Feykir - 09.11.1994, Qupperneq 6
6FEYKIR 39/1994
Heilir og sælir lesendur góóir. A nýaf-
stöðnu landsþingi hestamanna voru þrír
heiðursmenn sæmdir gullmerki samtak-
anna. Einn af þeim var Jón Sigurósson í
Skollagróf. Af þessu tilefni mun hann
hafa ort eftirfarandi vísu.
Hrossastússið helst ég kaus,
hugann síst mun baga.
Ekki vil ég ístaðslaus
eiga marga daga.
í umræðum um mótamál lét Guðlaug
Hermannsdóttir fulltrúi Léttis á Akureyri,
orð falla í þá vem, að vel færi á með
Skagfirðingum og Eyfirðingum. Að máli
hennar loknu komst Kári Amórsson úr
Kópavogi aó eftirfarandi niðurstöðu.
Allt hefég borið undir þá
elsku vini í Skagafirði,
þeir hafa svalað minni þrá
og það tel ég vera nokkurs virði.
Nokkra athygli hefur vakið hjá lands-
ins bömum frásögn DV nú í haust af dijúg-
mikilli notkun á oddvitasíma í ónefndu
sveitarfélagi hér í Austur - Hún. Dagbjart-
ur Dagbjartsson á Refsstöðum í Borgar-
firði spurði þessi tíðindi eins og fleiri og
varð það tilefni eftirfarandi vísu.
Þó kvenmannsleysið kvelji mig
og kreppi að mínum ástar bríma.
Þáfinnst mér aumt að eðla sig
yfir hafí gegnum síma.
Þegar ffásagmr af siðabot krata krydd-
uóu fréttir af landsmálum komst eftirfar-
andi vísa á kreik.
Ípólitík víða má spillingu sjá
sem veldur hér skaða og tjóni
en kennslu í siðfrœði kannski má fá
hjá krötunum Arna og Jóni.
Þá skal fljóta hér með limra sem til-
einkuð er heilbrigðisráðherra. Höfundur
er Hallmundur Kristinsson.
Góður er Guðmundur Arni
þótt gamanið stundum kárni.
Hann veit að í viðbót
þarfveglega siðbót
er mikið þótt manninum sámi.
Áfram skal haldið með limrur sem ort-
ar vom þegar landsmönnum bámst þau
tíðindi að jarðskjálfti herjaði á Vestfiró-
inga. Höfundur er Kristján Stefánsson ffá
Gilhaga.
Á íslandi er allskonar óró,
en af því við seint fáum þó nó.
Einn útkjálki þar
að útrýmast var.
Þá tók til að titra á Patró.
Og bœði í heittelsku og hatri,
menn hentu sér niður í snatri.
Eg heffyrir víst,
að happ afþví hlýst,
því þjóðinni fjölgar mest flatri.
Eflandsskjálftinn leggur menn flata,
það léttir á þrenginum krata.
Er ajtur sól rís,
þá er uppskeran vís,
og brosið mun breikka á Hvata.
Þetta eru aðgerðir örar og skjótar,
það eflaust þjóðlífið mótar.
En ég alls ekki skil
hvort aðgerð sé til,
svo að atkvœðin eldist fljótar.
Karl Kristjánsson mun vera höfúndur
að þessari hringhendu sem gerð er á
haustdögum.
Svalinn nueðir sviðinn völl,
sólarglœðum hallar.
Sumarklceðin eru öll
ofin þrœði mjallar.
Guðmundur Þ. Sigurgeirsson yrkir
svo.
Skvaldur spara mun ég mér
milli skara og vona.
Lœt þar bara eins og er
allarfara svona.
Onnur vísa kemur hér effir Guðmund.
Gengið hefég margs á mis,
má þó heita ríkur.
Áhyggjurnar eins og fis
af mér gleðin strýkur.
Þegar Guðmundi verður hugsað til
vistaskiptanna við brottför að jarðlífi
loknu verður til þessi vísa.
Síðast þegar set í naust
saddur lífs affári.
Heilagur drottinn hispurslaust
hýrgaðu mig á tári.
Nú að lokinni sláturtíð em trúlega
margir búnir að birgja sig upp með vetr-
arforða. Trúlega gæti næsta vísa átt við
marga sem á þessum haustdögum hafa
bmgðið sér í verslunarferð, og átt tal við
kaupmanninn á hominu. Höfundur er Jón
Eiríksson í Fagranesi.
Hér mun vera fyrsti flokkur,
fremur lídll þó.
Heldurðu ekki að hálfur skrokkur
handa mér sé nóg.
Þá er að lokum bón mín til ykkar les-
endur góðir að drífa nú í að senda þættin-
um vísumar scm þið hafið lengi ætlað að
senda en af einhverjum ástæðum ekki
komið í verk. Að svo mæltu verður það
Jón í Fagranesi sem leggur okkur til loka-
vísuna.
Aldreifeigur forðar sér
þó flýi afgömlum vana.
Lífsbaráttan örðug er,
enginn vinnur hana.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
s: 95-27154.
Sætur sigur á Þórsurum
Tindastólsmenn vonandi komnir á skrið að nýju
Tindastóll vann sætan sigur á
Þórsurum í nágrannaslagnum
á Króknum sl. fimmtudags-
kvöld. Tindastólsmenn gjör-
samlega keyrðu yfir Þórsarana
í fyrri hálfleiknum og sýndu þá
það besta sem sést hefur í Sík-
inu í vetur. Tindastólsstrákarn-
ir komust þá mest í 25 stiga mun
og voru 20 stigum yfir í hálfleik,
52:32. Bandaríkjamaðurinn
John Torrey fór á kostum í liði
Tindastóls, skoraði 24 stig í
fyrri hálfleiknum, þar af fóru
fimm þriggja stiga skot ofan í.
Þórsarar komu síðan mjög
steikir til seinni hálfleiks og byrj-
uðu betur, náðu fljótlega munin-
um niður í 15 stig, en Tindastóli
tókst að halda leiknum í jafhvægi
um tíma. Um miðjan hálfleikinn
náðu síðan Þórsamir yfirtökunum
og vom nær því búnir að jafha
þegar John Torrey skoraði tvær
þriggja stiga körfúr í röð og á eft-
ir fylgdi kafli sem Tindastóli tókst
að koma muninum í 19 stig. En
þá tóku Þórsarar við sér að nýju
og þegar skammt var til leikloka
munaði einungis tveim stigum á
liðunum. Páll Kolbeinsson kom
mjög sterkur út úr lokakaflanum
og brást varla skot af vítalínunni.
Spennan á síðustu mínútunum var
ótrúleg og það vom Tindastóls-
menn sem höfðu ástæðu til að
fagna í lokin.
John Torrey var besti maður
Tindastóls í leiknum og þessi
skemmtilegi leikmaður virðist
njóta sín mun betur fyrir utan en
undir körfunni í sókninni. Hinrik
Gunnarsson var mjög drjúgur og
reynsla Páls Kolbeinssonar kom
að góðum notum undir lokin.
Hjá Þór var Kristinn bestur í
heildina, Konráð var mjög sterk-
ur í seinni hálfleiknum og fór þá
fyrir sínum mönnum.
Stig Tindastóls: John Torrey
39, Hinrik G. 19, Páll Kolbeinsson
15, Amar K. 9, Omar S. 5, Sigur-
vin P. 4 og Halldór H. 2. Flest stig
Þórs skomðu Kristinn F. 36, S.
Anderson 19 og Konráð Ó. 13 stig.
Gangur leiksins: 9:2, 21:4,
34:14, 41:18, 48:23 (52:32),
63:50,71:52,71:67,77:69,81:79,
87:84 (93:87). Fráköst: Tindastóll
32 og Þór 26.
Stutt hlé var gert á DHL-deild-
inni vegna æfinga landsliðsins.
Næsti leikur Tindastóls verður á
sunnudaginn kemur gegn KR-
ingum syðra.
Tvö töp kvennanna
Kvennalið Tindastóls átti við
ramman reip að draga í Ieikj-
unum við Keflvíkinga, er Suð-
urnesjastúlkurnar komu í
heimsókn á Krókinn um helg-
ina. Tindastóll tapaði báðum
leikjunum með nokkrum
mun, 60:79 á laugardag og
54:79 á sunnudag.
Keflvíkingar viróast eins og
undanfarin ár vera með besta liö-
ið í deildinni og vandséð aö eitt-
hvert annað lið komi til með að
steypa þeim af stalli í venir. Það
var sama þótt Tindastólsstúlk-
umar næðu að klóra í bakkann
og minnka fomstu þeirra kefl-
vísku, lítið mál var fyrir íslands-
meistarana að borga fyrir sig og
auka fomstuna að nýju.
Ásta Óskarsdóttir var at-
kvæðamest Tindastólsstúlkna í
fyrri leiknum, skoraði 26 stig,
Inga Dóra Magnúsdóttir gerði
15 og Kristín Magnúsdóttir 9
stig. í seinni leiknum vom Inga
Dóra og Kristín bestar. Inga
Dóra skoraöi 19 stig og Kristín
18. Tindastóll hefur nú sex stig í
deildinni eftir sjö leiki.
Jasstónleikar í Ásbyrgi
og Kaffi Krók
Gunnar Gunnarsson píanisti,
Tómas R. Einarsson bassa-
leikari, Matthías M.D. Hem-
stock trommari og Ragnheiður
Ólafsdóttir söngkona halda
tónleika í Ásbyrgi í Miðfirði,
annað kvöld, fimmtudags-
kvöldið 10. nóvember. Úr Mið-
firðinum liggur leiðin á Sauð-
árkrók, þar verða tónleikar á
veitingahúsinu KaflS Krók föstu-
daginn 11. nóvember.
Á tónleikunum verða fluttir
gamlir og góðrir„standard;u''
ásamt íslenskum og norrænum
lögum í jassbúningi. Tónleikamir
í Asbyrgi hefjast kl. 21,00 og á
KaffiKrókkl. 22,00.
Þremenningamir hófu sam-
starf fyrir skömmu, en hafa áður
flutt jasstónlist víða um land í
öóm samhengi, nú síðast á
Rúrek, jasshátíðinni í Reykjavík.
Ragnheiður Ólafsdóttir söng-
kona er úr Borgamesi, stjómaði
áður sönghópnum Sólarmegin á
Akranesi, en býr nú á Akureyri.
Tómas er uppmnninn í Döl-
unum, býr í Reykjavík og er
löngu landsþekktur fyrir tón-
listarflutning og lagasmíóar.
Gunnar er Akureyringur og hefúr
starfað þar ötullega að jasslífi, en
er nú fluttur suóur.
Fjölgað í fyrstu deild í
Bikarkeppni FRÍ
Á ársþingi FRI á dögunum var
ákveðið að fjölga liðum í
Bikarkeppni FRÍ úr sex í átta.
Þetta þýðir að bæði USAH og
UMSS verða með lið í fyrstu
deildinni næsta ár.
Skagfirðingar urðu í fimmta
sæti í Bikarkeppni FRÍ síðasta
sumar og áttu því að falla ásamt
ÍR-ingum í 2. deild. Raunar hafa
Skagfirðingar og Húnvetningar
verið að vinna sig upp í 1. deild
og falla niður í 2. deild á víxl
undanfarin ár. Þetta munstur ætti
kannski að breytast við fjölgun
liða í deildinni, nái lið Skag-
firðinga og Húnvetninga að
halda sínum styrkleika og jafhvel
bæta við.