Feykir


Feykir - 03.11.1999, Blaðsíða 5

Feykir - 03.11.1999, Blaðsíða 5
37/1999 FEYKIR 5 „Laðaði til sín bæði menn og dýr og trygglyndið einstakt“ Þaðfínnst kannski einhveij- um að borið sé í bakkafullan lækinn þegar minnst er enn einu sinni á Pálínu Konráðsdótturfrá Skarðsá og athöfn þá er fram fór þar fremra íyrir skemmtu þegar henni var reistur minnisvaiði. En þetta var stórskemmtileg athöfn og meðal þeirra er þama talaði var fyrrunt nágranni Pálínu og reyndar einnig fyrsti ritstjóri Feykis, Baldur Hafstað. Baldur var í sveit á Fjalli, næsta bæ framan við Skarðsá, í nokkur sumur. Nokkur sam- gangur var milli bæjanna og kynntist Baldur því Pálínu nokkuð og líkaði vel við hana, hreifst af ákveðni hennar og skemmtilegum tilsvörum. A þessum tíma var í sveit hjá Pálínu Már nokkur Magnússon, sem seinna varð stórsöngvari og dvaldi í Vínarborg um tíma. Þegar Már síðan hætti í vistinni hjá Pálínu þá vildi hún endilega fá Baldur í sveit til sín og hét honum því að ef hann kæmi þá fengi hann hest,, J>ú færð hann Rauð”, sagði Pálína. „Þetta var náttúrlega mjög freistandi fyrir 11 ára gamlan dreng að fá hest til umráða. Betra gat það varla hugsast, en sjálf- sagt hef ég ekki viljað búa til spenna milli þessara nágranna- heimila”, segir Baldur og hlær við. „Allavega neitaði ég þessu tilboði, sem var þó svo freist- andi.” En þótt heimur Pálína væri að Skarðsá og hún færi ekki mikið út fyrir þann stað, þá barst hróður hennar víðar. Þegar þeir t.d. hittust eitt kvöld í V ínarborg Baldur Hafstað og Már Magn- ússon, ágóðri stund í vínkjaUara í borginni, þá var umræðuefnið Pálína á Skarðsá og kynnin af henni. Svo var einnig þegar Baldur dvaldi í Winnipeg um tíma og hitti þar Harald Bessa- son frá Kýrholti sem þá var doktor við Manitobaháskóla. Þá var Pálína á Skarðsá enn um- ræðuefnið, en Haraldur Bessa- son var sá maður sem fyrstur sléttaði móana neðan við bæinn á Skarðsá og tún jarðarinnar vaið til. Haraldur og félagi hans við jarðýtustörfin, Sigurþór Hjör- leifsson frá Messuholti, hrifust mjög af því hvað Pálína sagði skemmtilega frá, var góður sögumaður. En Baldur Hafstað hafði ekki sagt skilið við Páhnu á Skarðsá og vitjaði hennar alltaf annað slagið. Svo sem eins og þegar hann varorðinn ritstjóri Feykis, en þá tók hann við hana viðtal í blaðið. Baldur segir að um Pálínu megi segja að hún hafi laðað til sín bæði menn og dýr og trygg- lyndi hennar við dýrin sé ein- stakt. Sem dæmi um það nefnir hann að á hveiju vori þegar sil- ungurgekkuppíSkarðsána, þá hafi jafnan lónað fiskur í lænu við bakka árinnar. Pálína hafi veitt þessum fisk eftirtek, hænt hann úl sín með því að gafa hon- um og fiskurinn hafi veriðaðinn svo gæfiir að hún gat oiðið tekið hann upp úr ánni dl að gefa hon- um. Svona gekk þetta í nokkur Stofnfundur Skagafjarðardeildar Búmanna verður haldinn í dagvistardeild Dvalarheimilisins á Sauðárkróki sunnudaginn 14. nóvember kl. 14. Á fundinn mætir m.a. formaður Búmanna Guðrún Jónsdóttir og fulltrúi frá íbúðalánasjóði. Allir hvattir til að koma og kynna sér þá kosti sem Búmenn bjóða. Undirbúningsnefndin. sumur. En síðan gerðist það þeg- ar Pálína var fjarverandi, að veiðimenn vom á feið við ána og þessi væni fiskur kom strax á hjá þeim. Þar með vom dagar hans taldir, en þegar Pálína komst á snoðir um þetta vaið hún reið, mjög reið og hrygg, enda þama búinn að missa einn af vinum sínum. Þessa sögu sagði Páhria Baldri þegar hann tók við hana viðtalið í Feyki á sínum tíma, á- samt tveimur vísum sem hann fór með við athöfnina að Skaiðsá á dögunum. Baldur Hafstað talar að Skarðsá. Hjónin í Vík til hægri. ff Skagafjörður Hvað víljnm við með Gamla bæinn á Króknum? Vinna við stefnumótun fyrir Gamla bæinn, undanfari deiliskipulags, er í gangi hjá umhverfis- og tækninefnd Skagafjarðar. Af því tilefni verður á vegum nefndarinnar Almennur fundur í Safnahúsinu fímmtudaginn 4. nóvember kl. 20,30 Á fundinum mun Áslaug S. Ámadóttir arkitekt, skýra lokaverkefni sitt frá Arkitektaskólanum í Árósum um skipulag Aðalgötu og Skagfirðingabrautar og lýsa viðhorfum til Gamla bæjarins. Almennar umræður, þar sem fundargestum gefst kostur á að lýsa viðhorfum sínum til Gamla bæjarins. Byggingarfulltrúi Skagafjarðar Jón Örn Berndsen. Vinnuvélanámskeið Iðntæknistofnunar 80 tíma réttindanámskeið í meðferð og stjóm vinnuvéla verður haldið á Norðurlandi vestra í byrjun desember, ef næg þátttaka fæst (lágmark 14 manns) Námskeiðið veitir rétt til verklegrar próftöku á allar gerðir vinnuvéla. Námskeiðið er kvöld- og helgamámskeið. Verð kr. 34.900,- Visa, Euro, raðgreiðslur. Upplýsingar og skráning hjá Vinnueítirlitinu á Sauðáritróki í síma 453 5015 frá kl. 13,00 -17,00.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.