Tímarit UNIFEM - 01.01.2008, Blaðsíða 24
24
Í fyrstu viku marsmánaðar árið 2008 var
UNIFEM áberandi í íslensku þjóðlífi. Vikan
hafði verið í undirbúningi í marga mánuði.
Appelsínugul fiðrildi sáust víða um höf-
uðborgina og í fjölmiðlum og Íslendingar
voru hvattir til að hafa fiðrildaáhrif. Upp-
haflega hugmyndin um að tengja fiðrilda-
áhrif við fjáröflun og vitundarvakningu
UNIFEM hafði kviknað löngu áður, hjá
Hrund Gunnsteinsdóttur, þáverandi stjórn-
arkonu í UNIFEM. Markmiðið var að höfða
til Íslendinga um að hafa fiðrildaáhrif og
safna fé til styrktar konum sem búa langt í
burtu við svo allt önnur skilyrði en við þekkj-
um úr eigin lífi.
Draumi líkast
Þannig átti að vekja athygli á stöðu kvenna í
þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum.
Hugmyndin var hvort tveggja í senn; að
vekja fólk til vitundar um stöðu kvenna og
þá ekki síst um ofbeldi gegn konum og að
afla fjár til verkefna til stuðnings konum í
Suður-Súdan, Líberíu og Kongó. Hugmynd
varð að veruleika og upplifunin var draumi
líkust. 92 milljónir króna söfnuðust á þessari
einu Fiðrildaviku. Framlög komu úr öllum
áttum en almenningi á Íslandi er ekki síst
þakkaður þessi frábæri árangur í Fiðrilda-
átakinu.
Stórhuga stjórn með
háleit markmið
Stjórn UNIFEM á Íslandi hefur í gegnum tíð-
ina staðið fyrir margs konar fjáröflun og
vitundarvakningu með góðum árangri. Árið
2007 ákvað þáverandi stjórn UNIFEM að ýta
úr vör langstærsta átaki sem samtökin höfðu
staðið fyrir til þessa. Langur og strangur
undirbúningstími hófst og margar konur
voru kallaðar til verka. Ekki stóð á stuðningi
velunnara UNIFEM í undirbúningnum. Mark-
ið var sett hátt. Ráðin var verkefnastýra, Eva
Hrönn Steindórsdóttir, en að öðru leyti var
allur undirbúningur að langmestu leyti unn-
inn í sjálfboðaliðastarfi stjórnarkvenna og
annarra sem kallaðar voru til leiks.
Gefandi og skemmtilegt
Fiðrildavikunni var hrundið af stað með
blaðamannafundi í húsnæði UNIFEM við
Laugaveg og þar með hófst sérlega gef-
andi, skemmtileg og árangursrík vika. Ýmsir
viðburðir fylgdu í kjölfarið. Má þar nefna
Fiðrildagöngu sem kvennahópurinn BAS
skipulagði í samstarfi við UNIFEM á Íslandi.
Gangan vakti mikla athygli og fóru þjóð-
þekktir einstaklingar fyrir göngufólki með
kyndla niður Laugaveg frá húsakynnum
UNIFEM. Hinn appelsínuguli litur fiðrild-
anna var ekki langt undan í formi blaðra
sem svifu yfir göngufólki. Göngunni lauk
með uppákomu á Austurvelli þar sem m.a.
heilbrigðisráðherra hélt hvatningarræðu
og tónlistarfólk gladdi gesti og gangandi.
Göngunni voru gerð góð skil í fjölmiðlum.
Brjóst boðin upp
Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur og
UNIFEM héldu uppboð á handgerðum
brjóstum eftir íslenskar konur undir yfir-
skriftinni ,,Gefðu brjóst – gefðu líf“. Brjóst-
in höfðu verið gerð fyrir sýningu Vatna-
dansmeyjafélagsins nokkru áður og höfðu
enn ekki fundið endanlegan tilgang, en nú
var þeim ætlað að gefa konum á fjarlægum
slóðum betra líf. Það var svo gert með
lúðrablæstri og heilli leiksýningu vatna-
dansmeyjanna sjálfra. Gjörningurinn vakti
feiknamikla athygli og stór upphæð safn-
aðist á þessari skrautlegu og skemmtilegu
uppákomu sem haldin var í versluninni Salt-
félaginu Grandagarði, sem bauð gestum
upp á veitingar í brjóstaveislunni.
Fjölmiðlar tóku virkan þátt í Fiðrildaviku
UNIFEM og bar þar hæst umfjöllun Kastljóss
með sýningu á röð örmynda sem gerðar
höfðu verið sérstaklega fyrir verkefnið af
þeim Hrund Gunnsteinsdóttur hugmynda-
Fiðrildaátakið
Sannkölluð
fiðrildaáhrif
íslendingar gefa tugi milljóna til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi
EFtir hönnu Björgu VilhjálMsdóttur
Fiðrildaáhrif vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft áhrif
á veðurkerfi hinum megin á hnettinum. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi hugsaði stórt og stefndi hátt.
Draumurinn var að Íslendingar hefðu fiðrildaáhrif með samtakamætti sínum. Ætlunin var að hafa
fiðrildaáhrif héðan frá Íslandi því eitthvað lítið, líkt og vængjasláttur fiðrildanna, getur haft gríð-
arleg áhrif annars staðar í heiminum.