Feykir - 03.11.1999, Síða 2
2 FEYKIR 37/1999
Sainfylkiiigiii stofnar
kjördæmisfélag
Fjölmennt var á stofnfundi
kjördæmisfélags Samfylking-
arinnar á Norðurlandi vestra
sem haldinn var á Hótel
Varmahlíð nýlega. Kjörin var 5
manna stjóm og er formaður
Anna Kristín Gunnarsdóttir
Skagafirði. Aðrir stjómarmenn
em: Signý Jóhannesdóttir
Siglufinði, Jón Karlsson Skaga-
firði, Valdimar Guðmannsson
Blönduósi og Pétur Hermanns-
son Laugarbakka.
I tilkynningu frá félaginu
segir að fjölmargir fundarmenn
hafi tekið til máls, hvatt til
kröftugrar báráttu á komandi
vetri og lýst ánægju með mál-
efnalegt og öflugt starf þing-
flokks Samfylkingarinnar.
í sumar hefur verið unnið að byggingu 900 fermetra reiðhallar á Blönduósi og eru fram-
kvæmdir langt komnar. Það er Ami Þorgilsson, Vestfirðingur sem flutti á Blönduós fyrir
nokkrum árum, sem stendur fyrir þessum framkvæmdum og fjármagnar þær, en áætlað er
aðkostnaður verði ekki undir 20 milljónum króna. Ami hefur gert samning við hestamenn og
Blönduósbæ til sjö ára um afnot þeirra af reiðhöllinni og hafa hestamenn unnið talsvert í
sjálfboðavinnu við bygginguna. Er reiknað með að tilkoma þessarar aðstöðu hafi mikil og góð
áhrif á hestamennskuna á þessu svæði á komandi árum. Myndina tók Sigurður Kr. Jónsson
skömmu áður en smiðir og hestamenn á Blönduósi mættu með tæki sín og tól og ruddu
klæðningunni á grind hússins.
Veðurklúbbsmenn á Dalbæ á Dalvík
í heildina nokkuð bjartsýnir
Veðurspámenn á Dalbæ á
Dalvík eru í heildina nokkuð
bjartsýnir varðandi veðráttuna í
nóvember, en samt er ekki sama
bjartsýni ríkjandi þar á bæ og í
október. Flestir telja að nóvem-
ber verði svipaður, heldur þó
kaldari.
„Veðrið verður svipað og und-
anfarið fram að 8. nóv., en þá
verða breytingar. I mánuðinum
fáum við einn góðan og hlýjan
fí
Skagafjörður
Utboð
Óskað er eftir tilboðum í jarðvegsskipti og lagnir
á íbúðarsvæði alraðra að Sauðá á Sauðárkróki.
Helstu magntölur eru:
Jarðvegsskipti:
Lagnir:
Uppúrtekt 4900 m '
Fylling 2400 m3
0 150 300 m
0 200 600 m
0 250 370 m
0 300 180 m
0 350 150 m
Verkinu skal lokið eigi síðar en 28. apríl 2000.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Skagaijarðar við Faxatorg. Tilboð verða opnuðá
sama stað 12. nóv. nk. kl. 11,00.
Umhverfis- og tækninefnd Skagafjarðar.
kafla jafnvel svo um verði talað,
en að sama skapi fáum við fyrsta
vetrarhvellinn, ekki þó svo mik-
inn að hann leggist að, en samt
þannig að við fáum að vita af því,
gæti orðið þann 23. eða rétt á eft-
ir.
Mánuðurinn verður í heild
kaldari en okt. og meira hvítt
yfir en ekki þannig að snjó festi
neitt að ráði. Einn klúbbmeðlim
dreymdi að það kæmi til sín
kona á grænum slopp með hvít-
um doppum og eigum við ekki
að segja að þessi draumur segi
allt um veðrið í nóvember”, seg-
ir í spá Veðurklúbbsins á Dalbæ
á Dalvík.
Kiördæmisþíng framsóknar á Siglufirði
Fomiaðiirinn kom ekki
Þingfulltrúar á kjördæmis-
þingi Framsóknarflokksins á
Siglufirði urðu iyrir sárum
vonbrigðum með að formaðui'
llokksins_ og utanríkisráðherra
Halldór Asgrímsson komst ekki
á þingið. Hann þuifti að snúa frá
þegar flugvél hans gat ekki lent á
Siglufiiði.
Ráðherrann mun hafa verö
bundinn við fundarstörf syðra á
laugardagsmorgun og flaug svo
norður um miðjan daginn.
Þingfulltrúar margirfurðuðu sig á
því hvers vegna ráðherran hafi
ekki strax í upphafi sett stefnuna
á Sauðárkrók og farið þaðan með
bíl á þingið, þar sem mun
tryggari flugsamgöngur eru við
Sauðárkrók en Siglufjörð og
einungis klukkustundar akstur
milli staðanna, það er að segja á
svokölluðum „þingmannahraða”.
Kjördæmamál ýsiss vom til
umræðu á þinginu og mun
breyting á kjördæmaskipan hafa
verið þar talsvert til umræðu, en
Feyki hefur ekki borist ályktanir
þingsins.
Leiðrétting
í grein séra Ólafs Hall-
grímssonar á Mælifelli í
síðasta blaði misritaðist. Þar
átti að standa: „virðist mér vart
benda til merkjanlegs aukins
stuðnings við menninguna hér
í héraðinu".
„Allir fá þá eitthvað fallegt“
Handverk & Hönnun vill minna á að skilafrestur á
umsóknum vegna þátttöku í jólasýningu Handverks &
Hönnunar, „Allir fá þá eitthvað fallegt" rennur út 6.
nóvember. Sýningin verður að Amtmannsstíg 1, 27.
nóvember - 20. desember. Umsóknum skal skilað til
Handverks & Hönnunar, pósthólf 1556, 121 Reykjavík.
ií
Skagafjörður
Starf hafnarvarðar
Hafnarsjóður Skagafjarðar auglýsir laust til umsóknar starf
hafnarvarðar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Urn
launakjör fer skv. samningum Sveitarfélagsins Skagafjarðar og
Starfsmannafélags Skagafjarðar.
Allar frekari upplýsingar um starfið veitir undirritaður og skal
umsóknum skilað á skrifstofu Skagafjarðar fyrir föstudaginn 12.
nóvember nk.
Sveitarstjóri.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðákróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Asmundsson.
Fréttíiritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hemiannsson. Sigurður ÁgúsLs-
son og Stefán Ámason.
Áskiiftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluveið: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.