Feykir - 24.09.1997, Qupperneq 6
6 FEYKIR 32/1997
Hagyrðingaþáttur 237
Heilir og sælir lesendur góðir. Það
er Jón Gissurarson í Víðimýrarseli sem
yrkir svo við lestur ljóðabókarinnar
Andvökur eftir Stephan G. Stephans-
son.
Fögrum blundi fóma hér,
fátt um það ég hirði.
Andvökumar eru mér
einnig mikils virði.
Nokkrum dögum síðar varð til önn-
ur vísa hjá Jóni.
Ljóðafleyi legg til hlés,
Ijúfur frá því segi.
Andvökumar oft þó les
enn á hverjum degi.
Kristján Ámason á Skálá er höfund-
ur að næstu vísum sem hann kallar
sumarkvöld í Húnaþingi.
Hafog landið geislargljá,
gáttuð standa tröllin,
er í bandi síga sjá
sól í Strandafjöllin.
Saman loða land og mar,
lœtur roði kvöldsólar,
sveipa goðin gömlu þar
gullnum voðum Þingeyrar.
Júlíus í Hítamesi mun hafa ort
næstu vísu við jarðarför.
Þegar mínirfærast fjœr
frœndur, grannar, vinir.
Meðan ég erferðafœr
fylgi ég eins og hinir.
Vetrarlegt hefur verið suma daga nú
að undanfömu og vel við hæfi að rifja
upp eftirfarandi vísu Þorbergs Þor-
steinssonar.
Hanga él um helkalt frón,
hugann kvelur óttinn.
Hjá mérfelurfolnað blóm
fyrsta hélunóttin.
Þá mun þessi ágæta vísa einnig vera
eftir Þorberg.
Dýrara en keypti síst ég sel,
sumt því litlu nemur.
Mig langar oft að lifa vel
og lifa þá heldur skemur.
Önnur vísa kemur hér í svipuðum
dúr og mun höfundur hennar vera
Bjöm Konráðsson á Fáskrúðsbakka.
Eg heftapað auðnu tíð,
aðrir hrapafrœgri.
Móti gapir mœðan stríð
mínu skapadœgri.
Eyjólfur Jóhannsson í Hvammi yrk-
ir svo.
Bölsýni efbœgt er frá
batnar lífsins vegur.
Gott er að lifa góðum hjá
glaður og skemmtilegur.
Önnur vísa kemur hér eftir Eyjólf
og mun hún vera ort á efh ámm hans.
Skerðast tekur skemmtan fom,
skiptir nú um bragi.
Eg er kominn upp í hom
út úr mannfélagi.
Næst kemur vísa eftir Ásgrím Krist-
insson frá Ásbrekku.
Grípa mein hin grœnu tré,
grefst hinn beini viður.
Brákuð grein þó blaðrík sé
brotnar seinast niður.
Á efri ámm yrkir Ásgrímur svo.
Er afglöpum æskunnar
ekki nokkurfriður,
afturgöngur ævinnar
enginn kveður niður.
Mörgum verður á að byggja upp
full glæstar vonarhallir. Það er Ágúst
Sigfússon sem yrkir svo.
Svo má kalla svört var nótt,
sorgin valla dvínar.
Við þaðfalla vildufljótt
vonarhallir mínar.
Og áfram heldur Ágúst.
Viskufjóla varð mín smá,
vill mig ólán teyma.
Menntaskóla síst ég sá
sat við bólið heima.
Ein hringhenda kemur hér enn eftir
þennan snjalla hagyrðing og er hann
þar að fjalla um ástartaflið.
Tafl það leika tíðum knátt,
tímans reika gæði.
Gulls hjá eikum ástin þrátt
er á veikum þræði.
Gott er þá að heyra eina eftir Bjama
Jónsson ffá Gröf.
Endalaust ég alltaffinn
annarra sálir grunnar.
Eg er sjálfur manni minn
miðja tilverunnar.
Þá langar mig að vita hvort lesend-
ur geta sagt mér hver yrkir svo.
Burt frá heimsins harki og skríl
héðan mænir sálin þreytt.
Fái hún ekki far með bíl
fer hún sjálfsagt ekki neitt.
Bið ég lesendur enn að hugsa til
þáttarins með efni og leita svo til
Ágústar Vigfússonar með lokavísuna.
Gæfa er að hafa létta lund,
Ijúfur eðlisþáttur.
Geta að lokum guðs áfund
gengið alveg sáttur.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Skokk- og gönguhópurinn á Sauðárkróki
Sumarið kvatt með hlaupi úr Varmahlíð
Skokk- og gönguhópurinn að Varmahlíðarhlaupinu loknu.
Skokk- og gönguhópurinn á
Sauðárkróki endaði sumarið
si. laugardag, en þeir áhuga-
sömustu ætla þó að koma
saman á laugardagsmorgnum
í vetur til að skokka og ganga
saman. Það er að verða árvisst
að skokkarar á Króknum endi
sumarið á því að hlaupa frá
Varmahlíð til Sauðárkróks,
um 25 kílómetra. Að vísu eru
það ekki nema þeir „ofvirk-
ustu” sem hlaupa alla þessa
leið og hinir velja sér
hlaupalengd við sitt hæfi.
Að þessu sinni hlupu sex úr
Varmahlíð, svipaður fjöldi fór frá
Glaumbæ, en þaðan em 17 kíló-
metrar og aðrir héldu svo frá
Reynistað og lögðu að baki 12
kílómetra á Krókinn. Veður og
aðstæður vom ákjósanlegar til
skokks og göngu og hópurinn
mjög vel á sig kominn þegar
hann mætú af Sauðárkróksbraut-
inni og endaði eins og ævinlega á
því að slaka vel á í heitu pottun-
um í sundlauginni.
Þetta er annað sumarið sem
skokk- og gönguhópurinn er
starfræktur. Ámi Stefánsson
íþróttakennari er aðalleiðbein-
andi hópsins en það var Óskar
Jónsson læknir sem kom að tali
við Ama og reifaði þá hugmynd
að mynda skokk- og gönguhóp.
Þátttakendum í skokk- og
gönguhópnum fer fjölgandi. Ríf-
lega 50 manns byijaði í hópnum
á liðnu vori en eins og við var að
búast heltust nokkrir úr lestinni
þegar leið á sumarið. Þeir sem
ekkert hafa hreyft sig lengi geng-
ur sumum hverjum erfiðlega að
sætta sig við að það tekur sinn
tíma og kostar þolinmæði að ná
sér vel af stað. Mörgum reyndist
síðan erfitt að byija aftur eftir
sumarffíið.
En samt sem áður má fastlega
gera ráð fyrir því að enn fleiri
bætist í hópinn næsta vor. Þeir
em margir í skokk- og göngu-
hópnum sem hafa bætt sinn per-
sónulega árangur í sumar og em
mjög ánægðir. Slíkt smitar alltaf
eitthvað út ffá sér til vina og
kunningja, enda er það ekki bara
hreyfingin og hollustan sem fólk
fær út úr því að ganga og skokka
saman. Það er líka félagsskapur-
inn.
Revkiavíkurmótið í
körfubolta
Tindastóll
ogKR
leika til
úrslita
Tindastóll vann auðveldan
sigur á Val í síðasta leik sínum
í undankeppni Reykjavíkur-
mótsins í körfubolta og komst
í úrslitakeppnina þrátt fyrir að
leikur liðins við KR í Varma-
hlíð á dögunum væri dæmdur
ógildur og úrsliún ómerk fyr-
ir bæði lið. Mótanefnd taldi
að hvorki Tindastólsmenn né
KR-ingar hefðu haft heimild
til að færa leikinn norður.
Tindastóll lék í undanúr-
slitunum gegn ÍR í fyrrakvöld
og sigraði ömgglega 81:61,
eftir að hafa mest náð 27 súga
forskoti í leiknum. Páll Kol-
beinsson þjálfari segir liðið
hafa leikið mjög vel. Að öðr-
um ólöstuðum hafi þeir Amar
Kárason og Hinrik Gunnars-
son leikið best. Tindastóll
leikur til úrslita í Reykjavíkur-
mótinu gegn KR í kvöld.