Feykir


Feykir - 05.10.1994, Qupperneq 1

Feykir - 05.10.1994, Qupperneq 1
RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI „Kötturinn" á Bakka sem allt étur Fljótt á litið gæti þessi mynd sýnst vera af munum úr fornri gröf. Svo er þó ekki. Einar Otti dýralæknir tók hana á sláturhúsinu í haust af dóti er kom úr vömb heima- gangs eins af bæ frá aust- anverðum Skagfirði. Svo virðist sem heimalingur þessi hafi verið af ætt kattar bræðr- anna frá Bakka, er sögðu hundinn éta allt. Heimaln- ingurinn hefur greinilega hesthúsað kynstrin öll af gúmmíhönskum, þéttilistum og plasti utan af rúllu- böggum, svo eitthvað sé nefnt. Sveitarstjórnir á Hvammstanga og Skagaströnd: Afþakka húsaleigubætur Hreppsnefhdir Höfðahrepps og Hvammstangahrepps hafa samþykkt að greiða ekki húsa- leigubætur á næsta ári. Jafn- framt samþykktu sveitar- stjórnirnar áskorun til stjórn- valda um að enduskoða Iögin um húsaleigubætur. Hrepps- nefnd Hofshrepps frestaði af- greiðslu málsins og hefúr nú tæpan mánuð til að ákveða sig, en ráðuneytið lengdi frest sveit- arstjórna til 1. nóvember um að taka afstöðu til húsaleigubót- anna. Margir aðilar töldu að frestur sá sem gefinn var hafi verið allt of skammur. Lögin um húsaleigubætur eru ný af nálinni og húsaleigubætum- ar ciga ekkert skylt við leigustyrki sem kennarar og ýmsir opinberir starfsmenn liafa fengið greidda frá sveitarfélögum á undanföm- um ámm, styrki sem gjaman cm kallaðir staðaruppbætur. Rcglugerð um húsaleigustyrki var gefin út nýlega. Helstu atriði hcnnar em þau að bætumar em að hámarki 21 þúsund á mánuði og verða aldrei hærri en 50% leigu- upphæðar. Bætumar miðast við tekjur og cr gmnnstofn á hverja íbúð 7000 krónur. Að auki gerir reglugerðin ráð fyrir að grcitt verði 4500 krónur fyrir 1. bam, 3500 fyrir 2. og 3000 krónur fyrir 3. Sveit- arsjóðum er gert að fjármagna þessar styrkveitingar og sjá urn útrcikning bótanna. Ríkissjóður end- urgreiðirsíðan 60% bótaupphæö- arinnar á fjögurra mánaóa fresti. Búast má við að endurskoðun l'ari fram á lögunum, þar sem samþykktir þcss efnis hafa borist frá fjölda sveitastjóma um allt land. Rólegt hjá lögreglu Rólegt var hjá lögreglunni á Sauðárkróki um helgina þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í stóð- rcttum og fjölmenni á dansleikj- um. Maður var fluttur á sjúkra- hús eflir að hafa misstigið sig í rcttunum, einn tæplega þúsund ballgesta i Miðgarði var laminn og bílvelta átti sér stað í Vall- hólmi aðfaranótt sunnudags. Engin slys urðu á fólki í bílvelt- unni en bíllinn er mikið skemmdur. Rólegheitin komu sér vel fyrir lögregluna sem sinnti sameiginlegu umferóarátaki lögreglunnar á Noró- urlandi. Við Tröllaskagahringinn voru 43 ökumenn kærðir. Astæður kæranna voru ýmsar, s.s. hraða- akstur, vanræksla á notkun örygg- isbelta, biluð Ijós og vanræksla á aðalskoðun og endurskoðun. „Þessi venjulegu aðfinnsluatriói", sagði Bjöm yfirlögregluþjónn. Framkvæmdastjóri Skagfirðings: „Erum viðbúnir ef hentugt skip býðst" Einar Svansson framkvæmda- stjóri Fiskiðjunnar/Skagfirð- ings segir að allsendis sé óá- kveðið hvenær ráðist verði í kaup á nýlegu skipi til endur- nýjunar skipakosts fyrirtækis- ins. „Við höfúm fylgast með skipamarkaðnum í rnörg ár og það er svo sem aldrei að vita hvenær við dettum niður á dæmi sem okkur sýnist að verði hagstætt fyrir okkar rekstur“, sagði Einar. Forráðamenn Fiskiðjunnar/ Skagfirðings voru á dögunum í Færeyjum að skoða frystiskip. Einar segir að þeir séu búnir aó skoða mörg skip á síðustu miss- erum. „I okkar augum er það ckkert fréttnæmt að skoóa skip. Þetta höfum við gert undanfarin ár og við cruni að sjálfsögðu ekki að gera þetta aó gamni okkar. Við höfum kerfisbundið fylgst með skipamarkaðnum í nokkur ár, og crum viðbúnir því ef okkur býðst til kaups skip sem hentar okkar dæmi í útgerðinni og vinnslunni. Þaö getur tekið nokkum tíma fýrir okkur að meta svoleiðis hluti“, sagði Einar og kvað allsendis ómögulegt að segja til um hvort af kaupum á færeyska skipinu yrði eða ekki. Aðspurður sagói Einar að það væri svo sem ekkert rnjög að- kallandi að endumýja eitthvert skipa Skagfirðings og ómögulegt væri að segja til um hvert þeirra yrði fyrst endumýjað. Þetta færi allt saman eftir því hvað í boði væn. I lokin má geta þess að fær- eyski skipamarkaðurinn er ekki eins mikil útsala og margir gera skóna vegna efnahagsástandsins í landinu. Að sögn Einars em ekki mörg skip þar til sölu og einungis eitt skip hefur verið selt hingað til lands á síðustu missemm, ís- fisktogari sem keyptur var til Sandgerðis. Prófkjör hjá framsókn Nefnd sem skipuð var til undir- búnings framboðsmála hjá framsóknarmönnum í kjördæminu hefúr komist að þeirri niðurstöðu að eðlilegast sé að efna til prófkjörs í kjördæminu. Mun tillaga þess efnis verða lögð fram á kjördæmisþingi flokksins seinna í mánuðinum. Stjómir framsóknarfélaganna í kjördæminu vom beðnar um þaó fyrr á árinu að kanna hug félagsmanna á sínu svæöi til þess hvemig bæri að velja frani- bjóðendur á lista. Niðurstaða nefnd- arinnar er byggð á þeim svömm. Talið er líklegt að þing- mcnnimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verði í sömu sætum á listanum áfram, þeim tveim efstu. Baráttan mun væntanlega snúast um næstu sæti. Elín Líndal Vestur-Húnvetningur var í þriðja sætinu síðast og Sverrir Sveinsson ftá Siglufiröi í því fjórða. Reiknað er með að þau muni bæði gefa kost á sér áfram og þá hefúr Magnús Jónsson á Skaga- strönd verið nefndur sem hugs- anlegur kandidat í þriðja sætið. Taldar em nokkrar líkur á að prófkjör verði einnig hjá sjálf- stæóismönnum og alþýóuflokks- mönnum í kjördæminu. Reiknað er með að ekki líði á löngu þar til nánari fréttir berist úr herbúðum þcssara flokka. —ICTch?III — Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMOl: 985-31419 • FAX: 95-36019 bílaverkstæði Æ ! m m. m ^luTWmri Sæmundargala 1 b 550 Sauðárkrókur Fox: 36140 Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæói RÉTTINGAR • SPRAUTUN

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.