Feykir - 09.11.1994, Blaðsíða 5
39/1994 FEYKIR5
Byggingarnefndin sér nú um umferðarmálin
Vegna þeirrar miklu umræðu um um-
ferðarmál sem átt hefur sér stað hér í bæn-
um undanfamar vikur, vill undirritaður
koma á framfæri upplýsingum til bæjarbúa
um stöðu þcssara mála hjá bænum í dag og
hvað sé framundan.
A fundi sínum þann 18. ágúst sl. sam-
þykkti bæjarráð Sauðárkróks að fela bygg-
ingamefhd að taka við verkefnum umferð-
amefhdar þar til annað yrði ákveðið. Það cr
því byggingamefnd Sauðárkróks sem fer
með umferðarmálefnin í dag og er þaó ekki
ócðlilegt, þar sem byggingamefhd er
einnig skipulagsnefnd sem hefur með alla
skipulagsvinnu á vegum bæjarfélagsins að
gera og þar á meðal skipulagningu umferð-
ametsins.
Undanfarin ár og fram að síðustu bæjar-
stjómarkosningum hefur hins vegar verið
starfandi sérstök umferðamefnd á Sauðár-
króki sem hefur séð um að útfæra nánar at-
riói í umferðametinu sem ekki er kveðið á
um í skipulagi, svo sem merkingar og lag-
færingar ýmiskonar.
Um það leyti sem byggingamefhd kom
að þessum málum vora umferðamál á
skólasvæóinu við Sæmundarhlíð komin í
hámæli.
Mikið var og er rætt um þessi mál og
oft meira af tilfinningasemi en rökhyggju.
Við, sem um þessi mál fjöllum, urðum
fljótt varir við mikinn þrýsting víða að um
að gera nú eitthvað í málinu áður en það
yrði um seinan.
Byggingamefnd hafði reyndar einsett
sér að vinna eins faglega að lausn vanda-
málsins, þ.e. umferðinni gegnum skóla-
svæðið, og kostur væri og sinna ekki öðra
en því sem kalla mætti endanlegum lausn-
um. Það gekk þó ekki eftir og hafa undan-
famar vikur að nokkra leyti farið í að skoða
bráðabirgðalausnir og era þær niðurstöóur
til kynningar hér í blaóinu í dag. Þá má
einnig nefha nokkra aðra staöi í bænum
sem hafa verið til umfjöllunar sérstaklega,
svo sem svæðið við Villa Nova, hraða-
hindranir við Hegrabraut o.fl.
Hvað varðar endanlegar lausnir á um-
ferðarvandamálum skólasvæðisins við Sæ-
mundarhlíð, þá er verið að vinna að málinu
í tengslum við endurskoðun aðalskipulags
fyrir Sauðárkrók og stefhir nefndin að því
að ljúka þeirri vinnu fljótlega eftir áramót
þannig að hægt sé að taka tillit til þeirra við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 1995.
En það er ekki nóg að hafa umferðar-
kerfi sem virkar sæmilega. Þeir sem nota
það þurfa líka að vera nokkum veginn í lagi
og hlíta þeim lögum og reglum sem í gildi
era fyrir akandi, hjólandi og gangandi um-
ferð í landinu.
Guðmundur Ragnarsson
byggingarfulltrúi.
Sæmundarhlíð við Sauðá
Bráðabirgðaráðstafanir vegna umferðar haustið 1994
Tillögur skv. umfjöllun Byggingarnefndar Sauðárkróks 17.
október 1994:
1. Girðing á þrjá vegu að Sauðárbrú á akbraut Sæmundarhlíðar. Gert
er ráð fyrir eins metra hárri vírnetsgirðingu á stálstaurum, í þrem
hlutum, alls 45 metra langri.
Tilgangur: Að draga úr gangandi umferð þvert yfir brúna á akbrautinni.
2. Merkt gangbraut yfir akbraut Sæmundarhlíðar rétt neðan við
Sauðárbrú.
Tilgangur: Að beina fyrrgreindri gangandi umferð fólks á gangbraut og neðri
gangbrúna yfir Sauðá.
3. Afmörkun bílastæða við Verknámshús Fjölbrautaskólans að akbraut
í Sæmundarhlíð. Gert er ráð fyrir einu lárréttu borði eða liggjandi
símastaurum, í u.þ.b. 50 sm hæð yfir jörðu. Alls 55 lengdarmetrar.
Gert er ráð fyrir að ekið verði inn á bílastæðin alveg vestast og að þar
megi keyra út af þeim aftur. Önnur útkeyrsla verður neðar.
Tilgangur: Að fyrirbyggja akstur þvert yfir Sæmundarhlíð og að ekið sé í ringulreið
út af bílastæðinu og inn á þau í allri lengd götunnar milli brúar og
Skagfirðingabrautar. Þá að draga úr því að bílar stöðvi til þess að hleyþa út
farþegum við akbrautarkant.
4. Gangbraut yfir akbraut Sæmundarhlíðar ofan við gatnamót á
Skagfirðingabraut gegnt anddyrum á Gagnfræðaskóla og Verknáms-
húsi Fjölbrautaskólans.
Tilgangur: Að beina umferð gangandi fólks á gangbraut. (Langt er á milli
gangbrauta við Sauðárbrú og Skagfirðingabraut.)
Tilkynning um lokun
Sæmundarhlíðar
Vegna framkvæmda viö umferöarmannvirki á skólasvæöi viö
Sæmundarhlíö veróur Sæmundarhlíó lokuó allri umferö frá
Sjúkrahúsafleggjara, frá fimmtudeginum 10. nóvember kl. 8,00 til kl.
15,00 föstudaginn 11. nóvember.