Feykir


Feykir - 05.01.2000, Qupperneq 2

Feykir - 05.01.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 1/2000 Aldamótadagskrá í Sauðárkrókskirkju Gengin spor við aldahvörf, nefndist dagskrá sem flutt var í Sauðárkrókskirkju miðvikudag- inn 29. desember. Þar sungu Kirkjukór Sauðárkróks og fé- lagar úr Karlakómum Heimi nokkur lög eftir skagfirsku tón- skáldin þrjú, Eyþór Stefánsson, Jón Bjömsson og Pétur Sigurðs- son, og í kringum sönginn flétt- aði Jón Ormar Ormsson saman- tekt sinni á ýmsu merku og skemmtilegu í sögu Sauðár- krókskirkju, sem spannar rúm- lega tuttugustu öldina og tengist á margan hátt sögu byggðarinn- arundirNöfum. Það var sóknamefnd Sauðár- krókskirkju sem stóð fyrir þess- um viðburði í kirkjunni og var hún þéttskipuð og undirtektir kirkjugesta góðar. I kveðju frá sóknamefnd segir að í tilefni þessara miklu tímamóta, nýs árþúsunds og há- tíðahalda víða um land í tilefni 1000 ára sögu kristni á Islandi, hafi sóknarnefnd þótt við hæfi að leggja sitt lóð á þá vogarskál og gefa þeim í sókninni, sem Kirkjukór Sauðárkróks syngur við stjóm og undirleik Rögnvaldar Valbergssonar. Félagar í karlakórnum Heimi syngja lög eftir Eyþór Stefánsson við flautuleik systranna Söru Katrínar og Berglindar Stefánsdætra, stjórnanda Heimis. w ij Heilbrigðisstofnunin ® Sauðárkróki Eftiftaldir sérfræðinear verða með móttöku í stofnuninni í janúar og febrúar: Tímabil Læknar Sérgrein 3/1 - 14/1 Hrafnkell Óskarsson skurðlæknir 17/1 - 21/1 Edward Kiernan kvensjúkdómalæknir 24/1 - 28/1 Haraldur Hauksson skurðlæknir 31/1 - 11/2 Arnbjörn Arnbjörnsson bæklunarsérfræðingur 14/2 - 18/2 Shree Datye skurðlæknir 21/2 - 25/2 Jónas Franklín kvensjúkdómalæknir Tímapantanir í síma 455 4000. hug hefðu á, kost að eiga góða stund í kirkju sinni og rifja upp atriði úr sögu Sauðárkrókskirkju í tónum og orðum. „Þó sú saga spanni aðeins rúm hundmð ár, er hún mjög merkileg vegna þess þáttar sem kirkjan hefur átt í menningar- sögu staðar og héraðs. Það er ósk sóknamefndar að svo verði áfram og að við næstu árþús- undaskipti geti söfnuðurinn litið yfir farinn veg með jafnmiklu þakklæti og við gemm nú á þessari kvöldstund. Bygging Sauðárkrókskirkju var mikið átak fámennum söfn- uði á sínum tíma, en söfnuður- inn gekk einhuga að því verki og mun lengi verða vitnað til þess. Söfnuðurinn stóð einnig vel að baki sóknamefndinni, þegar velheppnuð endurbygg- ing og stækkun kirkjunnar fór fram fyrir nokkmm ámm. Þetta og aðra ræktarsemi safnaðarins er verið að þakka með þessari dagskrá. Sóknamefnd þakkar einnig af heilum hug öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg við gerð dagskrárinnar, svo og öllum flytjendum”, sagði Gest- ur Þorsteinsson formaður í kveðju frá sóknamefnd. | |—í Jóhann Már Jóhannsson og Sigurdiff Jónatansdóttir syngja dúett í lagi Péturs Sigurðssonar. Endurhæfingarstöð Heílbfigðisstofnunar Höfðinglegar gjafir á vígsludaginn A vígsludegi endurhæfmgarhússins bámst Heilbrigðisstofnun- inni á Sauðárkróki tvær höfðinglegar gjafir, sem nýtast eiga í nýju aðstöðunni. Verslunin Hlíðarkaup gaf nuddtæki að verðmæti 150.000 krónur og Kvenfélag Staðarhrepps gaf kr. 100.000 til tækjakaupa. Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is. Ritstjóri: ÞórhallurÁsmundsson. Fréttaritari: Öm Þórarinsson. Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð- brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs- fréttablaða.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.