Feykir - 03.11.1999, Síða 3
37/1999 FEYKIR 3
„Það átti alltaf að gera
betur og betur..................“
Segir Elínborg Jónsdóttir formaður Sögufélagsins
Húnvetnings um útkomu „Ættir Húnvetninga“
Elínborg í ræðustól í útgáfuteitinu sem haldið var vegna útkomu ritsins.
Elínborg Jónsdóttir á Skagaströnd
hefur síðustu 10 árin gegnt for-
mennsku í Sögufélaginu Húnvetn-
ingi, sem nýlega sendi frá sér stór-
virkið Ættir Húnvetninga, en það er
talið eitt ítarlegasta ættfræðirit sem
komið hefur út á Islandi. Elínborg
segir að það hefði reyndar ekki kom-
ið til að góðu að hún var sett til for-
mennsku í félaginu. Það haíi verB
vegna þess að henni hafi fundist lítið
vera að gerast hjá félaginu og látíð
þá gagnrýni í ljósi. Elínborg, sem
nú er komin fast að áttræðu, var
lengi kennari á Skagaströnd. Um
hálfa öld starfaði hún við Höfða-
skóla, en síðustu 10 árin var starf
hennar að mestu við bókasafn skól-
ans.
„Eg er fædd og uppalin á Másstöð-
um í Vatnsdal. Það var talað um margt
heima og ég las mikið, og kannski hef-
ur það átt þátt í því að ég fékk snemma
áhuga fyrir grúski í sagnfræði og ætt-
ffæði. Pabbi minn, Jón Kristmundur
Jónsson, var ef ég man rétt einn af
stofnendum sögufélagsins Húnvetn-
ings, og þótt hann skrifaði ekki mikið
og ekki birtist mikið eftir hann, hafði
hann áhuga fyrir að halda ýmsu til haga
og það hafði móðir mín, Halldóra
Gestsdóttir, einnig. Hún hafði mikinn
áhuga á ættfræði og þegar bræður
Vetrarkoma
áHólum
Nú stendur yfir myndlistar-
sýning í skólahúsinu á Hólum.
ÞaðerHelgi Jónsson myndlist-
armaður sem sýnir verk sín, en
sýningin ber yfirskriftina „Vetr-
arkoma”. Myndimar em flestar
frá haustinu 1998 og sýna
Hólastað „þegar ásýnd landsins
breyttist mjög snögglegæúr síð-
sumarskrúða í vetrarbúning”
svo vitnað sé í listamanninn.
Helgi er ekki ókunnugur á
Hólum, dóttir hans Guðrún
Helgadóttir er búsett þar ásamt
fjölskyldu sinni. Helgi hefur
málað ífá unga aldri, stundaði
m.a. bréfanám í sænskum
skóla, Hermods, og við Mynd-
listarskólann í Reykjavík. I til-
kynningu frá Hólum segir að
staðarbúar hafi tekið myndum
Helga afar vel, en sýningin er
öllum opin.
hennar frá Ameríku höfðu samband og
vildu fá gleggri vitneskju um ættina,
þá fékk hún mig til að taka saman ætt-
artölu og það var sem sagt byrjunin á
mínu ættfræðigrúski”.
- Og svo eftir að þú tekur við for-
mennsku í Húnvetningi þá er fariðað
huga að útgáfu Ætta Húnvetninga?
,Já fljótlega upp úr því. Ég var byij-
uð að safha að mér sögulegum heimild-
um þegar þetta kom til. Ég vissi af
þessu handriti Magnúsar Bjömssonar
fræðimanns frá Ytra-Hóli og fannst að
það mætti koma fyrir augum fleiri. Ég
talaði líka við afkomendur Magnúsar
og þeir vom mér sammála um að þetta
væri æskilegt, hins vegar mundi þurfa
að fara yfir handritið og jafnvel að bæta
einhverju við. Upphaflega var nú hug-
myndin að þetta yrði ekki líkt því svona
mikið að umfangi og tæki ekki svona
langan tíma. En þegar farið var að
vinna verkið, þá átti alltaf að gera þetta
betra og betra, sem ég vona að hafi tek-
ist.”
Elínborg segir að Guðmundur Sig-
urður Jóhannsson ættfræðingur sem var
fenginn til að auka og bæta þetta rit,
hafi skilað ffábæm verki. En hins veg-
ar hafi þama margir lagt hönd á plóg
og ýmislegt orðið til að seinka útgáfu
verksins.
„Mér finnst það kannski táknrænt
með þetta alltsaman ferðin sem við fór-
um til Sauðárkróks með frumgögnin.
Steingrímur Steinþórsson, sem þá var
með fyrirtæki á Hvammstanga, hafði
aðstoðað okkur með að koma fmmverk-
inu í tölvutækt form. Ég fór norður á
Krók í byrjun árs 1991 með tölvudisk-
linginn. Það var hríðarveður á leiðinni
og þegarvið vomm nýkominn til Sauð-
árkróks skall hann á með nriklu óveðii,
iðulausri stórhríð. Ekki gekk okkur sér-
lega vel að koma gögnunum inn í tölv-
una hjá þeim í Safnahúsinu og þegar
átti að hafa samband við Steingrím á
Hvammstanga, þá var orðið símasam-
bandslaust. Það náðist hins vegar í
mann á Sauðárkróki, Valgeir Kárason,
og hann gat bjargað málum þannig að
við gátum opnað skjalið í tölvunni.
Svo var það annað sem kom til og
gerði þessa ferð minnisstæða. Það varð
úr að ákveðið var að ég svæfi í fræði-
mannsherbergi í Safnahúsinu. Ég var
óvön að vera ein í svona stóm húsi og
fannst það dálítið ónotalegt að eiga í
vændum að sofa þarna ein en lét mig
samt hafa það. Hjalti Pálsson safnvönð-
ur sagði mér að ég skyldi bara láta ljós-
ið lifa. En þegar ég vaknaði svo um
nóttina var allt orðið koldimmt, því þá
var rafmagnið farið af.
Svo var náttúrlega ekkert hægt að
gera vegna rafmagnsleysis næsta dag,
en engu að síður komst fljótlega ágætis
skriður á verkið. Já við sömdum sem
sagt við Guðmund Sigurð Jóhannsson
um að ganga frá þessu verki og það
reyndist mjög heppilg ráðstöfun. Hann
vildi vinna þetta á Sauðárkróki og það
var mikilvægt að hafaaðgang að þeim
góðu heimildum sem þar em. Ég var í
góðu sambandi við Guðmund Sigurð
allan tímann sem hann vann verkiðog
var þannig meira og minna þátttak-
andi í þessu. Guðmundur hafði alltaf af
og til samband við mig og ég hef verö
að reyna að hjálpa til eftir því sem ég
hef getað”, sagði Elínborg Jónsdótúr.
Samvinnubókin og KS-bókin
Tveir góðir kostir ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 5, í 3 ár o^verðtryggð
Ársáyöxfun 10,22%
Samvinnubójdn er með lausri bindingu, nafnvextir 9,0%,
Innlánsdeild