Feykir


Feykir - 03.11.1999, Blaðsíða 7

Feykir - 03.11.1999, Blaðsíða 7
37/1999 FEYKIR 7 nokkuð á næstu árum en þegar Flugfélag íslands og Loftleiðir sameinuðust í eitt félag, Flugleiði, breyttust áherslur og bændur urðu eiginlega eftir í lausu lofti og gistinóttum hjá þeim fækkaði. Það var raunverulega ekki fyrr en 1980 þegar Samtök ferðaþjónustu bænda voru stofnuð að hjólin fóru eitthvað að snúast aftur. Stéttarsamband bænda og Búnaðarfélag íslands stóðu sameiginlega að rekstri skrif- stofú félagsins og árið 1983 kom fyrsti kynningarbæklingur Ferðaþjónustu bænda út og hefur hann komið út árlega síðan, 34 bæir vom kynntir í íyrsta bæklingnum en nú eru þeir hátt í 130. Árið 1991 var svo Ferðaskrifstofa ferðaþjón- ustubænda sett á laggimar og stofnað hlutafélag um rekstur- inn, F.B. h/f. Samstarf hags- munafélagsins og ferðaskrif- stofunnar var mikið næstu árin og hafði ráðunautur samtakanna aðsetur á skrifstofú FB hf. en það breyttist fyrir rúmum tveimur árum og nú er svo komið að ekki er starfandi neinn ráðu- nautur ferðamála. Þessi þróun er mjög miður að mínu mati því eigi ferðaþjónusta bænda að vaxa og dafna þá þarf sífelld vöruþróun að eiga sér stað og það verður ekki gert nema með því að miðla þekkingu og ífæðslu til þeirra sem í greininni eru. Að sönnu em nú starfandi ferða- og atvinnumálafulltrúar um land allt og geta bændur í ferðaþjónustu leitað eftir aðstoð þar og er sú staðreynd ein af rök- semdum forráðamanna Bænda- samtakanna fyrir því að leggja starf ráðunautar ferðítmála niður. Náin tengsl við landbúnaðinn er ein helsta sérstaða ferðaþjónustu bænda og því ætti það að vera metnaður ffamámanna land- búnaðargeirans að hlúa að og styrkja þessa búgrein enn lfekar og stuðla þannig að Ijölbreytni í landbúnaði. Fjölmargar erlendar rann- sóknir hafa sýnt fram á það að ferðaþjónusta skiptir konur í dreifbýli miklu rnáli og þá er ekki síst verið að horfa til ferðaþjónustu bænda. Almennt em það konur á aldrinum 50 til 60 ára sem bera ábyrgð á ferðaþjónusturekstrinum, ekki síst þar sem búskapur er stundaður samhliða en hann er þá á ábyrgð karlmannsins. Þrátt fyrir að ferðaþjónustureksturinn skili ekki miklum tekjum þá sýnir það sig að þær krónur sem frá honum koma gera hinn hefðbundna búrekstur oft á tíðum mögulegan. ímyndin mikilvæg Styrkur ferðaþjónustu bænda er ijölbreytileikinn, smæðin og tengslin við umhverfið. Þetta em þær eigindir sem fólk tengir gjama við dreifbýlið og vaxandi andúð á fjöldaferðamennsku gerir það að verkum að þessar eigindir þykja eftirsóknaverðar hjá sífellt stærri hópi fólks. Veikleiki ferðaþjónustu bænda er hins vegar sá að oft er erfitt að sjá nokkum mun á henni og annarri ferðaþjónustu í dreif- býlinu og einnig sú staðreynd að smáar einingar em erfiðar í markaðssetningu. Því er mjög mikilvægt að hægt sé að skapa sameiginlega og sterka ímynd og sú ímynd verður að hafa einhverja sérstöðu, skera sig einhvem veginn frá því sem í boði er á markaðstorgi ferða- þjónustunnar. Ef við lítum eftir fordæmum fyrir utan landsteinana þá sýnist mér að seljendur ferðaþjónustu bænda þar geri mun meira úr tengslum við landbúnað og upplifun sveitalífins heldur en gert er hér á landi. í sumum löndum geta þeir einir verB aðilai' að ferðaþjónustu bænda sem stunda samhliða hefðbundinn búskap af einhveiju tagi. Reyndar má sjá teikn á lofti um að þetta sé að breytast hér á landi og sveitalífinu séu gerð aukin skil en íslenska útgáfan af bæklingi samtakanna heitir núna Upp í sveit. Reyndar verð ég þó að viðurkenna að forsíðumyndin sem ég get ekki betur séð en að tekin sé í Húsdýragaiðinum í Reykjavík, ruglar mig dálítið í ríminu... Eins og allir vita er það íslensk náttúra sem dregur erlenda ferðamenn til landsins en íslensk bændamenning hefur alla tíð verið í nánu sambandi við náttúru landsins og hennargæði. Lambakjötsframleiðendur markaðssetja fjallalambið sem ómengaða náttúruafúrð og sú staðreynd að hér á landi er ákaflega lítið um hinn svokallaða verksmiðjubúskap gerir teng- ingu ferðaþjónustu og landbúnaðs mjög jákvæða. Að gæðin standist En það er ekki bara að ímyndin veiði að vera skýr, heldur veiða rekstaraðilamir að vera vel meðvitaðir um hana þannig að þeir geti þróað vöm sína undir þeim formerkjum. Nafriið Ferðaþjónusta bænda á að vera vömmerki á sama hátt og Coca Cola - þegar við kaupum kókflösku emm við að sækjast eftir ákveðnum eiginleikjum þessa drykkjar umfram aðra og það sama veiður að eiga við viðskiptavini ferðaþjónustu bænda eigi greinin að eiga einhverja vaxtarmöguleika. Þetta þýðir einungis eitt: stöðugt þarf að kanna og fylgjast með óskum og þörfum ferðamanna því þeir geta verið duttlungafullar skepnur og haga sér býsna ólíkt eftir því hvaðan af fjallinu þeir koma. Sömuleiðis þarf að eiga sér stað virkt gæðaeftirlit því ein skemmd kókflaska þykir ekki góð latína þar sem hún kastar rýrð á allar hinar þrátt fyrir að þær séu í fínu lagi. Félag ferðaþjónustubænda hefur raunar unnið merkilegt starf hvað varðar gæðaeftirlit í ferðaþjónustu en öll gisting sem seld er undir merkjum FB er flokkuð eftir stærð og útbúnaði herbergja, sumarhúsa eða smáhýsa. Þannig á viðskipta- vinurinn auðveldara með að átta sig á því hvers konar vöm hann er að kaupa. Það er ekki uppskrift að vel heppnuðum viðskiptum ef ferðamaður telur sig vera að kaupa gistingu í herbergi með baði ef það er svo kannski ekki einu sinni vaskur á herberginu sem honum er úthlutað. Áratugur er síðan fyrsta markvissa úttektin á bæjum innan FB var framkvæmd, í kjölfarið var gefinn ákveðinn aðlögunartími og að honum loknum vom bæir heimsóttir aftur og þeir sem ekki höfðu sinnt fyrri athugasemdum gátu ekki lengur auglýst þjónustu sína undir merkjum FB. Aðbúnaður á gististað er hins vegar ekki það eina sem skiptir máli. Afþreying hvers konar vex hröðum skrefum og margir ferðaþjónustu bændur bjóða upp á einhveija afþreyingu og sumir hafa raunar farið eingöngu út í afþreyingarekstur. Þessi þjónusta þarf ekki síður en gistingin á virku aðhaldi og eftirliti að halda. Gæðaeftirlit kostar að sjálfsögðu tíma og peninga og það er Ijóst að ferðaskrifstofa sem þarf að skila eigendum sínum hagnaði eða minnsta kosti að hafa það að markmiði að reksturinn sé nokkum veginn réttu meginn við núllið sinnir ekki svona eftirliti. Hér þarf því að koma til stuðningur annars staðar frá en mestu skiptir þó að land- búnaðarfomstan hafi skýra framúðarsýn hvað varðar áherslur í ferðaþjónustu bænda og hvers konar ferðaþjónusta það eigi að vera. Samrýmist það t.d. sveitarómantíkinni að tæta um á jeppum og snjósleðum um ósnortnar heiðarlendur, áaðgera kröfur um húsdýr á ferðaþjónustubæjum, á að setja einhvert þak á fjölda gistirúma á hveijum stað?, og svo framvegis. ✓ Okeypis smáar Til sölu! Til sölu kvígur á öðm ári, folar á tamningaaldri og móálótt og vindótt folöld. Upplýsingar í síma 453 6502 (Sigurlaug). Til sölu kefldar kvígur 3-4, buiðartími des.-jan. Upplýsingar 453 6553. Til sölu 33” dekk negld á felgum. Upplýsingar í síma 4527131. Til sölu snjósleðakerra fyrir tvö sleða, stærð 3,2x2,22. Nánari upplýsingar í síma 452 2985 og 897 7291. Til sölu vetrardekk á felgum 185x70 14”. Einnig felgur undir Toyota double cab 16". Upplýsingar í síma 453 7363. Til sölu dekk á felgum með hjólkoppum, 14” ,með fimm götum. Upplýsingar í síma 453 6991 eða 8612860. Vinsamlegast ekki henda: tvinnakeflum, tölum, frost- pinnaspýtum,allskonar spilum, gömlum púsluspilum, filmum og filmuboxum, gardínu- hringumjitlum og/ eða stómm perlum, allskonar dollum undan matvöm (t.d. jógúrtdollur, salat- dollur, þurmjólkurdollur, mayon- esdollur), pennum, tússlitum ( allt í lagi þó svo að þeir skrifi ekki) hárrúllum, klakaboxum, snyrtivöm box, allskonar dót sem hægt er að setja saman s.s. vasaljós o.fl. (þarf ekki að vera hægt að kveikja á þeim). Með lyrirfram þökk Starfsfólk Iðjunnar. t Mínar innilegustu hjartans þakkir til ykkar allra, sem með samtíð og hlýhug veittuð okkur styrk í sorginni, við andlát og útför ástkærs sonar míns Örvars Pálma Pálmasonar Grenihlíð 17, Sauðárkróki Guð blessi ykkur öll Fyrir hönd allra aðstandenda Svala Jónsdóttir Vöruflutningar Sauðárkrókur - Skagaljörður Daglegar ferðir Vörumóttaka í Reykjavík hjá Aðalflutningum Héðinsgötu 2 Sími 581 3030 Bjarni Haraldsson sími 453 5124. Greiðsluáskorun ff. Innlieimta sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar hér með á fasteignagjaldendur í sveitarfélaginu, sem ekki hafa staðið skil á fasteignagjöldum álögðum 1999 og féllu í gjalddaga 1. júlí 1999,ásamt eldri gjöldum, að greiða þau nú þegar og eigi síðar en 15 dögum frá móttöku áskorunarinnar. Að þeim tíma liðnum verður beðið um nauðungarsölu á viðkomandi fasteign, án frekari viðvörunar. Sauðárkróki l.nóvember 1999 Skagafjöður Innheimta.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.