undir lengingaraðgerð á fæti á sjúkrahúsi í
Lundi í Svíþjóð.
Annar fótur Rökkva brotnaði illa í slysinu
og mjöðmin skaddaðist mikið, þannig að hann
hefur átt erfitt með gang og hefur það farið
versnandi í seinni tíö. Slasaði fóturinn, sem er
4,5 sentimetrum styttri í dag, veróur lengdur á
sjúkrahúsinu í Lundi og er reiknað með að
Rökkvi þurfi aö dvelja í tvo mánuði í Lundi.
Sjúkrahúsið í Lundi er sérhæft í aðgerðum
sem þessum og framkvæmdar eru margar slík-
ar árlega. Fóturinn er lengdur með rússnesku
aðferðinni svokölluðu. Smíðuð er járngrind
með snittuðum teinum utan á fótinn. Beinið er
tekið í sundur og síðan eru teinarnir skrúfaðir
til þannig að daglega er teygt á fætinum og lát-
ið gróa í bilið sem myndast milli beinendanna.
Strekkt er um 1 millimetra á dag, og á þannig
fullri lengd á fætinum að vera náð á sex vikum.
Rökkvi gengst einnig undir tvær aðrar aðgerð-
ir, hásinin verður lengd og fóturinn réttur af, en
Rökkvi Sigurlaugsson.
Rökkvi hefur gengið einvörðungu á utanverð-
um fætinum síðustu misserin. Báðir foreldrar
Rökkva dvelja hjá honum meðan á aógerðun-
um stendur.
Byggingarfyrirtækið Friðrik Jónsson sf:
Sækir um lóð undir hótel
Um þessar mundir gengst sveit-
arstjórn I>orkeIshólshrepps í
Vestur-Húnavatnssýslu í sam-
vinnu við Heilbrigðiseftirlit
Norðurlands vestra fyrir könn-
un á ástandi frárennslismála í
hreppnum. Þorkelshólshrepp-
ur er fyrst sveitarfélaga í
áttungnum til að kanna ástand
frárennslismála en Ijóst er að
mikil áhersla verður lögð á
þennan málaflokk á næstu
árum.
Dreifibréf hefur verið sent á
alla bæi í hreppnunt þar sem ósk-
að er cftir ákvcðnum upplýsing-
um. Ætlunin er síðan að nota upp-
lýsingamar til að finna út hentuga
stærð af rotþróm fyrir bæina og
fcrðaþjónustustaði í hreppnum.
Þá er cinnig hugmyndin að gerð
verði sameiginlcg innkaup á rot-
þróm fyrir alla aðila í hreppnum
og samið verði við verktaka urn
að koma rotþrónum fyrir á full-
nægjandi hátt.
Byggingafyrirtækið Friðrik Jóns-
son sf hcfur sótt um lóð undir
hótel við Artorg á Sauðárkróki.
Forráðamenn fyrirtækisins hafa
skoðaðað nýlegar hótclbygging-
ar og myndað sér hugmyndir
um það hvernig heppilegast sé að
standa að uppbyggingu hótels á
Sauðárkróki. Verið er að útfæra
hugmynd að hótelbyggingu við
Ártorgið sem væntanlega verður
Iögð fram á næstunni með end-
urnýjaðri umsókn til bygginar-
nefndar.
Verið er að útfærða hugmynd
að hótelbyggingu á tveim lóðum
við Ártorgið. Friðrik Jónsson sf
sótti um lóðina númer 6 sem er
næsta lóð við Ábæ og einnig aðra
lóð við Ártorgið.
Þeir hjá Frióriki Jónssyni segja
að ljóst sé að fyrirtækið byggi ekki
hótelið eitt síns liðs, og vonandi
reynist áhugi hjá fleiri aðilum að
koma til samstarfs. Það þurfi að
standa skynsamlega aó undirbún-
ingi framkvæmda og vanda til
þeirra á allan hátt. Vel sé hugsan-
legt að byggja upp hótel og það
þjónusturými sem því fylgir í
áföngum.
Ljóst er að heilsárshótel með
gistiaðstöðu, sem svarar nútíma-
kröfum, hefur skort á Sauðárkróki
í fjölmörg ár. Margir hafa haft á
orði að það sé til skammar fyrir
jafnstórt sveitarfélag og Sauðár-
krók að gestir til bæjarins þurli að
leita í Varmahlíð eftir hótelgist-
ingu.
Umsókn Friðriks Jónssonar er
önnur umsóknin sem berst um lóð
undir hótel á allra síðustu misser-
um. Áningarmenn á Sauðárkróki
sendu inn fyrirspum um lóð undir
hótel við Sauðána fyrir nokkrum
missemm. Ekki hcfur meira frést af
þeirri hugmynd.
Gamli Arnar færir enn björg í bú
Gamli Arnar er aftur farinn að færa Skagstrendingum björg í bú. Skip-
ið er nú komið á íslenska skipaskrá að nýju og heitir Arnar II. I>að kom
til Skagastrandar í fyrrakvöld með 260 kör af saltfiski, tæplega 100 tonn.
Atvinnulausir á Skagaströnd eru nú komnir í vinnu við saltfiskinn og
cinnig þeir skipverjar á Skagstrendingstorgurnum sem eru í fríi.
Lögum um úreldingu fiskiskipa var breytt í vor. ,J>etta var seinagangur í
kerfinu. Mönnum sást yfir það að betra væri að hafa íslensku skipin skráð hér
á landi áfram þó þau hefðu ekki veiðiheimildif‘, sagði Sveinn Ingólfsson hjá
Skagstrendingi. Það er sex vikur síðan Rex, eins og gamli Amar hét áður, var
tckinn af skipaskrá í Limasol á Kýpurog skráðurá ný til sinnargömlu heima-
hafnar. Skagstrendingar vonast nú til að Amar II dugi vel til að færa heim salt-
aðan fisk úr Smugunni, og um leið afii þeirrar veiðreynslu sem væntanlega
kæmi Islendingum til góóa í samningum við Norðmenn.
—ICTeHflttl f»|DI—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMl: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
jm
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata I b 550 Sauðárkrókur Fax: 36J40
Bílaviðgeröir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN